Læknablaðið - 15.11.1986, Blaðsíða 42
310
LÆKNABLAÐIÐ
CMv-hornið var hjá þessum 60 fótum að
meðaltali 152.
Sömu 60 fætur úr hópi I sem valdir voru til
röntgenmyndatöku voru ljósmyndaðir við
lokaeftirlit og myndirnar bornar saman við
ljósmyndir teknar fyrir aðgerð. Ekki er hægt að
meta samanburðinn tölulega því myndirnar voru
ekki teknar undir stöðluðum kringumstæðum.
Þær gefa þó góða mynd af því hvernig fæturnir
litu út fyrir og eftir aðgerð. Þetta kemur fram við
samanburð á myndröð 8 sem var tekin fyrir
aðgerð og myndröð 9 sem tekin var þrem árum
eftir aðgerð.
UMRÆÐA
Meðfæddum holfæti með varus-skekkju á
hælbeini (pes varo-excavatus congenitus
idiopathicus) veldur ómeðhöndlaður vaxandi
álagssársauka og oft skertri starfsgetu með
normal measurements, i.e. TM/I is a straight line and
CM/V is 150-175. Lower graph: Pes cavus deformity
with TM/1 less than 180 and CM/V less than 150 (see
Templeton (6), Dawis and Hatt (7).
Fig. 7. Radiological measurements before and after
operation.
aldrinum (8). Að endingu getur innbyrðis
misræmi einstakra fótabeina valdið slitgigt með
versnun allra einkenna og stundum varanlegri
bæklun. Hefðbundin meðferð viðheldur skekkju
fótar, þannig að hætta er á aukningu
kenndareinkenna á fullorðinsaldri.
Ýmsir greinahöfundar sem fjalla um meðfæddan
holfót (4, 5, 9, 10) álíta að bíða eigi átekta með
skurðaðgerðir uns veruleg bæklunareinkenni,
slitgigt og skert starfsgeta á fullorðinsárum, séu
til staðar. í þeim tilvikum verður oftast að grípa
til meiriháttar staurliða- og réttingaraðgerða á
beinagrind fótar.
Sherman og Westin (11) skýra frá fullnægjandi
árangri í 82% tilvika þar sem aðgerð Steindlers
var beitt á börnum. En þar var um að ræða holfót
eftir lömunarveiki eða aflögun í kjölfar
klumbufótar (pes equino-varus congenitus). Fáir
fætur í efniviði þessara höfunda höfðu
sjúkdómsgreininguna meðfæddur holfótur (pes
varo-excavatus congenitus). Greinarhöfundur
hefur ekki fundið í ritskrám heimildir svo neinu
nemi um notkun Steindlers-aðgerðar við meðferð
fóta með þá sjúkdómsgreiningu.
í þessari rannsókn var beitt mjúkvefjaaðgerð
(a.m. Steindler) á 170 vaxandi fótum (hópur I,
81,2%) og 41 fullvöxnum fæti (hópur II, 18,8%).
Meðaltímalengd milli aðgerðar og
eftirrannsóknar var 3 Zi ár. Við eftirrannsókn
kom í Ijós að í 96,3% tilvika voru
kenndareinkenni horfin eða minnkuð í hópi I.
Skurðaðgerðin leiddi einnig til réttingar á