Læknablaðið - 15.08.1989, Blaðsíða 18
202
LÆKNABLAÐIÐ
2. miðgirnisæxli (midgut tumors) í mjógimi
og efri hluta ristils; og
3. afturgimisæxli (hindgut tumors) í neðri
hluta ristils og endaþarmi.
Auk staðsetningarinnar virðast vefjagerð
og stærð æxlisins skipta máli hvað varðar
hegðun, útbreiðslu og meinvörp.
Krabbalíki valda erfiðleikum í klínískri
greiningu, vegna þess að þau gefa oft óljós
og ósértæk einkenni. Stór hluti þeirra finnst
við bráðaaðgerðir, aðgerðir vegna annarra
sjúkdóma eða við krufningu.
Engar skipulegar rannsóknir hafa verið
gerðar á krabbalíki hér á landi. Tilgangur
rannsóknarinnar var að kanna krabbalíki á
Islandi á 30 ára tímabili, staðsetningu þeirra,
klínísk einkenni, greiningu, meðferð, árangur
meðferðar og afdrif sjúklinganna.
í þessari grein er gefið almennt yfirlit um
sjúkdóminn, og nánar fjallað um krabbalíki
í meltingarfærum utan botnlanga.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Fyrst var leitað í skrá Krabbameinsfélags
íslands, en það kom í ljós, að aðeins hluti
þessara æxla var skráður þar. Þá var leitað
gagna á Rannsóknastofu Háskólans í
meinafræði og safnað saman öllum tilfellum
krabbalíkis á tímabilinu 1955-1984. Einnig var
leitað gagna á meinafræðideild F.S.A. fyrir
árin 1982-1984. Þannig var gerð tæmandi
leit að vefjafræðilega staðfestum tilfellum
krabbalíkis á landinu á þessum 30 árum.
Öll vefjasýnin voru endurskoðuð og
endurmetin. í þeim tilvikum sem upprunalegar
vefjasneiðar fundust ekki voru nýjar
skomar úr paraffín-kubbum og litaðar
með hematoxylín-eosínlitun (HE). Stærð
æxlanna var mæld með sjónglersmæli
(ocular micrometer) við smásjárskoðun á
vefjasneiðunum og útbreiðsla æxlanna var
einnig metin að nýju.
Klínískar upplýsingar ásamt aðgerðarlýsingum
voru fengnar úr sjúkraskýrslum viðkomandi
sjúkrahúsa. Sjúkraskýrslur níu sjúklinga
fundust ekki, en upplýsingar um þá fengust
af vefjarannsóknarbeiðnum.
Afdrif sjúklinganna voru könnuð með því
að athuga hverjir voru á lífi 1. desember
1986 og dánarorsakir þeirra, sem látist
höfðu, voru athugaðar í dánarvottorðum og
krufningaskýrslum.
Notuð var skilgreining Mártenssons (6)
á krabbalíkisheilkenni, það að sjúklingur
með vefjafræðilega staðfest krabbalíki hefði
andlitsroða og/eða niðurgang.
NIÐURSTÖÐUR
Alls greindust 146 krabbalíki á Islandi 1955-
1984 (tafla I). Af þeim voru 119 (81,5%) í
meltingarfærum, 22 (15%) í lungum og 5
(3,4%) voru af óþekktum uppruna. Níu æxli
greindust fyrst við krufningu.
Nýgengi krabbalíkis (crude incidence) á
íslandi á árunum 1955-1984 var 2,41 á
100.000 íbúa á ári, konur 3,17 en karlar 1,67.
Table I. Carcinoid tumors 1955-1984. Distribution by
site and year of diagnosis.
Gastro- Broncho- Primary site
Years intestinal pulmonary unknown Total
1955-59 ........... 10 2 - 12
1960-64 ........... 14 2 - 16
1965-69 ........... 17 1 - 18
1970-74 ........... 28 6 1 35
1975-79 ........... 21 2 2 25
1980-84 ........... 29 9 2 40
Total 119 22 5 146
Table II. Carcinoid tumours 1955-1984. Distribution
by site, sex and age.
Site Females Males Mean age (Range)
Foregut
Bronchopulmonary 15 7 48 (16-77)
Stomach - 2 51 (44-58)
Duodenum - 1 41
Papilla Vateri .... 1 - 57
Liver - 1 90
Gallbladder 1 - 87
Common bile duct 1 - 77
Midgut
Jejunum 1 2 62 (41-80)
Ileum 9 8 57 (31-78)
Small bowel NOS 1 2 75 (70-86)
lleocecal valve ... 4 2 64 (54-70)
Appendix 59 19 29 (4-72)
Hindgut
Rectum 2 3 51 (41-78)
Primary site unknown 1 4 76 (66-81)
Total 95 51