Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1977, Blaðsíða 5
m
Enn má nefna það vandamál, sem einstakir
læknar og heilbrigðisstjórnir standa andspænis,
þegar taka þarf ákvarðanir um forgangsröðun
þjónustu. Þar geta rekizt á lögmál tölfræð-
innar og þau siðalögmál, er við viljum halda
í heiðri.
Taka þarf til umræðu á hvern hátt stéttin
skuli bregðast við, þegar um meint misferli
lækna er að ræða, eða þeir brjóta lög félags-
ins eða siðareglur. Mörg önnur mál hljóta að
koma til umræðu, þótt ekki verði öllum gerð
jafn ýtarleg skil.
Tilgangur Læknaþings í ár er í mínum huga
tvíþættur. Annars vegar sá, að veita fræðslu
um þetta efni, sem ég tel læknum ekki síður
nauðsynlega en um mörg önnur fagleg efni. Hins
vegar er það von mín, að fyrirlestrar, hópvinna
og almennar umræður leiði til íhugunar og
skoðanaskipta, sem verði undirstaða áframhald-
andi umræðu innan læknasamtakanna og leiði til
vandlegrar endurskoðunar á Codex ethicus.
Jafnframt er æskilegt, að fram fari við-
ræður milli lækna og annarra heilbrigðisstétta,
og þess vegna er samtökum þeirra boðið að senda
fulltrúa á þetta Læknaþing.
Fyrir hönd stjórnar Læknafélags íslands vil
ég færa öllum þeim aðilum þakkir, sem lagt hafa
hönd á plóginn við undirbúning þingsins. Auk
áðurnefndra lækna vil ég nefna ritstjóra Lækna-
blaðsins, þá Bjarna Þjóðleifsson og örn Bjarna-
son, og formann fræðslunefndar, Árna Björnsson.