Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1977, Síða 9

Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1977, Síða 9
3 LÆKNAEIÐURINN Þessi eiður er æfagamall og miklu eldri en Hippokrates, en sýn- ir glöggt anda þann, sem ríkti í asklepíadisku, hippokratisku skólunum, en þaðan er hann til vor kominn. "Lg sver við Apollo, heilsugjafann, við Asklepios, Hygieiu og Panakeia, og nefni alla guði og gyðjur þar til vitnis, að ég ætla mér alveg að halda þennan eið minn og skuldbindingu, eftir þv£ sem mér frekast er unnt og dómgreind mín nær. íg vil virða læknisfræðikennara minn sem foreldra mína, taka þátt í lífskjörum hans og, ef nauðsyn krefur, ala önn fyrir hon- um; ennfremur vil ég virða afkvæni hans sem bræður, og kenna þeim læknisfræði, ef þeir æskja þess, endurgjaldslaust. Fræði mín vil ég'kenna sonum mínum, sonum kennara míns, svo og þeim lærisveinum mínum, sem bundnir eru læknalögum og lækniseiði, eng- um öðrum. Þær einar fyrirskipanir mun ég göra, er séu sjúklingum mínum til gagns og nytsemdar, eftir því sem þekking mín og dómgreind frekast fær ráðið. Forðast mun ég að aðhafast nokkuð illt eða óréttlátt gegn þeim. Engum mun ég gefa lyf, svo honum verði að aldurtila, þótt far- ið sé þess á leit við mig, og engum ráð gefa til að stytta sér aldur; enn fremur engri konu fá lyf til fóstureyðingar. Ég vil lifa hreinu, flekklausu lífi og rækja svo list mína. Skera til steins vil ég ekki; það gjöra þeir, sem þar til eru kallaðir. Hvar' sem ég kann í hús að koma, þá vil ég vera hinum sjúku til gagns og hjálpar, en fjarri mér sé ósanngjarn og vítaverður á- setningur; sérstaklega vil ég forðast allt daður við konur og

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.