Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1977, Síða 16
10
nærgætni, sem hann getur framast við komið.
Ef ekki er á hans faeri að framkvaana nayðsynlega rannsókn eða að-
gerð, skal hann í samráði við sjúklinginn undandráttarlaust leita
fulltingis læknis eða lækna, sem leyst geta úr þeim vanda.
Honum hlýðir ekki að synja sjúklingi sínum um að kveðja annan
lækni til ráðuneytis, ef ætla má, að hann geti orðið að sérstöku
liði.
9. grein: Sérmenntaður læknir, sem tekið hefur við sjúklingi eft-
ir tilvisum annars lceknis, skal að lokinni rannsókn eða meðferð
láta þeim lækni, sem sendi sjúklinginn, í té skýrslu um rannsókn-
ir síhar og/eða meðferð. Nú álítur hann, að sjúklingurinn þarf-
nist athugunar eða meðferðar annars sérmenntaðs læknis, og skal
hann þá skýra lækni sjúklingsins frá því.
Sérmenntuðum lækni, sem stundar aðsendan sjúkling á sjúkrahúsi,
ber að sjá svo um, að heimilislækni séu sendar skýrslur um rann-
sókn sjúklingsins, sjúkdómsgreiningu og meðferð; einnig leið-
beiningar um framhaldsmeðferð, ef hennar er þörf.
Læknir, sem sinnt hefur sjúklingum annars læknis vegna forfalla
eða fjarvista, skal vísa þeirn aftur til síns læknis að staðgöngu-
tíma liðnum.
10. grein: Lækni er skylt að forðast af fremsta megni að hafast
nokkuð að, er veikt gæti trúnaðarsamband hans við sjúklinga.
Honum er óheimilt að ljóstra upp einkamálum, sem sjúklingar hafa
skýrt honum frá eða hann hefur fengið vitneskju um í starfi sínu,
nema með samþykki sjúklingsins, eftir úrskurði eða samkvæmt laga-
boði.
Lækni ber að skylda starfslið sitt til að gæta fyllstu þagmælsku
um allt, er varðar sjúklinga hans.
11. grein: Rétt er, að læknir haldi til haga skýrslum og minnis-
blöðum (spjaldskrá) varðandi mikilvægar rannsóknir, aðgerðir og
slys, eða annað, sem skipt getur máli í samskiptum við sjúklinga
eða aðra aðilja síðar.
Um afhendingu slíkra plagga fer eftir reglum 10. og 12. greinar.
12. grein: Lækni ber að vanda til vottorða og skýrslugerðar.
Honum hlýðir að votta óvilhallt það eitt, sem máli skiptir og
hann hefur sannfærst um af eigin raun eða getur fært sönnur á.
Læknir, sem vísvitandi semur eða undirritar rangt eða villandi
vottorð eða greinargerð, er sekur um misferli.
Læknir má ekki láta af hendi vottorð eða skýrslu um sjúkling án
samþykkis hans eða nánustu vandamanna, sé hann sjálfur ekki fær,
nema lög eða úrskurður bjóði svo.
Á vottorð, sem ekki eiga að fara til lækna, heilbrigðisstofnana
eða tryggingastofnana, skal ekki skrá s júkdómsgreiningu.
Fyrir dómi hlýðir lækni ekki, án úrskurðar dómara, að leggja fram
sjúkraskýrslur máli sínu til sönnunar. Hins vegar getur sjúkling-