Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1977, Page 17

Læknablaðið : fylgirit - 01.09.1977, Page 17
11 ur krafist þess, að skýrsla um hann sé lögð fram. 13. grein: Lækni er skylt að auðsýna stéttarbróður drengskap og hattvisi jafnt í viðtali sem umtali, ráðum sem gerðum. Öll gagnrýni á þekkingu eða læknisstörfum stéttarbróður er ósaani- leg nema við lækna eina. Lækni er ósaanandi að vera í vitorði um ráðstafanir, sem fyrir- sjáanlega leiða til skerðingar á atvinnuöryggi annars læknis, nema slíkar ráðstafanir verði að teljast nauðsynlegar. Lækni er ósænandi að synja starfsbróður um nauðsynlega aðstoð við aðkallandi læknisverk. 14. grein: Ef læknir telur ástæðu til íhlutunar vegna misferlis í starfi stettarbróður, skal hann snúa sér til landxæknis og stjómar L.I. 15. grein: Læknir má ekki lokka til sín sjúklinga frá stéttar- bræðrum sinum. Enginn læknir má taka að sér læknisstörf fyrir minna endurgjald en aðrir læknar, sem gegna sams konar störfum í því byggðarlagi. Heimilt er þó að veita efnalitlum sjúklingum læknishjálp án end- urgjalds, ef það er gert með vitund og samþykki hlutaðeigandi heimilis lækna. Nú er læknir, annar en heimilislæknir, sóttur í viðlögum til sjúklings, og skal hann þá einungis gera það, sem brýn nauðsyn krefur, enda skýri hann heimilislækni frá því. 16. grein: Allir læknar, konur þeirra, ekkjur og ófullveðja börn eiga rett á ókeypis læknishjálp af hendi þess læknis sem hinn sjúki kýs sér. Þurfi læknir þess vegna að takast ferð á hendur skal honum séð fyrir ókeypis flutningi, en útlagður ferðakostnað- ur skal endurgreiddur. Heimilt er lækni að þiggja eitthvert endurgjald, ef sá, sem hjálpar nýtur krefst þess. 17. grein: Ef sérmenntaður læknir vinnur læknisverk utan sér- greinar sinnar, vinnur hann það sem almennur læknir, og ber honum að taka gjald samkvæmt því. Sérmenntuðum lækni hlýðir að fara sem minnst út fyrir það verk- svið, sem sérfræðingsviðurkenning hans tekur til. 18. grein: Lækni er ósOTiandi að framkvæna skoðun eða aðgerð á sjuklingi eða þungaðri konu í samvinnu við aðra en lækna eða þá, sem heimilað er að vinna slík verk. Lækni er óheimilt að leyfa nokkrum, sem hefur ekki tilskilda kunnáttu, að framkvsna eiginleg læknisverk í sinn stað (sbr. þó 4. gr. laga nr. 47/1932). Ekki má hann heldur liðsinna neinum í því að villa heimildir á lækningakunnáttu sinni. 19. grein: Lækni er ósænandi að vekja á sér ótilhlýðilega athygli eða gefa í skyn yfirburði sína yfir aðra lækna með því að hampa eða láta hampa menntun sinn, þekkingu, hæfni afrekum eða vinsæld-

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.