Innsýn - 01.04.1978, Page 3
hjarta,hönd. Þessari stefnu
og markmiði sé fylgt eftir
til framkvaemda af okkar
eigin menntaráði sem hafi
yfirsýn yfir skólann okkar,
skipulagningu, framtíðar-
áform, eftirlit, leiðbein-
ingar, hvatningu og uppörv-
un, og sé ekki hvað síst
traustur bakhjarl þeim sem
án kennaramenntunar leggja
fyrir sig kennslu af áhuga
og einlægni, en með tak-
markaðri þekkingu eða innsæi
í uppeldis eða kennslumál.
Sönn menntun er sama og
endurlausn. Þess vegna
þurfum við að hafa okkar
eigin aðventmenntaða kennara
BJÖRGVIN SNORRASON
á íslandi ber að stefna að
samfelldri kennslu fyrir
alla á aldrinum 6-18 ára.
35 til 45% af námi nemenda
á aldrinum 13 til 15 ára
ætti að vera handmennt. í
náttúrufræðikennslunni ætti
sköpunarsagan og flóðið að
marka mun dýpri spor. í
samfélagsfræði og sögu
ætti þáttur kirkjunnar að
vera mun stærri. 1 xslensku
ætti val á andlegum bók-
menntum að vera mun meira.
Mikla áherslu ber að leggja
á kennslu í heilsufræði, og
hefja kennslu i þessari
grein, sem fyrst - þar sem
hennar er vant. Tónlistar-
kennsla er algjör nauðsyn.
Hvorki Biblían né Andi
spádómsins gerir greinarmun
á endurfæðingu og sannri
menntun. Sönn menntun
endurskapar manninn andlega,
vitsmunalega og líkamlega.
Þetta er vöxtur, sem varir
svo lengi sem maðurinn lifir
og undirbýr hann fyrir
eilífðina. Þess vegna:
"Fræð þú sveininn um veginn,
sem hann á að halda, og enda
á gamals aldri mun hann ekki
af honum víkja." (Orðskv.22,
6.)
Sérmenntað fólk er nauð-
syn, ef vel á að takast með
framhaldsdeildir, því þyrfti
að hvetja ungt fólk með
hæfileika og áhuga, að
leggja stund á vissar grein-
ar. En hver svo sem sér-
greinin kann að vera verða
Samtökum S.d.aðventista