Innsýn - 01.01.1984, Blaðsíða 2
Uií§l§
2
★ ★ ★ FRÁ RITSTJÓRNINNI ★ ★★
Heð þessu fyrsta tölu-
blaði ársins 1984 sendir
ritstjórn INNSÝNAR lesendum
sínum hugheilar kveðjur og
hamingjuóskir um velgegni á
nýja árinu. í þessari
kveðju er fólgið þakklæti
til ykkar allra sem með
árskriftargjöldum hafið
stutt útgáfu blaðsins.
Sérstakar kveðjur flytjum
við öllum sem hafa lagt til
efni í blaðið, annað hvort
frumsamið eða þýtt. Þið
eigið sennilega bágt með að
ímynda ykkur hvað það yljar
okkur um hjartaræturnar
þegar þið sendið til okkar
efni eða verðið við beiðni
okkar um að þýða ákveðnar
greinar,
En þið megið ekki gleyma,
að INNSÝN er ykkar vett-
vangur - blaðið ykkar. Og
það þýðir ekki aðeins að þið
getið lesið INNSÝN, heldur
að þið getið einnig notfært
ykkur blaðið ykkar til að
koma á framfæri ýmsu sem
liggur ykkur á hjarta.
Hefurðu lagt drög að grein
sem þú hefur ekki ennþá
komið á framfæri? Hvað með
INNSÝN? Býrðu yfir ein-
hverri snjallri hygmynd til
að koma vissri hugsun eða
boðskap vel til skila?
INNSÝN bíður eftir slíku.
Hefurður ort ljóð, teiknað
mynd, eða sett saman
hnitmiðaða hugleiðingu, sem
vinir þínir hafa hrósað? í
INNSÝN með það!
Gerum INNSÝN að lifandi
tvístefnurás!
Megi Guð blessa áhrif
INNSÝNAR á komandi ári.
Árni Hólm #
INNSÝN: Kristilegt blað fyrir ungt fólk.
Útgefendur: Sjöunda dags aðventistar á íslandi, Pósthólf 262, Reykjavík.
Ritstjóm: Pröstur B. Steinþórsson, ritstjóri og ábyrgðarmaður; Árni Hólm,
Henrik Jorgensen.
Hönnun: Jeanette A. Snorrason.
Áskriftargjald: Innanlands 1984 er kr. 250,00.
Skoðanir og túlkanir sem birtast í lesendadálkum blaðsins, aðsendum
greinum eða viðtölum em ekki endilega skoðanir ritstjómarinnar eða
útgefenda.