Innsýn - 01.01.1984, Blaðsíða 7
7
þú villt" Þetta er einungis
mögulegt fyrir þann sem er í
daglegu samfélagi við Guðs.
2. Farðu ekki eingöngu
eftir tilfinningimi. Auðvitað
er allt 1 lagi að hafa
einhverjar tilfinningar
gagnvart málunum! Heilagur
andi notar oft tilfinningar
hjartans til þess að leiða
okkur (sjá öesaja 30.21). En
við ættum aldrei að byggja
ákvörðun á tilfinningum
einum saman.
3. Guð leiðir okkur
ávallt samkvaeint orði sxnu og
aldrei í andstöðu við það.
(Sjá Sálm. 119.103) En
hérna er smá vandamál. Það
er ekki víst að til sé kafli
og vers sem á nákvæmlega við
um okkar vandamál. En við
getum samt leitað til
Orðsins og oft og tíðum
finnum við bein svör, en orð
Guðs opnar ávallt tjáskipta-
rás við himininn. En
aðalatriðið er að Guð mun
aldrei leiða okkur í
andstöðu við sitt Orð
- aldrei!
4. Líttu á kringumstað-
urnar■ "Þu skalt minnast
þess, hversu Drottinn Guð
þinn hefur leitt þig alla
leiðina. . . " (5M 8.2).
Hugleiddu hvernig Guð hefur
leitt þig á liðnum árum,
athugaðu síðan hvernig þessi
ákvörðun fellur inn í
heildarmyndina. Það er jú
rétt að stundum leiðir Guð
okkur á algerlega nýja
braut, en það er undantekn-
ingin. Yfirleitt leiðir Guð
okkur áfram á svipaðar
brautir og hann hefur leitt
okkur áður.
5. Ráðfærðu þig við
guðhrædda vini. Þessu
atriði bætti eg við lista
Mullers. Þetta er að finna
í Ok 11.14 og S1 1.1. Ekki
leita ráða hjá óguðlegum
vinum! En ef þú átt vini
sem eru einlægir fylgjendur
Guðs og sem þú hefur lært
að meta og treysta, skaltu
tala við þá og heyra þeirra
skoðun. Ekki fylgja skoðun
þeirra í blindni - Líttu
heldur á þetta sem einn lið
af mörgum sem hálpa þér að
taka ákvörðun.
6. Biddu Guð í bæn, að
leiða þig í þeirri ákvörðun
sem þu ert að taka. Treystu
loforðum Guðs. Hann hefur
heitið visku (Ok 1,5) og
hann lofar að leiða þig (S1
32.8; Lk 1.29). Hagnýttu
þér þessi loforð og biddu
hann sérstaklega um leiðsögn
í þessari ákvörðun. Þú
þarft ekki að biðja um
einhver tákn. Treystu honum
bara.
7. Taktu ákvörðun. Ekki