Innsýn - 01.01.1984, Blaðsíða 10
OPNAN
OKKAR
María Gomez, mamma hennar
og lítill bróðir sem hét
Arturo, áttu heima í
Suðurhluta Bandaríkjanna, í
sólinni í Mexíkó. Litla
heimilið þeirra var langt
fyrir utan borgina, nálægt
Kyrrahafinu.
Faðir hennar hafði verið
sjómaður, en dag einn hafði
ógurlegur stormur tekið hann
í burtu frá þeim. Og nú
áttu þau þrjú bara heima í
litla húsinu.
Stundum léku María og
Arturo sér á hvítri,
sendinni ströndinni. Og
stundum hjálpuðu þau mömmu
sinni að selja pappírsblóm
nálægt stóra markaðstorginu
í borginni.
Á morgun átti mamma
afmæli. Og Maríu langaði
afskaplega mikið til að gefa
henni einhverja gjöf.
Loksins datt henni dálítið í
hug.
"Ég skal selja blómin á
morgun svo að þú og Arturo
getið eytt deginum á
ströndinni", sagði hún við
mömmu sína.
"En góð hugmynd!" sagði
mamma. "En heldurðu að þú
getir selt blóm?"
"Ef til vill ekki öll. En
ég veit hvernig á að skipta
peningum. Og ég veit hve
mikið hvert blóm kostar, og
ég skal reyna mitt besta."
Brúnu augun hennar mömmu
brostu til Maríu. "Það er
allt í lagi þótt þú seljir
ekki öll blómin. Það verður
góð gjöf að þurfa ekki að
fara á markaðinn í heilan
dag."^
Frú Gomez bjó til blómin
um kvöldið. Hún bjó blómin
til úr skærum, björtum,
glitrandi lituðum pappír sem
virtist vera sprelllifandi.
Sum voru jafnstór og höfuðið
á Arturo. Sum voru lítil