Innsýn - 01.04.1984, Síða 8
8
Þá verða þau góð."
Hr. Brown hafði fengið
mig til að kenna sjálfri mér
lexíu með mínum eigin hundi,
og Mike kom orðum að
lexíunni. Næsta hvíldar-
dagskvöld kom ég aftur.
Við náðum góðum árangri.
í stað þess að vera ærsla-
fegnin urðu öll börnin róleg
og móttækileg. Eftir
lexíuna vitnaði hr. Brown um
Oesú, taldi upp allt það sem
hann var þakklátur fyrir og
hvað Oesús hefði fyrir hann
gert. Við frú Brown vitnuðum
líka. Þá spurði hr. Brown
börnin hvort þau langaði til
að þakka Oesú eða segja hvað
hann hefði gert fyrir þau.
Uppástungu hans var
svarað með steinhljóði. Þá
sagði hinn yngsti í bræðra-
hópnum: "Ég er glaður af því
að Mike er hættur að skamma
mig og lætur hina krakkana
ekki hrekkja mig."
Eftir það losnaði um
málbeinið hjá fleirum. Önnur
indverska stúlkan sagði: "Ég
er þakklát af því að mamma
er ekki lengur veik. Hún
fer að vinna aftur á
mánudaginn."
Annar tvíburanna sagði:
"Ég er glaður af því að
pabbi eyddi ekki aurunum í
bjór. Hann keytpi okkur
öllum nýjar buxur og gott í
matinn."
Mike sagði: "Ég er glaður
af því að Oesús elskar
krakka eins og okkur."
Hr. Brown brosti, tók upp
öskju með kertum og sagði:
"Hver sem vill að líf hans
skíni fyrir Oesú komi og
kveiki á kerti."
Mike fór fyrstur. Andlit
hans ljómaði þegar hann
veifaði kerti sínu og
kallaði til elsta bróður
síns: "Komdu, Buzz. Komdu
bara. Þú veist þig langar
til þess."
Buzz seig lengra niður í
stól sinn.
Mike sagði aftur: "Svona,
komdu Buzz. í gærkvöldi
sagðirðu að þig langaði til
þess."
Buzz silaðist að, tók
kerti sitt og stóð við
hliðina á Mike. Þeir brostu
hvor við öðrum og það skein
áður óþekktur kærleikur af
andlitum þeirra.
Þetta var áhrifamikil
athöfn, en Satan laumaðist
inn í hug minn með efasemd-
ir. Mundi þessi breyting
verða varanleg?
Ég ýtti hugsuninni frá
mér og áður en ég fór heim
faðmaði ég að mér þau börn
sem ég gat, og klappaði
hinum á bakið. Hvíldardags-
skólinn minn hafði fært mér
hamingju.
Næsta föstudag tilkynnti
hr. Brown mér: "Við höfum
engann hvíldardagsskóla í
kvöld. Ég býst ekki við að
margir mundu koma."