Innsýn - 01.04.1984, Síða 10
10
OPNAN
OKKAR
IIVOLPIJK HANIKA BIÍNXA
Það var gaman í afmælis-
veislunni. En Benni sat bara
með gjafirnar sínar hjá sér
og horfði á þær. Hamma
settist hjá honum.
"Af hverju ertu svona
hnugginn? Fékkstu ekki allt
sem þig* langaði í?"
Benni reyndi að vera
glaður. Honum þótti
ógurlega vænt um mömmu sína.
"3ú, ég fékk allt sem mig
langaði í. Nema - kannski -
hvolp. En það er ekki það."
"Hvað er þá að? Af
hverju ertu svona hryggur?
Mamma horfði í augu Benna.
Hann varð að segja henni
það. Því þetta var ekkert
leyndarmál í f jölskyldunni .
Mamma og pabbi, og jafnvel
afi, hafði sagt honum það.
En þegar annar drengur sagði
það - þá gengdi öðru máli.
"Georg sagði að ég væri
tökubarn!"
Nú varð mamma leið á
svipinn. "Þú vissir það.
Sagði Georg að það væri
slæmt?"
Benni lagði höfuðið í
kjöltu mömmu. "Hann sagði
bara: "Þú ert ekki í alvöru
sonur mömmu þinnar"."
Mamma sat hljóð um stund.
Síðan sagði hún: "í kvöld
skulum við spyrja pabba
hvort þú sért ekki orðinn
nógu gamall til að fá
hvolp."
Þegar þau spurðu hann,
sagði pabbi: "3ú,þú ert
orðinn nógu gamall til þess.
En ef við gefum þér hvolp,
þá verður þú að elska hann
og annast hann vel."
"Clá, það skal ég gera!"
lofaði Benni.
"Á morgun þegar ég kem
heim úr vinnunni, skulum við
fara og velja þann sem þig
langar í. Ég veit hvert við
förum." Pabbi deplaði
augunum til Benna.
Næsta dag fóru þau öll í
bílnum hans pabba. Þau