Innsýn - 01.04.1984, Qupperneq 15
stæðist prófið. Ég hafði
grátbeðið hann fyri prófið.
Ég bað hann um að hjálpa mér
eins og hann hafði lofað að
gera, og hann hafði brugðist
mér. Margir dagar liðu án
bæna.
Svo var það að einn vina
minna nefndi við mig að
Satan væri að ná góðum tökum
á mér. í lokuðu herbergi
mínu talaði ég við Guð.
"Faðir," bað eg, "hvar
varst þú þegar ég þarfnaðist
þín? Hvers vegna leyfðirðu
mér ekki að komast í gegn?"
Smám saman liðu minning-
arnar um liðna atburði
gegnum huga minn; það sem
gerðist fyrir prófið
-dagarnir sem ég ráfaði um
og eyddi í ekki neitt;
klukkustundirnar sem ég
eyddi hér og þar; mínúturnar
sem ég eyddi í stefnulaust
rabb í símanum. Mér varð
ljóst af hverju mér hafði
mistekist. Ef ég hefði notað
þá almennu dómgreind sem Guð
hafði gefið mér hefði ég
staðist prófið. Aðeins með
því að leggja mikið á sig er
hægt að ná góðum árangri.
Ég stóðst næsta próf. •
Insight, september 1983
Árni Hólm þýddi
ALLT GETUR GERST
Hvíldardagsmorgunn einn
kom söfnuðurinn saman við
straumharða á til að vera
viðstaddur skírnarathöfn. Sá
sem framkvæmdi skírnina,
frekar lítill (herra)maður,
gerði sér grein fyrir, að
til þess að þeir sem hann
myndi skíra myndu leggjast á
móti straumnum (svo að fötin
væru siðleg) yrði hann að
standa í dýpra vatni en þeir
og snúa að árbakkanum.
Eftir hvern einstakling
sem hann skírði tók hann
óafvitandi eitt skref aftur
á bak út í dökkan álinn. Að
lokum kom að síðasta
einstaklingnum sem átti að
skíra, stórri konu. Þegar
hann hafði lokið við bænina
og var að skorða sig vel af
til undirbúnings fyrir
átökin framundan, lenti hann
allt í einu í djúpum hyl.
Bæði hurfu samstundis!
Safnaðarfólkið tók andköf
og beið eftir að sjá þau
birtast aftur. Þegar þau
komu upp svolítið neðar í
ánni, ætlaði allt um koll að
keyra af hlátri, því þar
flaut konan og presturinn
ríghélt í hana dauðahaldi!
Það tók töluverðan tíma að
koma á kyrrð á ný og ljúka
við skírnarathöfnina. •
Úr Insight, sept. 1983