Innsýn - 01.04.1984, Page 17
engin þörf á því að auglýsa
mistök þín. Margir (e.t.v
allir) munu aldrei vita að
þú gerðir einhverja vitleysu
nema þú farir að blaðra því.
Sparaðu þér ómakið.
Hvað gerist ef þú dettur
í tröpunum á ísilagðri
gangstéttinni eða um þínar
eigin fætur? Það fyrsta sem
þú gerir er að líta í
kringum þig og athuga hvort
nokkur hafi séð þig detta,
ekki satt? Áhorfendur valda
aðeins meiri vandamálum.
Þegar þér verður á slæm
mistök, ekki neita því, en
auglýstu það ekki heldur.
ANNAÐ ÞREP: TAKTU AFLEIÐ-
INGUNUM
Sýndu þroska - taktu
mótlætinu. Ungur háskóla-
nemi opnaði gler-útihurðina
á skautahöll með snöggu
sparki í handfangið
karatestíl. Þegar eigandinn
sá þetta kom hann hlaupandi
út á eftir honum og hellti
sér yfir hann. Allt sem
strákurinn gat gert var að
standa þarna og taka við
skömmunum, jafnvel þó
eigandinn ofgerði þetta.
Hann hafði jú sparkað í
hurðina, og eigandinn var
nýbúinn að skipta um hurð
vegna skemmda. Afsökun var
viðeigandi þó erfið væri.
Taktu afleiðingunum. Ekki
kenna öðrum um né eyða æsku
þinni í biturleika. Ekki
reiðast lögreglunni fyrir að
setja þig í fangelsi, ef þú
brýtur lögin, né skóla-
stjóranum fyrir að setja þig
í straff. Úr því þú gast
ekki staðið þig án þess að
klúðra, skaltu standa þig
með því að taka afleiðing-
unum með jafnaðargeði.
Á hinn bóginn skalt þú
ekki skapa þér kringumstæð-
ur. Þetta er þýðingarmikið.
Ekki hegna sjálfum þér með
því að neita sjálfum þér um
fyrirgefningu eða með því að
meðtaka ekki fyrirgefningu
Guðs. Með því að velta þér
upp úr samviskubiti gerir þú
lífið aðeins erfiðara.
Ekkert er ófyrirgefan-
legt. "Hvernig sem fortíð
þín kann að hafa verið.
Hversu aumt sem núverandi
ástand þitt kann að vera, þá
mun hinn meðaumkunarsami
frelsari koma á móti þér;
þú kemur til hans með allan
þinn veikleika, vanmátt og
vandræði, og hann vefur þig
kærleiksörmum sínum og
klæðir í réttlætisskikkju
sína. Hann færir þig fram
fyrir föðurinn, íklæddann
hinum hvítu klæðum síns
eigin lundernis. Hann talar
þínu máli við Guð, segjandi:
"Ég hef tekið stöðu syndar-
ans. Líttu ekki á þetta
afvegaleidda barn, en líttu
á mig." (Frá ræðustóli
náttúrunnar bls. 19).