Búskapur hins opinbera 1980-1991 - 01.05.1993, Page 5
Formáli.
Rit þetta fjallar um búskap hins opinbera á árunum 1980-1991. Með búskap
hins opinbera er átt við starfsemi ríkis, sveitarfélaga og almannatryggingakerfís.
Hér er þó undanskilin starfsemi fyrirtækja og sjóða í opinberri eigu enda er slíkri
starfsemi að jafnaði ætlað að standa undir sér með sölu á vöru eða þjónustu á
almennum markaði.
I ritinu er meðal annars að fmna yflrlit um tekjur, útgjöld og afkomu hins
opinbera. Birt eru sundurliðuð yfirlit og tölur dregnar saman fyrir hið opinbera í
heild. Jafnframt er Qallað um umfang hins opinbera í þjóðarbúskapnum og í því
skyni stuðst við mismunandi mælikvarða. Þá er gerð grein fyrir skuldum og
lánastarfsemi hins opinbera. Loks er gerður samanburður á afkomu og umsvifum
hins opinbera á íslandi og í öðrum aðildarríkjum OECD.
Uppistaða ritsins er talnaefni fyrir árin 1980-1991, en þó er einnig í því að fínna
bráðabirgðatölur fyrir árið 1992 eftir því sem þær liggja fyrir. Gerð er grein fyrir
þessu talnaefni í fyrsta hluta ritsins og þar er lögð áhersla á búskap hins opinbera í
heild.
Áður hafa komið út þrjú rit um sama efni; árið 1983, 1986 og 1991. Ritið sem
gefið var út 1991 spannaði tímabilið 1980-1989. Nú bætast við tvö ár, 1990 og
1991, en auk þess hefur eldra efni verið endurskoðað með hliðsjón af breyttum
uppgjörsaðferðum sem skýrðar eru í inngangi. Stefnt er að því að gefa út svona rit
árlega í framtíðinni með áherslu á næstliðin tvö ár, með endanlegu uppgjöri fyrir
fyrra árið og bráðabirgðatölum fyrir það síðara.
Á vegum Þjóðhagsstofnunar hefur Jóhann Rúnar Björgvinsson einkum unnið
að gerð þessa rits, tekið saman talnaefnið og samið skýringar.
Þjóðhagsstofnun
í maí 1993
Þórður Friðjónsson
3