Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Page 9

Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Page 9
legt, að bruninn eigi upptök sín miðskips, því reykurinn virðist koma þaðan. En hvernig kemzt ég upp í brú? Hvernig get ég aðvarað félaga mína? Það er útilokað, að komast eftir ganginum, sem er fullur af reyk. Sú leið er úr sögunni. Þá verður honum litið á lítið op í loftinu, sem hefur verið lokað með þeim hætti, að fella í það einskonar hlemm. Þetta op var einber tilviljun, en hvað getur ekki skeð með þessi endurbyggðu skip. Clifford Lemellour klæðist í skyndingu, stíngur hníf í buxnavasann og klifrar upp í efri koju. Hann skrúfar hlemminn lausan, ýtir honum upp og stíngur höfðinu upp um opið. Eins og druknandi maður teygar hann hreint og tært sjávarloftið, sogar það ofan í lungun, sem hafa þess fulla þörf eftir óloftið og reykinn. Hann sér óskýrt út frá sér, því augun fyllast af tárum af reyk, en hann sér þó, að dökkum roða slær á haf og himinn. Hann stirðnar upp af skelfinu! Skipið er eitt logandi eldhaf! Bjartur eldbjarminn blindar næstum augu hans. Glóðin, sem berst til hans með vindinum, brennur í andliti hans og höndum. Hann bregður handleggjunum fyrir andlitið til varnar þessum vítis- logum. Honum verður litið á báts auglurnar. En þar er enginn möguleiki til björgunar. — Clifford þurrkar sér um augun. Aftur og aftur. Það eru engir björgunarbátar í bátauglunum! Björgunarbátamir eru farnir, hafa veið teknir, eru nú líklega staddir í nokkurra sjómílna fjalægð frá brennandi skipinu. Jæja, hugsar Clifford, fyrst er nú að komast úr þessari rottugildru. Svo fer hann upp um opið og stendur von bráðar á þilfarinu. Hann læt- ur á sig sundvesti. Annaðhvort hefur hann snúist á áttinni eða skipið hefur vent, því reykinn leggur nú í öfuga átt við það, sem var og sjómaðurinn fær nú ráðrúm til að litast um. Hann flýtti sér sem mest hann mátti upp á aðalþilfarið. Það stóð í björtu báli. NýH s o s 9

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.