Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Qupperneq 13

Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Qupperneq 13
„Alcoa Roamer“ (rúml. 8 þús. lestir) tilkynnti áðan, að hann hefði tekið á slef skipið „Johann Altlers".*) Þeir komu að skipinu við Bahama-eyjarnar og ætla með það til Palm- Beach. Jæja, það er nú ekki svo mikið úrleiðis. Hann kemur frá Puerto Rico og er á leið til Pensacola. Fallega gert af honum, finnst þér ekki?“ „O, jú, rétt mun það vera. En hann gerir þetta nú víst ekki af einskærri góðmennsku. Ætli hann fái ekki vel útilátin björgunarlaun! Eða hvað heldur þú um það?“ „Gott og vel, kannski er það bara vegna björgunarlaunanna. En við þetta er nú samt fleira að athuga. Skipið heldur í áttina að nauðstöddu skipi með fullri ferð. Oft verður að breyta stefnunni um 180 gráður. Oft verður skipstjórinn að setja öryggi skips og áhafnar í nokkra hættu. Auð- vitað eru það hin æðstu lög á hafinu, að hjálpa þeim, sem hafa lent í háska. Nú, svo heppnast björgunin og reikningurinn er sendur. Þá byrjar orra- hríðin. Þá er ekki talað um riddaramennsku á hafinu og menn, sem hefur verið bjargað. Þá tala eigendur skipsins, sem bjargað var um þá sem björguðu, eins og væru þeir sjóræningjar af verstu tegund.“ Kuhs renndi ekki grun í, að orð hans áttu eftir að rætast og staðhæfing hans að sannast eftir fáeinar klukkustundir. „Jæja, vertu nú ekki svona æstur. Þú verður að gæta þess, að ofbjóða ekki hjartanu, það er svo veilt. Annars er ég á alveg sömu skoðun og þú. Jæja, nú verð ég að fara aftur upp í brú — gleymdu nú ekki að bjarga mörgum sálum. S O S !“ „Blessaður vertu ekki að þessu þvaðri! Þið þilfarsmenn talið gálauslega um þessa hluti og skiljið ekkert. Mér leiðist þetta þvaður sí og æ —SOS — Save our souls." „Nú, er þetta kannski ekki rétt?" svaraði þriðji stýrimaður. „Það er þó rétt í neyðartilfellum. Bjargið sálum okkar, er það ekki?“ „Það er jafnvitlaust fyrir því!“ svaraði loftskeytamaðurinn og var hinn æstasti. „En það hljómar þó vel.“ Þriðji stýrimaður nam staðar í dyrunum. „Jú, þar hefur þú rétt að rnæla. Áhrifin eru bara hljóðræn, ef svo má *) „Johann Ahlers“ er 1095 tonna skip brúttó frá Lenox-félaginu. Heimahöfn þess er Hamborg og þar var skipið smiðað árið 1951. Skipið gengur 11,5 sjómilur, áhöfn 16 manns. 13 Nýtt S O S

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.