Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Blaðsíða 25

Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Blaðsíða 25
En það stoðar lítið að hugleiða slíka hluti. Nú virðist öll hjálp harla fjarlæg. Síðar, er barizt var um björgunarlaunin, kemur þessi sæstrengur mjög við sögu. Vasleeskis neytir síðustu krafta til þess að reyna að handstyrkja sig upp sæstrenginn. Skyndilega gýs upp mikilk eldslogi á skipinu, sem blindar hann alger- lega. í sama bili skellur alda á honum og hann rennur niður strenginn. Þungi líkamans veldur því, að liann missir tak annarar handar á strengn- um og hann riðar til falls. Hann reynir með krampakenndu taki hinnar handarinnar að halda sér uppi, en allt kemur fyrir ekki, hann missir takið og fellur afturábak í djúpið. — □ --------- Rétt í sama mund leggur björgunarbátur nr. 4 frá Ocean Layer að hinu brennandi skipi framanverðu. Bátsverjar höfðu séð sjómanninn heygja sína örvæntingarfullu baráttu og komu nógu snemma til þess að draga hann upp í bátinn. Þá voru kraftar hans gersamlega þrotnir. Þá komu þeir auga á Clifford Lemellour, þar sem hann var á reki aðeins fáeina metra frá þeim. Þá er búið að bjarga öllum skipverjunum á sæsímaskipinu Ocean La- yer. — □ — Fjórum klukkustundum eftir móttöku neyðarkallsins hafði áhöfn Fla- víu, undir stjóm Gerhards Theune skipstjóra, bjargað öllum skipverjum Ocean Layer, 98 samtals. Á meðal þeirra, sem bjargað var, voru 12 amerískir og franskir síma- menn á vegum félags þess ,er sá um lagningu sæstrengsins. Aðbúnaður skipbrotsmanna var með ágætum. Allir fengu þeir hlý og góð föt, hásetar og yfirmenn á Flavíu létu þeim í té hvílur sínar til skipt- is og þeir höfðu frjálsan aðgang að öllum vistarverum skipsins til jafns við skipverja. Þrír menn af áhöfn Ocean Layer voru mjög sárir. Maurice Donce, vélamaður, hafði mjög. slæm brunasár í andliti. Ernest Boulsen, sem einnig var vélamaður, hafði meiðzt illa á handlegg og annar Nýtt S O S 25

x

Nýtt S.O.S.

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.