Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Page 30

Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Page 30
v Björgunarbátarnir frá „Ocean Layer“ róa til „Flavia Ehlert ákveður að leggja aftan til að Ocean Layer. Vírarnir, sem hanga niður úr bátsuglunum munu gera uppgönguna léttari. Hann klifrar fyrstur upp, en þegar hann kemur dálítið áleiðis, slær á móti honum þvílíkum glóðarhita og logum, að hann verður að láta sig renna aftur niður í bátinn. Þarna var ómögulegt að komast um borð, og meira að segja ekki hægt að dvelja þarna stundinni lengur. Þriðji stýrimaður skipar svo fyrir að farið skuli að framskipinu. Hér finna þeir enda slitna djúphafsstrengsins, sem enn hangir í rúll- unum, eins og Theune skipstjóri hafði séð í sjónaukanum, og sem átti eftir að verða mikilvægt sönnunargagn! Endinn á strengnum slæst fram og til baka eftir hreyfingu skipsins, en er of hátt, til þess að þeir geti náð til hans og komizt eftir honum upp á þilfarið. 8° Njtt S O S

x

Nýtt S.O.S.

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt S.O.S.
https://timarit.is/publication/1013

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.