Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Qupperneq 35
Þá neituðu eigendur skipsins, Submarine Cables, Ltd., að veita skips-
flakinu viðtöku á eftirtöldum forsendum:
„Skipið lítur ver út, en við gerðum ráð fyrir. Við yfirtökum skipið
ekki fyrst um sinn. Það er algerlega á ábyrgð Þjóðverjanna, sem hafa
dregið það hingað, 700 mílna vegalengd.“
Og enn segja eigendur skipsins:
„Skipið er okkar eign, enda þótt áhöfn þess hafi yfirgefið það. Fram-
koma Theune skipstjóra í þessu máli er ekki rétt.“
Theune skipstjóri lýsti yfir eftirfarandi:
„Eg stóð fast á því, að Bretarnir snéru ekki til baka um borð í skip
sitt. Annars mun sjóréttur fjalla um málið og væntanleg björgunarlaun.
Samkvæmt alþjóða sjóréttarreglunr var ég í mínum fulla rétti.“
Ross skipstjóri á Ocean Layer:
„Við erum af öllu hjarta þakklátir skipstjóranum á Flavia fyrir björg-
un okkar úr sjávarháska!"
En seinna sagði hann: „Björgunin fór ekki fram samkvæmt alþjóða-
reglum!"
Fyrsti stýrimaður á Ocean Layer bætti við:
„Áður fyrr hefði þetta verið kallað sjórán — nú björgun!"
Og fleiri af því skipi tala í sama dúr.
Forstjórar skipafélagsins, sem átti Flavia sögðu, að þeir gætu á þessu
stigi málsins ekkert sagt um fjárhagshlið þess.
Forstjórar Submarine Cables, Ltd.:
„Skipið verður ekki eign björgunarfélagsins 1 ‘ ‘
Dr. Hasche, lögfræðingur, forstjóri skipabankans:
„Ef skip er orðið rekald eða flak, getur skipstjóri ekki krafizt þess
seinna, að fara um borð í það.“
Talsmaður Lloyds-tryggingafélagsins sagði: „Þetta er mjög einkenni-
legt tilfelli. Auðvitað verður fullkomin rannsókn látin fara fram.“
Það er rætt um fjárkröfur, en enginn minnist lengur á björgun nær
hundrað manna eða það afrek, að fara um borð í brennandi skip og
draga það til hafnar.
Aðeins ein brezk rödd viðurkennir þetta björgunarafrek Flavíu og
áhafnar hennar. Maðurinn er Tennant, formaður brezka sjómannasam-
bandsins. Hann sendi Theune skipstjóra og áhöfn Flavia svohljóðandi
skeyti:
„Þér eigið skilið heiður og viðurkenningu fyrir björgun 98 brezkra
Nýtt S O S
35