Nýtt S.O.S. - 01.06.1960, Side 36
skipbrotsmanna á Atlantshafi. — Meðan til eru menn, sem án tillits til
þjóðernis, eru reiðubúnir til gagnkvæmrar hjálpar á hættustund, þurfa
sjómenn á höfunum engu að kvíða um hið alþjóðlega bræðralag á hafinu."
Flavia á óumdeilanlega sinn merka þátt í þýzkri siglingasögu, þó ekki
sé skipið gamalt. Björgunarafrekið, er Ocean Layer var dregin til hafnar,
á ekki að fyrnast. Þessi SOS-frásögn á einmitt að stuðla að því, að at-
burðurinn falli ekki í gleymsku.
Þann 22. júní 1959 um hádegisbilið lagði Flavia að bryggju í Ham-
borg við Schluppen 73B.
Og meðan lögfræðingar og sérfræðingar Breta einbeita sér að því, að
hafa af réttum aðilum björgunarlaunin, er næsta ferð skipsins undir-
búin.
Nú er Flavia ekki lengur uppsláttarefni á forsíðum heimsblaðanna.
23. júní lagði Flavia af stað frá Hamborg til Casablanca um Rotter-
dam og Antwerpen.
ENDIR.