Nýtt S.O.S. - 01.09.1960, Page 22
með venjulegum hætti, en að því loknu hélt hún áfram leiðar sinnar til
Brasilíu. Þegar flugvélin flaug yfir Shannon-fljótið, starði tylft nauð-
staddra manna á þessa flugvél og hélt, að þar væri bjargvættur þeirra á
ferð. Engan í þessari flugvél grunaði, hve stórkostlegum vonbrigðum
og skelfingu það olli, er ljós hennar hurfu út í sorta næturinnar.
Og enn óx ótti næturvarðanna í flugturninum.
„Mér er það hreint óskiljanlegt, Birthley, að jafn samvizkusamur mað-
ur og Viruly fljúgi með biluð loftskeytatæki yfir Atlantshafiðl Eg get
alls ekki trúað því,“ mælti loftskeytamaðurinn, um leið og hann tók
af sér heyrnartækið. Hann barði í borðið.
„Ekkert, ekkert fréttist af Triton! Nú er klukkan hálffjögur, næstum
klukkutími síðan vélin lagði af stað, og á þeim tíma ætti að vera löngu
búið að gera við tækin þó einhver smábilun hefði orðið. Það er eitthvað
ekki í lagi! “
Eglinton starði á loftskeytamanninn og þagði. Þetta var einmitt það.
sem hann sjálfur hafði óttazt allan tímann. En hann hafði reynt að varpa
af sér áhyggjunum og talið sjálfum sér trú um, að Viruly hefði ekki tal-
ið loftskeytasamband bráðnauðsynlegt, því hann hafði lent með morg-
unsárinu án radio-miðunar. En Eglinton fann það sjálfur, að hann vai
að blekkja sjálfan sig, var að reyna að sefa órólegan huga sinn. Nú á-
sótti hann óróleiki og illur grunur í vaxandi mæli. Hann vék máli sínu
að Birthley og var augsýnilega taugaóstyrkur:
„Þetta er að verða ískyggilegt. Eg óttast það versta . . .“
„ . . . Já, en radarinn, maður!" sagði Birthley hálf hikandi. „Við sáurr
þó sjálfir flugvél, sem hélt í vesturátt!"
„Við höfum nefnilega ekki séð flugvél, Birthley, heldur bara ljósblett.“
„Og frá hverju ætti þessi dularfulli ljósblettur svo að stafa? Ókunn-
ug flugvél? En þó hún hefði ekki látið vita af ferðum sínum, varð húr;
þó að fljúga yfir írland og hefði þá átt að sjást í öðrum radarstöðvum.
Eg á bágt með að trúa, að flugvél fari yfir landið og vestur án þess að
hún láti frá sér heyra.“
„En það er samt alls ekki víst, að þetta liafi verið Triton,“ svaraði
Eglinton efablandinn og gekk að stóra veggkortinu, sem sýndi írland og
hluta af Atlantshafinu. Svo lét hann fallast niður á stól og var miður
sín.
„Nú, við skulum segja, að engin flugvél önnur en Triton hafi verið
á ferðinni. Hvað kæmi þá til athugunar? Kannski fljúgandi diskar? -
22
Nýtt S O S