Nýtt S.O.S. - 01.09.1960, Qupperneq 23
En ég er bara ekki óhræddur um, að einhverjar truflanir í geimnum
geti hafa komið fram á radarnum. Rafmagnað loft eða eitthvað þes^
háttar. Kannski eitthvað áður óþekkt?“
Birthley yppti öxlum.
„Eg skal ekkert um það segja. Eg er því miður enginn sérfræðingur í
þessari grein.“
„Gjörið svo vel að gefa mér enn einu sinni samband við Baker,“ svar-
aði Eglinton ákveðinn.
Birthley snéri svörtu númeraskífunni og rétti flugumferðarstjóranum
heyrnartólið.
„Halló, Baker! Mér líst ekki á þetta. Það hefur enn ekkert frétzt
af Triton. Hvað á ég að halda um þetta?“
„Sorry, en þér sáuð flugvélina sjálfur í radarnum hjá mér . . .“
„Ekki Triton, heldur bara endurskin af ljósi. Hver getur sannað mér,
að þetta hafi verið Triton? Getið þér fært óyggjandi sannanir fyrir því?“
„Sannanir? Hvað á að sanna? Hvaða flugvél ætti þetta að hafa verið
önnur en Triton? Útilokað, að um aðra geti verið að ræða . . .“
„En Baker, er ekki hugsanlegt, að þetta hafi verið eitthvað sérstakt
fyrirbæri, sem sást í radarnum?“?“
„Fyrirbæri? kannski galdrar, draugagangur. Það væri kannski skýring
út af fyrir sig, en hingað til hefur slíkt ekki komið fyrir í okkar starfi!
Nei, verið þér bara rólegur. Triton er nú á þessari stundu nokkur
hundruð mílur í burtu héðan, og hvorki loftskeytamaðurinn né radarinn
getur haft beint samband við hana. Góða nótt, Sir!“
„Góða nótt, Mr. Baker!“
Eglinton lagði símtólið á, gramur á svip. Svo kveikti hann í vindlingi,
líklega þeim þrítugasta þessa nótt.
Baker hafði rétt fyrir sér, hvað það snerti, að ekki var lengur unnt
að ná sambandi við Triton. Fjarlægðin var of mikil. En nú kom líka
hver flugvélin af annarri, sem voru ýmist að fara vestur eða koma þaðan.
Þær voru spurðar um Triton, en enginn var neins vísari.
Eglinton vissi, að á honum einum hvíldi ábyrgðin. Henni gat enginn
létt af honum — heldur ekki Baker. Hann varð enn þungt hugsandi.
Nei, Viruly mundi ekki leggja upp í vesturför með biluð loftskeytatæki
og hafa 51 farþega innanborðs, auk 5 manna áhafnar. Viruly var of
reyndur og samvizkusamur til þess.
Nýtt S O S
23