Nýtt S.O.S. - 01.09.1960, Side 24
Eglintcn hrökk upp úr þessum hugsunum við það, að síminn hringdi.
Birthley greip símtólið og kynnti sig, íékk það svo Eglinton:
„Það er tollstöðin, Douglas tollþjónn."
„Þetta er Douglas á tollstöðinni. Getið þér ge£ið okkur upplýsingar
um Triton, Mr. Eglinton?“
„Nei, því miður. Hefur sennilega haldið áfram ferðinni með biluð
loftskeytatæki."
„Eg veit ekki, Mr. Eglinton, hvort yður finnst þetta óþarfa reki-
stefna, en mig langar til að vekja athygli yðar á einu atriði í sambandi
við brottför flugvélarinnar.“
Eglinton hnykkti við. Rödd tollþjónsins var dálítið hikandi, en al-
varleg.
„Já, gjörið svo vel, Mr. Douglas. Hvað liggur yður á hjarta?“
„Einn okkar manna, Thomas Baxter tollþjónn, sem annaðist tollaf-
greiðslu hjá Triton, segist hafa tekið eftir því, að hreyflarnir hafi gengið
eitthvað óreglulega við flugtak. Eg get náttúrlega ekkert fullyrt um þetta,
en ég hélt . .
„Hvað segið þér?“ greip Eglinton fram í. „Og þér segið frá þessu
fyrst núna?“
„Mér var ekki sagt frá þessu fyrr en núna,“ svaraði Douglas. „Og það
var a£ hreinni tilviljun, að maðurinn hafði orð á þessu.“
„Gjörið svo vel að senda manninn hingað til mín tafarlaust! Eg hef
aldrei vitað annað eins og þettal" hrópaði Eglinton og skellti tólinu á.
Eglinton sagði Birthley og Ellis frá þessari nýju frétt tollþjónsins.
Skömmu seinna gekk Thomas Baxter, tollvörður nokkuð við aldur,
inn í herbergið og var hikandi í framgöngu. Hann hafði verið tollþjónn
á Shannon síðan 1948. Hann var sérlega trúr í starfi, afskiptalaus um
annarra hagi og heldur ómannblendinn.
„Góðann daginn, herrar mínir!“ heilsaði hann hinn rólegasti.
„Sælir!“ svaraði Eglinton, snöggur í bragði og benti manninum að fá
sér sæti.
„Mr. Douglas hefur sagt mér, að þér hafið veitt því eftirtekt, að hreyfl-
arnir í Triton hafi gengið óreglulega við flugtak. Er þetta rétt?“
„Já, Sir!“
„Hvað er þetta maður!“ hrópaði Eglinton æstur og gramur. „Þetta
getur haft alvarlegar afleiðingar. Skiljið þér það ekki?“
„Jú, Sir!“
24
Nýtt S O S