Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Blaðsíða 3

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Blaðsíða 3
2. árg 5. hefti. ÞJÖDI Sigurður Haraldsson frá Tjörnum: Á barmi Mér gafst kostur á að sýna þessu greinarkorni dagsins Ijós, og taldi ég ekki rétt að hafna því boði. Af vörum eins okkar mætustu manna, féllu eitt sinn þessi alþekktu og lærdómsríku orð: „Til þess eru vítin að varast þau.“ Okkur mun öllum koma saman um það, að orð þessi séu lieilræði, sem liver og einn sé maður að meiri fyrir að taka til eftirbreytni. En það er ekki æfinlega sem auð- veldast, að koma auga á hætturnar, sem framundan eru; þær leynast ótrúlega þeim, sem eigi eru því var- færnari. Það er ekki víst, að um sé að kenna fífldirfsku eða þá vankunn- áttu hermannsins, þótt hann falli fyrir morðtólum fjandmanna sinna. Þau leynast undir fótum hans, jd'ir höfði hans, að haki honum og vfir höfuð að tala allt umhverfis hann. Loftið er eitrað, sem að vitum lians strevmir, og ef til vill svífur að hon- um ótölulegur grúi bakteria, sem valda hinum hryllilegustu sjúkdóm- um. Hermanninum er því hein lifs- nauðsvn að skerpa skilningarvit sín g lötu nar. Sigurður Haraldsson. af alefli og veita hverju smá-atviki nákvæman gaum, ýtrustu athygli. Okkur þykir þessi saga hermanns- ins eigi glæsileg, þar sem hann get- ur livergi stigið niður fæti, án þess að eiga á hættu, að ógurleg sprengja tæti hold hans frá beini. Og við hrósum liappi, að hér skuli ekki vera til her eða hernaðartæki. En það er til hliðstæða þessara hluta i þjóðfélagi okkar, og hún

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.