Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Blaðsíða 16

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Blaðsíða 16
206 Þ J Ó Ð 1 N Landamæri Finnlands hins nýja urðu svijiuð landamærum hins gamla rússneska stórhertogadæmis. Finnar fengu íslausa höfn, Petsamo, við Norðuríshafið. Og þó að all- margir Finnar yrðu kvrrir innan Iandamæra Rússlands, reyndi finnska stjórnin að tryggja réttindi þeirra eftir föngum, því að hún fékk loforð Rússa-stjórnar um að þeir skyldu mynda pólitíska, fjár- liagslega og menningarlega heild. Rússar stóðu ekki við loforðin. Það kom slrax í Ijós árið 1921. Finnar kærðu þessar vanefndir Rússa fvr- ir Þjóðabandalaginu. Bandalagið vildi miðla málum í deilu þessari, en það bar engan árangur, þar sem Rússar neituðu að laka nokkuð það til greina, sem frá Þjóðabandalag- laginu kæmi. Smám saman jafnað- ist þessi ágreiningur. En 1931 versn- aði samkomulagið aftur. Það staf- aði af því að Rússar fóru að reka Finna, er bjuggu i Ingermannlandi, burtu frá heimilum sínum og setja þá niður í ýmsum útkjálkum ríkis- ins. Um þessar mundir tók „Lappó“- hreyfingin að láta til sín taka í Finnlandi. Henni var stefnt gegn kommúnistum. Samkomulagið var þvi ekki hið bezta milli Rússa og Finna um þessar mundir. Það batn- aði þó brátt. Og árið 1932 gerðu þeir hlutleysissáttmála á milli sín. Finnland hefir alltaf haft það í liuga, að Rússar eru nágrannar þess, og hefir það sett svip sinn á utan- ríkismálastefnu Finna. Þeir hafa haft það svo fast í huga, að síðan Finnska strandvarnarliðið í Ilangö.

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.