Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Síða 12

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Síða 12
202 Þ J Ó Ð I N þjóðum. 0g frelsið og sjálfstæðið kom ekki allt í einu. 1874 fengum vér í liendur lög- gjafarvaldið. 1904 var framkvæmd- arvaldið flutt inn í landið, og þriðji þýðingarmikli hornsteinninn und- ir því þjóðskipulagi, sem vér búum við, var lagður með lögum nr. 22 frá 1919 um innlendan hæstarétt. Jafnframt því, sem vér byrjuðum að endurheimta frelsið 1874 og til 1918, eða í 44 ár, hófst hægfara ]iró- un á mörgum sviðum þjóðlifsins, en hér er hvorki timi né tækifæri til að rekja þá voraldarsögu hins is- lenzka þjóðlífs, heldur athuga lítil- leaa hver árangurinn hefir orðið af fullveldinu i þau 20 ár, sem liðin eru siðan. Það má þó ekki ganga fram hjá þvi heillaspori, þegar stofnað var Eimskipafélag Islands, árið 1915, Illa hefðum vér verið staddir i heimsstyjöldinni, ef hinn litli skipa- stóll félagsins hefði þá eigi verið til. Þó fvrstu tvö skrefin, 1874 og 1904, væru stór og þýðingarmikil, var þriðja skrefið, 1918, hið stærsta, því þá var ísland viðurkennt frjálst og fullvalda riki, og þótti það þá mikilsverð auglýsing um sjálfstæð- ið, er islenzki fáninn blakti við hún á hverju islenzku skipi, sem sigldi um höfin blá, til framandi þjóða. Að vera frjáls og fullvalda, það voru glæsileg orð, þegar litið er til þess mótsetta, að vera fjötraður með athafnir sínar sem ófjárráða mað- ur. — En hvernig höfum vér notfært okkur frelsið? Það er sagt, að meiri vandi sé að gæta fengins fjár en afla þess. Og höfum vér ekki gætt oss hófs við brostin bönd og fjötra. Hverjar eru staðreyndirnar: Stórstígar fram- kvæmdir i jarðrækt, listrænum byggingarstil og skipulagi kaup- túna, margskonar tækni hagnýtt i sambandi við það, að leystar hafa verið úr læðingi orkulindir lands- ins, svo sem jarðhitinn og vatns- orkan. Þá má þess minnast, að mjög mikið hefir verið unnið að heil- brigðismálum beint, og óbeint með auknu hreinlæti og líkamsþjálfun. Loks má ekki gleyma því, sem full- komið sjálfstæði lagði á herðar Is- lendingum, en það var að semja og heyja baráttu við aðrar þjóðir i sambandi við verzlunarviðskipti og afurðasölu; hefir það verið erfitt verk, annarsvegar vegna þeirrar stefnu stórþjóðanna, að krefjast við- skiptajöfnuðar, en hinsvegar vegna hinnar einhliða framleiðslu ís- lenzkra atvinnuvega. Sjálfstæðið hefir i reyndinni fvrir þjóðlifið verið sem vorið fvrir gró- anda landsins, og ávextirnir i næstu framtíð þurfa að verða þeir, að úr hverjum einstakling, fvrir atbeina löggjafarvaldsins, framkallist sú orka, sem ]iar er óleyst. Það má ekki, ef vel á að fara. grafa gull aðeins úr örfáum, held- ur öllum einstaklingum þjóðarinn- ar. sem til verður náð. En því miður: „Ennþá i heimin- um margt hvað hið mesta, sem mannkvnið eignast. hið djarfasta bezta, er ræktarlaust fóstrað i kofa-

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.