Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Page 9
Þ J Ó Ð I N
199
kr. 2.062.97 og á Yífilsstaðabúinu
kr. 4.461.03. Þessi halli hefir orðið
þrátt fyrir það, að „til kostnaðar
við rekstur þessara búa eru ekki
reiknaðir neinir vextir af böfuðstól
og heldur ekki fyrning. Til tekna
er búunum reiknaður hver mjólk-
urlítri, er þau framleiða, á 28 aura
við fjósdvr. Afkoma þessa búskap-
ar er algerlega óviðunandi, en ekki
verður ráðsmönnum búanna gefin
sök á þessu, þeir hafa orðið að fara
eftir fyrirmælum stjórnar spítal-
anna um allt það, er mestu máli
skipti í starfsliáttum búanna, en af
ýmsum þeim fyrirskipunum liefur
orðið mikill kostnaðarauki. Myndi
það opinbera ekki geta komizt að
betri skilmálum við starfrækslu bú-
anna? Og ef svo væri ekki, væri þá
ekki rétt að selja búin á leigu? Mætti
að sjálfsögðu tryggja hælunum
næga mjólk við ekki hærra verði
en þau greiða nú búunum fyrir
liana.“ (22. aths.).
Viðbótar athugasemdir
Jóns Pálmasonar.
Flokksblöð Framsóknar kostuð úr
ríkissjóði.
1 1. athugasemd sinni segir Jón
Pálmason: „Stofnanir ríkisins verja
árlega allmikilli upphæð til auglýs-
inga, og er þeirri uppliæð, að því
er virðist, varið til að styrkja blöð-
in, fremur en að þarfir stofnananna
kalli á þessi fjárframlög.
Ég hefi dregið saman þessar upp-
hæðir hjá eftirtöldum stofnunum:
Afengisverzluninni, Tóbakseinka-
sölunni, Viðtækjaverzluninni, Bif-
reiðaeinkasölunni og Landssmiðj-
unni, og er það samtals kr. 19.704.00
Þetta skiptist þannig á blöðin:
Nýja dagblaðið......... kr. 5338.00
Alþýðublaðið........... - 4081.00
Morgunblaðið ..........— 828.00
Vísir .................— 700.00
Þjóðviljinn............ — 333.00
Önnur blöð og tímarit . — 8424.00
Auk þessa er vitað, að Tóbaks-
einkasalan a. m. k. fær allverulega
upphæð (1936 kr. 4500.00) erlendis
frá til auglýsingastarfsemi. Þetta
sést ekki á reikningi þeirrar stofn-
unar 1937 og hafa því yfirskoðun-
armenn krafizt skýrslu um það, en
hún er ókomin.“
Hjá fjármálaráðherra verður fátt
um svör við þessum aðfinnslum
J. P., en hann viðurkennir, að for-
stjóri tóbakseinkasölunnar hafi
milligöngu um auglýsingar fyrir er-
lend tóbaksfirmu.
Jón Pálmason gerir þvi svofellda
tillögu til úrskurðar: „Það sem at-
hugasemdin fjallar um, er óþörf
fjárevðsla til auglýsinga og hlut-
dræg notkun fjárins. Svarið gefur
tilefni til rannsóknar, og er athuga-
semdinni skotið til aðgerða Alþing-
is.“ —
Stjórnarráðskostnaðurinn.
Samkv. 8. aths. hefur kostnaður
við stjórnarráðið farið fram úr á-
ætlun fjárlaga um kr. 42.466.68. í
þeirri upphæð kennir margra grasa.
Meðal annars hefir Ólafur Friðriks-
son fengið „fyrir umsamið verk“ kr.
2500.00, án nokkurrar frekari skýr-
ingar. Þegar J. P. spyr, hvaða „verk“
þetta sé, svarar ráðuneytið, að hann