Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Qupperneq 11
Þ J Ó Ð I N
201
arinnar er kr. 69,218.35, þar af laun
og ferðakostnaður kr. 45.706.93. Á
allri starfsemi nefndarinnar, nema
sölu á hraðfrystum fiski fyrir Ev-
rópumarkað, er tap. Það sundurlið-
ast þannig:
1. Tap á Ameríkufiski kr. 95.561.73
2. Tap á rækjum ... — 98.37
3. Tap á niðursuðu . . — 13.386.85
Alls kr. 109.046.65
Frá þessu dregst liagn-
aður á hraðfnrstum
fiski ............... kr. 22.050.42
Tapið því .............. kr. 86.996.23
Auk þess afskriftir af
eignum, sem munu
sizt of hátt reikn-
aðar ................... — 30.979.91
Samtals kr. 117.976.14
Þar við hætast vextir kr. 3796.43
og kostnaður við iðn-
framleiðslu ............— 984.78
Alls kr. 122.757.35
Fyrir utan þetta eru svo veittir
stj7rkir og kostnaður við fiskirann-
sóknir og veiðitilraunir.
Mundi eigi rétt að leggja þessa
nefnd niður og fela þau verkefni,
sem nauðsynleg teljast af starfsemi
hennar, öðrum, sem kunna á þeim
betri skil?“
Þessi fáu dæmi eru aðeins lítil
sýnishorn af fjármeðferð ríkisstjórn-
arinnar 1937.
PÁLL BJÖRGVINSSON :
Sjálfstæði íslands.
Páll Björgvinsson.
Ávarp flutt í þinghúsi Hvolhrepps að Stór-
ólfshvoli 1. des. 1938, á samkomu, er hald-
in var fyrir Hvolhrepp í tilefni af 20 ára
afmæli sjálfstæðis Islands.
Góðir áheyrendur!
Fyrsti desemlier 1918 var merkis-
dagur i íslenzku þjóðlífi; ekki fyrir
það, að þá risi hér upp nýr him-
inn og ný jörð; nei — því „söm er
hún Esja og samur er Keilir“ enn
í dag — heldur fyrir liitt, að þá liófsl
lokaþátturinn í baráttu þeirri, er
Jón Sigurðsson forseti hóf, fyrir
endurheimt frelsis hinnar íslenzku
þjóðar.
Þessi barátta var bæði löng og
ströng, þó eigi kostaði hún hlóð-
fórnir, eins og hjá mörgum öðrum