Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Síða 15

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Síða 15
Frá Helsingfors. ráðið um þá miklu samúð, sem þeim er sýnd um öll lönd. Það sem er þyngst á metunum, er það, að þeir hafa ekkert til saka unnið. SaklejTsi þeirra er svo augljóst, að Rússar hafa enga tilraun gert til þess að fella sök á hendur þeim, þó að eigi liafi viljann vantað. Þeir liafa að vísu haldið því fram, að Finnar liafi ráðizt á rússneska landamæraverði og liafið styrjöld- ina. En óliætt er að fullyrða, að enginn óhrjálaður maður fæst til þess að trúa slíkum þvættingi. Finnland er 338 þús. Land og saga. ferkilómetrar að stærð. Það er flat- lent, skógivaxið og vötnótt. íbúarn- ir eru liðlega 3% milljón. Finnar lutu Svíum i margar ald- ir. Þeir gtáu sér hinn hezta orðstírr fyrir karlmennsku og hugprýði i styrjöldum Svía. „Sögur herlækn- isins“ og ljóðasafnið „Svanhvít“ hera þessum dyggðum þeirra mörg og fögur vitni. Rússar lögðu Finnland undir sig árið 1809, eftir drengilega vörn Finna. Þeir stofnuðu þar stórher- togadæmi. Finnland laut Rússum þar til 1917, þá braut það af sér hlekkina og varð sjálfstætt. En frelsisbaráttan var liörð og löng. Finnar urðu hæði að berjast við innlenda og erlenda fjandmenn. — Borgarastyrjöld skall á. Þeir ,rauðu‘ voru studdir af Rússum. Þeir ,hvítu‘ nutu stuðnings frá Þjóðverjum. — Mannerheim, núverandi yfirhers- höfðingi Finna, var foringi „lwitlið- anna“ í frelsisstyrjöldinni. Þessum styrjöldum lauk þannig, að „hvíti1 herinn vann algeran sigur. Finnar sömdu frið við Rússa árið 1920.

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.