Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Síða 19

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna - 01.10.1939, Síða 19
Þ J Ó Ð I N 209 HJÖRLEIFUR HJÖRLEIFSSON ; Hugleiðingar Það gleður mig alltaf, þegar góðir menn sýna áhuga fyrir leiklist, og þvi var það, að þegar ritstjóri „Þjóð- arinnar“ bað mig að skrifa eitthvað fyrir sig um leiklist, þá lofaði eg því með ánægju. En eg verð að játa að þetta, að skrifa eitthvað um leiklist, er talsvert rúmt hugtak. Á hverju iá að hvrja og livar enda? Og hvað ætti innhaldið að vera? Það liafa sem sé verið skrifaðar margar bækur og stórar um leiklist, án þess að henni væri í nokkurri einni, eða jafnvel fleirum saman, gerð full skil. Og vit- anlega er alls ekki hægt að gera það í smágrein. Það er hægt að taka fyrir einstök alriði, eitt leikrit, eina leik- sýningu, og skrifa um það heilmikið mál. Það gæti t. d. verið gaman að taka til atlmgunar ný íslenzk leikrit og kryfja þau til mergjar. Eða ein- hvern einstakan leikara, til þess að hafa dæmi, er allir gætu séð eða lieyrt. Og ef til vill verður tækifæri til ]jess að gera eitthvað þvílíkt siðar. En í þetta sinn verður aðeins drepið lauslega á liitt og þetta. Það er oft sagt, að leiklistin sé list líðandi stundar. Og víst er um það, að til þess að ná tilgangi sínum, verð- ur leikhúsið að mótast af samtíð sinni, og þeirri þjóð, sem það starfar með. En að öðru leyti er þetta ekki réttnefni, því áhrif leiklistarinnar ná langl út vfir líðandi stund. Það er um leiklist. Hjörleilur Hjörleifsson. meira að segja oft svo, að þau áhrif, sem fyrst gera vart við sig frá leik- húsinu, eru aðeins á yfirborðinu, og liverfa jafnharðan. En hin varanlegu ‘ menningaráhrif koma aðeins smjám saman, og þeirra gætir ef til vill ekki fvr en seint og síðar meir. Satt að segja er ekki hægt að gera neina ahnenna grein fvrir leiklist- inni. Ekki hægt að búa henni neinn ramma. Hún er fyrst og fremmst skapandi list, og verða þessvegna engar skorður settar. Og það er ein- mitt vegna þess að hún er skapandi list, að hún er eilíft deiluefni. Nýir timar koma með ný viðhorf, og þar sem leikliúsið er ætið vettvangur sinnar samtíðar, eða réttara sagt á að vera það, verður svo oft árekstur

x

Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðin: tímarit sjálfstæðismanna
https://timarit.is/publication/1014

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.