Árvakur - 01.02.1932, Side 8

Árvakur - 01.02.1932, Side 8
6 - Á R V A K U R 7. D. að ákveða það; að fara upp í'Öskjuhlíð. Eftir hádegi fðram við pökkrir strákar upp eftir. Þegar^við komurn uppeftir, fórum við í cWboy-leik, og vorum viö lengi í honum. Og svo þegar við vorum bú|nir að leika okkur hokkuö lengi, kemur strákur til okkar; sem var með okkur, en var á leiðinni heim; cg segir okkur; aö þaö séu ^strákar úr Pólunum að koma og gera árás á okkur. Svo fórum við að undirhúa orustuna. Svo sjáum við hvar strákar koma þjótandi, en fara eipthvað suður eftir, En þá munum við eftir því; að við áttum dót í íielli þar suður frá. Og svo hlupu nokkrir strákar úr okkar liði að' ná í dótið; en þegar þeir eru á leiðinni til okkar; réþust Pól- /erjar á strákana úr okkar liöi og heimtuðu af þeim tréhníf; sem pinn strákurinn var með. En þegar Pólverjarnir voru að heimta af stráknum hnífinn; sluppu nokkrir strákar úr okkar liði og sögðu okkur tíðindin; og svo ætluðum við að fara til ^eirra. En þá sjáum við hvar strákurinn kemur, en þeir náöu ekki hnífnum af honum. Svo ætluðum við að halda áfram að le’.ka olckur, en við gátum það ekki fyrir strákunum; af því að þeir voru alltaf að kasta í okkur. Svo lögðum við af stað heim; en á þeiðinni heim fóru strákarnir að heim- ta af okkur snöru, sem viö vorum meÖ; en við létum hana ekki. Þegar við komurn í nánd við Pólana; fór einn strákurinn niöur í Póla; til að ná í fleiri stráka; og þegar viö komum aö Hafnarsmiðjunni; kom stór hópur á eftir okkur af strákum; og þar á meðal var Jón 6." Jóna asson með reidda hnefana. En þeir höfðu ekki mikið upp úr þeirri ferð, ekki nema ómakið. &uðtnandur Hikulásson. VEIÐIPÖRIN. tr ir u u u u u u u T? u TT TT u T? u u u Tí u u Eg var snúningadrengur í sumar í Bakkárholtsparti í Ölfusi. Og líkaði mér það ágætlega. Það var snemma einn sunnudagsmorgun; að allt fólkið var að drekka kaffi; og þá var barið að dyrurn. Sá; sem fór til dyra; sagði okkur; að það væru komnir 4 menn sunnan úr Reykjavík; og þá hjóst ég við ég^mundi þekkja eitthvað af þeim; og klæddi mig í snatri og fór fram í stofu. Og þá sá é^; að pahbi og tveir 'bræöu.r mínir voru komnir og "bróðir húshómda míns; og voru þeir á leið fram í Arnarbæli og ætlun þeirra aö fá aö draga á ®lfus- á og veiða silunga. Og þegar é^ heyrði það; þá langaði mig mjög mikið til að fara meá þeim; þvi^að^mér þykir mjög gaman að veiði- skap. Og mér lá við að spyrja húsbónda minn; hvort ég mætti fara; en húsbóndi minn varð fyrri til og spurði mig hvort mig langaði ekki með þeim. Varð ég mjög feginn og sagði að svo væri. Og svo drukkum við mjólk; áður en við fórum; og lögðum fljótlega af stað og fór ég með þeim að bílnum. Svo fórum við sem leið liggur og ókum alveg fram á Arnarbælishlað. Voru þar fyrir tveir menn; sem ætluðu aö vera með í veiðiförinni; annar sunnan úr Reykjavík og hinn ráðsmað- ur í Arnarbæþi; sem átti að vera leiðsögumaður. Bát fengum við á næsta bæ; í Osgerði. Svo var byrjað á veiðiskapnum; og ætla ég að lýsa hvemig við drógum á. Netið var látiö upp í bátinn og honum var róúð út á ána og netið gefið út jafnóðum. Netið var dregið und- an straummom, og eftir svolitla stund var bugað, þaö er aö bátnum var róið að landi; og svo fóru allir úr bátnum og netið var dregið að ].andi. Þá var netið komið hérumbil í hálfhring. Svo voru si].ung- arnir teknir jafnóðum upp á land. Við fengum 9 í fyrsta drætti.

x

Árvakur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árvakur
https://timarit.is/publication/1033

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.