Byggingarlistin - 01.01.1951, Síða 7
fjárhagsgeta þeirra hins vegar oft lítil og
þau hafa haft takmarkaða getu og áhuga fyr-
ir því aff ná bættum afköstum meff nýjum
og hentugum aðferðum, ekki sízt vegna þess,
aff slíkar aðferðir hefðu krafizt framleiðslu
í stærri stfl og meff betri skipulagningu.
Þetta ástand er ekki hvað sízt afleiðing þess,
hve gróðavænleg þessi iðngrein hefur verið.
Einstaklingsframtakið hefur því á þessu
sviði alls ekki náð þeim árangri í bættri
tækni og afköstum, sem því hefur tekizt á
flestum öðrum sviðum.
Afnám árstíðasveiflanna er enn ein veiga-
mikil ástæða fyrir afskiptum þess opinbera
af byggingariðnaðinum. Fyrir því máli hef-
ur verið gerð nokkur grein í skýrslu um
fjárfestingarmálin, og mun þaff ekki nánar
rætt hér.
Þau sjónarmið, er hér hefur verið lýst,
mynda grundvöll þeirrar stefnu í bygging-
armálum, er verið hefur að ryðja sér til
rúms s.l. 15 ár og endanlega hefur verið
mörkuð í umfangsmikilli löggjöf á árunum
eftir styrjöldina.
2. Hin nýja stefna f byggingarmálum
Hin nýja stefna í byggingarmálum er í
stuttu máli fólgin í því, að ákveffnar kröfur
hafa verið viðurkenndar, er íbúðimar í
landinu sem heild þurfa að uppfylla, áætl-
anir hafa verið gerðar um það, hve mikið
þurfi að byggja af íbúðum, endurbæta og
rífa, til þess að þessu setta markmiði verði
náð á tilteknum tíma, og rannsakað hefur
veriff, hvaffa ráðstafanir af hálfu þess opin-
bera verði að gera til þess að ná þessu mark-
miði, og lög sett í samræmi við þær niður-
stöður.
Það markmið, sem ætlunin er að ná í
byggingarmálunum, er í aðalatriðum, að
þröngbýli, skilgreint sem meir en 2 íbúar í
herbergi, verði afnumið, og að í öllum íbúð-
um séu þau þægindi, sem nú teljast nauð-
synleg. Ætlunin er að ná þessu markmiði á
tímabilinu 1945—1960. Gert er ráð fyrir, að
byggingarstarfsemin verði að mestu jöfn
frá ári til árs, og að á hverju ári verði byggð-
ar um 60.000 íbúðir, þar af um 45.000 í bæj-
um og kauptúnum. Þessi tala íbúða, er sú
sama og tala þeirra íbúða, sem byggðar voru
árið 1939, en það ár náði byggingarstarf-
semin því hámarki, sem síðan hefur ekki
verið farið fram úr. Á undanförnum þremur
árum hefur framleiðslan verið nokkuð minni
en hið setta árlega markmið, en munurinn
hefur verið tiltölulega lítill, um 10%.
Reynsla sú, sem fengizt hefur á þeim fjór-
um árum, sem liðin eru, síðan að áætlun
þessi var gerff, hefur leitt í ljós, að hún hafi
verið of lág með tilliti til þarfanna og út-
rýming húsnæðisskortsins á tilætluðum
tíma, en hins vegar of há með tilliti til fram-
kvæmanleika. Dauðatíðni hefur lækkað
meira, frjósemi og fjölskyldumyndun aukizt
meira en búist var við, innflutningur fólks
BYGGINGARLISTIN 1951,1
NYJA BLIKKSMIÐJAN
Höfðatúni 6 . Reykjavik . Símar 4672 og 4804
□
Hraðfrystitækt
Hjólbörar með gúmmíhjóli
Lofthitunar- og loftræstingarlagnir
með tilheyrandi
Alúminíumvcggpípur á hús
Alls konar blikksmíði
□
Stærsta blikksmiðja landsins
SÖGIN H.F.
Höfðatún 2 . Reykjavík . Símar 5652 og 6486
□
Vér tökum að oss smiði flestra tréhluta húsa og höfum góð skilyrði til þess
að gera góða framleiðslu við sanngjörnu verði.
Ástæðurnar til þessa eru, að vér höfum:
Góða iðnaðarmenn
Góðan húsakost
Góðar vélar
Góða timburþurrkun
Góð hráefni
AO jafrmði höfum vér fyrirliggjandi
Hurðarstærðir Opstærðir miðað við karmtré úr
Innihurðir ........... 2,02x0,80 2,10x0,87 1)4"
- 2,02x0,70 2,10X0,77 -
- 2,02x0,60 2,10x0,67 -
Útihurðir ............ 2,02x0,80 2,15x0,90 2"
- .......... 2,02x0,90 2,15x1,00 -
□
Ennfremur höfum vér fyrirliggjandi eldhússkápa við flestra hæfi.
Gjörið svo vel og reynið viðskiptin.
5