Byggingarlistin - 01.01.1951, Blaðsíða 32
Trygging
er nauðsyn fyrir efnalegu sjálfstæði ein-
staklinganna og þjóðarinnar í heild.
Tryggið þar sem kjörin eru bezt, í yðar
eigin tryggingarfélögum. Með því njótið
þér ávaxtanna í lækkuðum iðgjöldum.
Líftryggingar hjá Andvöku.
Aðrar trygging'ar hjá Samvinnutryggingnm
ÍVAR JÓrVSSON
Laugavegi 39 . Simi 5009
Ýmiss konar málmsmiði
viðvíkjandi alls konar
innréttingum
Byggingar- og skipulagsmál
í Svíþjóð
Framh. af 8. bls.
tíma, sem lánveitandinn tiltekur, og farið
sé eftir þeim reglum að öðru leyti, er hann
kann að setja. 4) Að sé íbúð í liúsinu leigð
út sé leigan ekki hærri né ákveðin á annan
hátt en lánveitandinn samþykkir á meðan
lánið er enn ekki að fullu goldið. 5) AS sé
húsið eða íbúð í því seld, verði lánveitandi
að samþykkja söluverðið.
Upphæð lánsins er yfirleitt 25% af þeim
byggingar- og lóðakostnaði, sem iánveitandi
samþykkir. Er því gert ráð fyrir, að hægt sé
að fá á markaðinum, í banka eða veðbanka,
fyrsta veðréttarlán, er nemi allt að 50%
byggingarkostnaðar með vöxtum, er ekki
séu meira en 3%. Þó eru möguleikar á því
að fá lán, er nemi allt að 35% og jafnvel
75% byggingarkostnaðar, ef örðugleikar eru
á því að fá fyrsta veðréttarlán með þeim
kjörum, sem hér að framan eru nefnd. Eig-
ið framlag lántaka verður þá a. m. k. 25%
byggingarkostnaðar. Sem trygging fyrir lán-
inu kemur veðréttur, er liggur á milli 50 og
75% byggingarkostnaðar, eða 40 og 75% og
0 og 75%, sé lánið veitt samkvæmt undan-
tekningarákvæðunum.
Lánið er annuitetslán, lánstíminn 25 ár
og vextir 3%, dráttarvextir 5%.
Til þess að sú hækkun byggingarkostnað-
ar, sem orðið hefur síðan fyrir strið, leiði
ekki til þess, að dýrara verði að búa í nýj-
um búsum en eldri, eru sérstök viðbótarlán
(kapitalsubvention) veitt. Þessi lán eru
hliðstæð þeim viÖbótarlánum (tillaggslán),
sem veitt eru til byggingar fjölbýlishúsa, og
síðar verður minnzt á. Þessi viðbótarlán eru
vaxta- og afborganalaus. Ef ástandið á hús-
næðismarkaðinum síðar meir verður þann-
ig, að fært þyki að krefjast vaxta og afborg-
ana af þessum lánum, á að gera það, að öðr-
um kosti á að afskrifa þau að öllu eða ein-
hverju leyti. Viðbótarlán má ekki vera
meir en 4.000 kr. á einbýlishús og 6.000 kr.
á tvíbýlishús. Sé slíkt lán veitt bækkar há-
marksupphæð alls lánsins úr 25% í 40%, og
50% og 90% samkvæmt undantekningará-
kvæðunum. Eigið framlag lækkar þá ofan í
10%. Auk þeirra skilyrða fyrir lánveiting-
unni, sem áður eru nefnd, verða þau skilyrði
að vera uppfyllt til þess að fá slík vaxtalaus
lán, að grunnflötur byggingarinnar, að út-
veggjum frátöldum, sé ekki yfir 100 ferm.,
sé húsið ein hæð, 80 ferm., sé húsið ein og
hálf hæð, og 60 ferm., sé það tvær hæðir.
Samsvarandi íbúðarstærðir gilda fyrir tví-
býlishús. Kjallari og ris er þá ekki talið með
hæðum. Yfirgnæfandi hluti þeirra húsa, sem
„egnabemslán" eru veitt til, fá nú einnig
þetta vaxtalausa viðbótarlán. Ætlunin er, að
veitingu þessara viðbótarlána verði hætt,
þegar byggingarkostnaður lækkar.
„Egnahemslán" er veitt hverjum sem er,
30
1951,1 BYGGINGARLISTIN