Byggingarlistin - 01.01.1951, Side 36
Vinnustofaii Hollusundi 6A
Sími 5585
□
Húsamálun
Skiltagerð . Emaillering
□
Ósvaldur Knudsen
Daníel Þorkelsson
Landssmiðjan
annast hvers konar nýsmíði og viðgerðir
til lands og sjávar
□
SÍMI 1680
Sérstök framlög eru greidd til byggingar
íbúðarhúsa fyrir fólk, sem nýtur ellistyrks.
Sá árangur, sem náðzt hefur með hinu
nýja lánsfyrirkomulagi, er svo stórvægileg-
ur, að í fljótu bragði virðist ganga göldrum
næst. Sem dæmi má nefna það, að bygging-
arkostnaður í Stokkhólmi hefur aukizt um
50% frá því á árinu 1939. Þrátt fyrir þetta
er leigan sú sama í húsum, sem byggð voru
það ár, og í húsum, sem byggð eru í ár,
enda þótt engin vaxta- og afborganalaus
framlög — „tillággslán" — séu veitt til
bygginga í Stokkhólmi. Árangurinn hefur
náðzt eingöngu með því, að opinber f járöfl-
un befur komið í stað einkafjáröflunar á
því fé, sem liggur á bilinu 70—85% af bygg-
ingarkostnaði, og öruggu leigueftirliti hefur
jafnframt verið komið á. Sú vaxtalækkun,
sem hér um ræðir, er gífurleg. Vextir hinna
opinberu lána eru 3%, en raunverulegir
vextir á einkafénu voru áður oft um 20%.
Eins og er, eru allar umsóknir um lán,
sem fullnægja settum skilyrðum, veittar.
Takmörkun íbúðarhúsabygginga í heild og
skipting þeirra á einstaka staði er verkefni
fjárfestingarstjórnarinnar.
5. ASrar lánveitingar til byggingar
íbúðarhúsa
Eins og minnst er á í kaflanum hér að
framan, fela lánveitingar ríkisins til bygg-
ingar íbúðarhúsa það í sér, að ríkið hefur
tekið að sér veitingu þriðju veðréttarlána
(tertiárlán), þ e. lán, sem hafa tryggingu
ofan við 70%, eða ef um sjálfseignarhús er
að ræða 50%, af verðmæti byggingarinnar.
Að slíkar lánveitingar eru nægjanlegar
byggist á því, að veiting lána með betri
tryggingu er vel fyrirkomið, þau eru veitt
með hóflegum vöxtum og engir erfiðleikar
eru yfirleitt á því að fá slík lán. Hér mun
gerð stuttleg grein fyrir fyrirkomulagi þess-
ara lánveitinga.
Fyrsta veðréttarlán (primárlán) eru veitt
af ýmiskonar stofnunum, fyrst og fremst
sparisjóðum, vátryggingarfélögum og sér-
stökum veðbanka ríkisins (Konungariket
Sveriges stadshypotekskassa), en einnig af
venjulegum hönkum og veðbönkum, í einka-
eign (inteckningsbelag). Þessi lán eru veitt
allt að 60% af verðmæti fasteignarinnar, og
vextirnir eru nú um 3%. Að öðru leyti eru
lánin af ýmsu tagi, og fer það mikið eftir
því, hver lánsstofnunin er. Þannig eru lánin
ýmist bundin til ákveðins tíma, 10 eða 20
ára, eða óbundin, ýmist afborgunarlán eða
án afborgana.
Veðbanki ríkisins, sem fyrr er nefndur,
var stofnaður árið 1909 til að koma betra
lagi á lánveitingar til fasteigna. Hann veitir
eingöngu fyrsta veðréttarlán með 3% vöxt-
um og 0.1% afgjaldi. Lánin eru ýmist föst
lán til 10 eða 20 ára eða afborgunarlán til
30—47 ára. Bankinn gefur út og selur
skuldabréf með hinar veðsettu fasteignir
sem tryggingu. Fé afhendir hann síðan und-
34
1951,1 BYGGINGARLISTIN