Alþýðuhelgin - 27.08.1949, Blaðsíða 12

Alþýðuhelgin - 27.08.1949, Blaðsíða 12
236 ALÞÝÐUHELGIN sinn inn í eldhús til stúartsins og sýndi honum mélkekkina í grautn- um, en stúartinn brást reiður við. Fleygði þá Guðmundur öllu af disk- inum á gólfið og skundaði síðan út. Við þetta reiddist nú greifinn svo að um munaði. Sendi hann þegar einn af aðstoðarmönnum sínum að sækja Ellefsen. Og á vettvang kom Friðþjófur Ellefsen. Skýrði greifinn honum frá málefninu og sýndi verksummerkin á gólfinu. Tilkynnti hann Ellefsen það, að þetta gæti hann engum þolað, og annað hvort yrði þessi maður að fara þegar í stað eða hann færi að öðrum kosti sjálf- ur. Ellefsen tók þann kostinn að víkja verkamanninum frá, og kvaðst hann gjöra það „kun for matens skyld“. Guðmundur fékk þó að sofa þarna um nóttina, en næsta morgun var hann fluttur ásamt dóti sínu út í Brekkuþorp. Mér finnst að við íslendingarnir, sem þá vorum á Asknesi, og létum þetta afskiptalaust, getum enn í dag borið kinnroða út af þessu. En þá voru hér engin samtök til. Nilsen, er Norðmenn kölluðu „Material-forvalter“, það mun þýða efnisvörður, var maður, sem allir könnuðust við. Hafði hann verið lengi í þjónustu Ellefsens, og var víst trúr og dyggur þjónn. Hann hafði umsjón með öllu, sem útgerð- inni tilheyrði, bæði á sjó og landi, og geymdi lykla að öllum hirzlum og forðabúrum og vissi hvar hver ein- asti hlutur var geymdur. Það var eitt af slcylduverkum hans, að ganga í braggana og athuga hverjir lágu inni. Fór hann venju- lega í þessa húsvitjun fyfri hluta dagsins. Oftast mun hann hafa fyrir- hitt einhverja sjúklinga, en þcir voru í færri tilfellum mikið veikir. Þegar hann kom inn ágólfið, skim- aði hann upp um allar kojur, og þegar hann kom auga á koju, sem einhver lá í, rak hann putana í hapn, ef hann svaf, eða þóttist sofa, og sagði: „Er du syg?“ „Já“, sagði hinn auðvitað, og spurði Nilsen sjaldan frekar út í það, en sagöi: „Kom rrieð boka din!“ og rétti sjúklingurinn honum þá munstrabókina sína, og var skrifaður í hana innilegudagur. Þótti mönnum þetta leiðara, því að skemmtilegast var að bókin sýndi ekki marga innilegudaga þegar gert var upp á haustin. Var Nilsen hálf- UPP Á LÍF OG DAUÐA. Frh. af bls. 231. venjulega ekki framin við lágværa symfóníska músík. Það var einu sinni maður, sem bjó í næsta húsi við mig þegar ég var níu eða tíu ára óvinsæll hjá verkamönnum út af þessu flakki í braggana. Hann var svolítill skottulæknir, og gerði að smámeiðslum á mönnum, þegar svo bar undir. Nilsen vigtaði allan hval, sem seldur var, bæði handa utanstöðvar- mönnum og eins handa íslendingum á stöðinni, sem keyptu hval. Reyndu þá sumir að skjalla hann upp, og gátu stundum fengið góða vigt í staðinn. Hann starfaði einnig við spikbræðsluna, þegar hann var ekki í öðrum snúningum. Einu sinni varð Nilsen fyrir slysi á Asknesi, og gátu þá allir vorkennt honum. Það var komið að vertíðar- lokum og var þá venja að ónýta þær púðurbirgðir, sem eftir voru. Var púðrið geymt í kofa spölkorn upp af bryggjunni, og sá Nilsen um það eins og annað, sem tilheyrði hans verkahring. Nú starfaði hann að því að taka púðrið úr kofanum og hjálpuðu hon- um við það tveir norskir drengif. Púðrið var borið niður í flæðatmál og dyngt þar í f jöruna. Þegar því var lokið, kom Nilsen með skóflu og tók að moka því í sjóinn, en drengirnir fóru heim. Allt í einu kvað við voðaleg sprenging þarna í fjörunni og kol- svartur mökkur huldi allt þar um- hverfis, og datt engum í hug, sem hcyrði þetta og sá, að maðurinn, sem var þarna að starfi, kæmist lifandi frá þessu. En þcgar púðurreykurinn tók að þynnast, sáu menn hvarNilsen kom skríðandi heim eftir fjörunni, svartur eins og negri, og allur skað- brenndur. En hann var harður og bar sig vel, og sagði fyrir um alla meðhöndlun á sér. Það var þegar í stað sendur hval- bátur með manninn til Seyðisfjarð- ar, lá hann þar á sjúkrahúsi um tíma, og var svo fluttur til Noregs, þegar Norðmennirnir fóru heim í vertíðar- lokin. Næsta voru kom Nilsen eins og áður. En þá hafði hann gula flekki og ör á andliti eftir brunann, og þau verksummerki mun hann hafa borðið æ síðan. drengur. Dag nokkurn framdi harin sjálfsmorð, en það tók hann heila klukkustund. Hann skaut kúlu i brjóst sér, en hæfði ekki hjartað, og síðan skaut hann sig í magann. Ég heyrði báða skothvellina. Það liðu a að gizka fjörutíu sekúndur á milb þeirra. Seinna datt mér í hug að hann hefði að líkindum velt því fyr- ir sér þessar sekúndur hvort hann ætti að halda fast við þá ákvörðun sína að deyja, eða hvort hann ætti að reyna að spjara sig. Síðan byrjaði hann að öskra. Það varð hræðilegt uppnám, bæði and- legt og líkamlegt: maðurinn öskraði og fólk hljóp út á strætið og æpti og vildi gera eitthvað og vissi ekki hvað það átti að gera. Hann öskraði svo hátt, að hálfur bærinn kom á vett- vang. Annað veit ég ekki um raunveru- leg sjálfsmorð. Ég lief aldrei séð kvenmann fleygja sér fyrir spor- vagn, svo um það get ég ekki dæmt. Þetta er eina sjálfsmorðið, sem eg hef verið vitni að. Þessi maður öskr- aði svoleiðis, að það hefði ekki verið viðeigandi í kvikmynd. Enginn myndi hafa grátið af meðaumkun með honum. Ég held að niðurstaðan verði þessu Við ættum að hætta að fremja sjálfs* morð í kvikmyndum. Churchill baðar sig.

x

Alþýðuhelgin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðuhelgin
https://timarit.is/publication/1050

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.