Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Qupperneq 10
Ferðamönnum sem koma til lands-
ins hefur fjölgað mjög á undanförn-
um árum. Með auknum fjölda ferða-
manna hafa skemmdir á landinu
einnig aukist mikið. Skemmdirnar
sjást helst á göngustígum og mynd-
ast stórir skurðir á vinsælum göngu-
leiðum víða um land.
Sigurður Sigurðarson, starfsmað-
ur hjá Íslenskum almannatenglum,
hefur farið í fjölda gönguferða um
landið þar sem hann hefur myndað
þær skemmdir sem orðið hafa á nátt-
úrunni.
Mikil breyting
Sigurður segir að breytingin sem
orðið hefur á landinu undanfarin
tíu ár sé mjög mikil. Hann kennir þó
ekki eingöngu fjölgun ferðamanna
um því hann segir að vatn renni ofan
í troðna stíga sem rofna svo. Þannig
verði þeir fljótt ófærir fyrir göngufólk
sem færa sig og ganga til hliðar við
stíginn. Þannig myndast aðrir skurð-
ir sem endar með því að viðkvæm
náttúran verður ljótari ásýndum.
Sigurður segir að miklar skemmdir
séu á vinsælum gönguleiðum eins
og á milli Landmannalauga og Þórs-
merkur. Auk þess séu skemmdir á
gönguleiðinni yfir Fimmvörðuháls
og í Goðalandi.
Þarf að breyta hugsunarhætti
„Gönguleiðir á Esjunni hafa einn-
ig orðið illa úti og maður horfir í
hryllingi á Þverfellshornið sem er
orðið úttroðið. Auk þess eru margar
aðrar gönguleiðir í nágrenni Reykja-
víkur sem líta illa út. Má þar nefna
leiðina á Vífilsfell og gönguleiðir á
Hengil.“
Sigurður segir að hafa þurfi sömu
hugsun að leiðarljósi og höfð er þeg-
ar vegum er viðhaldið. Hann segir að
undirbyggja þurfi göngustíga sem
standa í halla. Hann segir að hættan
á skemmdum sé gríðarlega mikil á
slíkum svæðum og bendir í því sam-
hengi á myndina hér fyrir ofan sem
tekin er á milli Landmannalauga og
Þórsmerkur.
Ákveðin mótsögn
„Við höfum vakið athygli á þessu
lengi, að fjölfarnir ferðamannastaðir
á hálendinu þola ekki nema ákveðna
umferð,“ segir Freysteinn Sigurðs-
son, jarðfræðingur og varaformað-
ur Landverndar. Hann segir að það
sé ákveðin mótsögn fólgin í þessu
máli því að besta leiðin til að draga
úr þessu skemmdum sé að leggja vel
gerða og afmarkaða göngustíga. Það
sé um leið meiri breyting á landslag-
inu.
Taka tillit til aðstæðna
Freysteinn segir að stefna Land-
verndar hafi verið sú að á meðan
raskið er lítið séu minniháttar lag-
færingar látnar duga. Hann segir
að þetta sé vandamál á gönguleið-
um við Öskju þar sem göngustígar
hafa verið niðurtroðnir. „Þar er hátt
í hundrað metra breið göngubraut
frá bílastæðunum og út að vatninu.
Það væri hægt að gera fimm metra
breiðan veg fyrir bíla sem myndi
leysa göngubrautina af hólmi. Það
væri einnig röskun á landslaginu og
því er þetta mál ekki einfalt.“
Freysteinn segir að þetta sé
vandamál sem verði að leysa með
tilliti til aðstæðna á hverjum stað fyr-
ir sig. Hann segir að það skipti máli
að sveitarstjórnir og ferðamálaaðilar
komi nógu snemma að þessu og fari
að velta því fyrir sér hvernig best sé
að leysa þetta.
Aðspurður hvort unnt sé að laga
gönguslóðir sem hafa troðist nið-
ur segir Freysteinn að það geti ver-
ið erfitt. „Það er hægt að fylla upp
í þetta en þetta er fljótt að troðast
niður aftur. Ég veit til þess að Ferða-
félag Íslands hefur unnið að þess-
um málum og fylgist vel með gangi
mála á sínum gönguleiðum. Sumar
sveitarstjórnir eru einnig mjög dug-
legar við þetta. Þetta er samt hlutur
sem þarf að huga miklu betur að en
gert er.“
þriðjudagur 14. ágúst 200710 Fréttir DV
„Gönguleiðir á Esjunni
hafa einnig orðið illa
úti og maður horfir í
hryllingi á Þverfells-
hornið sem er orðið
úttroðið.“
Einar Þór sigurðsson
blaðamaður skrifar: einar@dv.is
Með auknum fjölda ferðamanna hafa skemmdir á náttúrunni orðið sífellt meiri. Göngumaðurinn sigurður
sigurðarson hefur farið ófáar ferðir um hálendið og hefur hann myndað skemmdirnar. Hann segir breyting-
una mikla á undanförnum tíu árum. Freysteinn sigurðsson, varaformaður Landverndar, segir að huga þurfi
miklu betur að skemmdum á gönguleiðum.
GönGufólk skemmir landið
Miklar skemmdir Hér má glögglega sjá þær
skemmdir sem orðið hafa á náttúrunni.
Myndina tók sigurður sigurðarson á gönguleið-
inni á milli Landmannalauga og þórsmerkur.
sigurður sigurðarson Hefur gengið
víða. Hann hefur áhyggjur af gangi mála.
sveinn a. Morthens segir hægt að sjá í leikskóla hverjir lenda í vandræðum síðar:
Með lykil að undirheimunum
„Ég hef upplifað það að unglingar
fara héðan með lykil að undirheimun-
um,“ segir Sveinn Allan Morthens, for-
stöðumaður meðferðarheimilisins að
Háholti. Hann segir að snemma megi
sjá hverjir eigi eftir að lenda í vand-
ræðum seinna á ævinni. Tilkynning-
um til barnaverndar hefur fjölgað um
50 prósent á tveimur til þremur árum
en fjöldi fagfólks í geiranum stendur í
stað.
Í helgarblaði DV var fjallað ítarlega
um málefni afbrotaunglinga. Baldvin
Nielssen, faðir 19 ára drengs sem ný-
lega var dæmdur í 21 mánaðar fang-
elsi fyrir fjölda brota, gagnrýndi þar
félagslega kerfið. Hann sagði að sonur
sinn hefði sex ára gamall verið greind-
ur með ADHD og að hann hafi ekki
fengið nauðsynlegan stuðning.
Háholt er meðferðarheimili í
Skagafirðinum fyrir ungt fólk í vanda.
Flestir sem þar dvelja eiga við fíkni-
efnavanda að stríða eða hafa framið
afbrot.
Allan gagnrýnir að ekki sé hald-
ið betur utan um unglingana þegar
meðferð lýkur. „Þau eru yfirleitt hjá
okkur í sex mánuði. Eftir það sinn-
um við eftirmeðferð í þrjá mánuði því
sveitarfélögin gera það ekki.“
„Reynslan sýnir okkur að starfs-
menn skóla og leikskóla sjá fljótt
hverjir eru líklegir til að lenda í vand-
ræðum seinna á lífsleiðinni,“ segir All-
an. Hann bendir einnig á að strax um
fimmtán ára aldur sé greinilegt hvort
unglingur sem brýtur af sér sé að gera
það í fyrsta og eina skiptið eða hvort
hann mun leggja glæpi fyrir sig. „Það
á að vera hægt að grípa fljótt inn í.“
Hann bendir á að inni á meðferð-
arstofnunum kynnist unglingar oft
öðrum sem eru í enn meiri vanda en
þeir sjálfir og síðan haldi þeir sam-
skiptunum áfram þegar út er komið.
„Þessir krakkar eru oft stjórnlausir.
Þeir eiga erfitt með að skynja sig sem
hluta af einhverju samfélagi. Í besta
falli eru þeir hluti af einhverjum fé-
lagahópi sem er í neyslu og afbrot-
um. Fyrir þeim er það raunveruleik-
inn. Við hin erum í allt öðrum heimi.“
erla@dv.is
Vilja friða
Héðinsfjörð
Norðlenskir áhugamenn um
náttúruvernd vilja að Þórunn
Sveinbjarnardóttir umhverfis-
ráðherra og bæjarstjórn Fjalla-
byggðar beiti sér fyrir því að
Héðinsfjörður verði friðlýstur.
Samtök um náttúruvernd á
Norðurlandi vilja að fjörðurinn
verði að friðlandi eða fólkvangi
ekki síðar en Héðinsfjarðargöng
milli Siglufjarðar og Ólafsfjarð-
ar verða opnuð. Til að svo megi
verða segja forsvarsmenn sam-
takanna að hefja verði undir-
búning friðlýsingar, merkingu
gönguleiða og brúun lækja og
mýrlendis sem fyrst.
Forsvarsmenn samtakanna
telja að friðlýsing Héðinsfjarðar
hefði góð áhrif á ímynd svæðis-
ins og stuðli vafalítið að auknum
ferðamannastraumi.
Helgin 10.–12. ágúst 2007 dagblaðið vísir 120. tbl. – 97. árg. – verð kr. 365
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
allir eiga
sinn paul
tapað
milljörðum
hvaða lið vinnur ensku deildina, hver falla?
byggðastofnun
hE
LG
AR
BL
AÐ
trúir
að allt
gangi
upp
faðir afbrotaunglings:
Glæpir ungmenna verða algengari
og þeir sem komast í kast við lögin
verða sífellt yngri. Yfirvöld ráða
ekki við vandann. Úrræðin eru fá,
þeim ekki beitt nógu vel og of lítill
peningur lagður í að takast á við
vandann. Yngsti fanginn á Litla-
hrauni fimmtán ára.
glæpaskóli
sonurinn
í eigin
víti
paul mccartney
elÍza
Fæddist með
áhuga á jóga
kristbJÖrg kristmundsdÓttir
Þau hurFu aF alÞingi í vor
tuttugu og fjögur hurfu af alþingi
í vor. sum vinna nú að nýjum verk-
efnum. Önnur leita að nýrri vinnu.
Þau hafa þó nægan tíma til að
ákveða sig enda á biðlaunum í
minnst fjóra mánuði eftir að
þingsetu lauk.
CESC FABREGAS
Kom til Arsenal ungur að árum frá
Barcelona og hefur heldur betur
slegið í gegn í ensku deildinni
með hárnákvæmum
sendingum og hraða.
Ótrúlega öruggur á
boltanum og naskur að búa
til marktækifæri fyrir
samherja sína. Hann verður að
eiga frábært tímabil ef Arsenal á
að eiga möguleika í efstu liðin.
GABRIEL AGBONLAHOR
Strákur sem kom úr unglingaliði
Aston Villa og sló rækilega í
gegn á síðustu leiktíð.
Agbonlahor er mjög hraður
leikmaður sem skapar
mikla hættu í hröðum
upphlaupum. Hann skorar
reglulega og er duglegur að
leggja upp færi fyrir samherja
sína.
STJARNAN
SPÁ DV
Aston Villa er miðjulið, verður um miðja deild og á litla
möguleika á Evrópusæti á þessari leiktíð að mati DV Sport.
Leikmannahópur liðsins er lítill og liðið má illa við meiðslum.
Martin O‘Neill er þó ansi naskur knattspyrnustjóri og gæti
töfrað eitthvað fram úr erminni.
12
ARSENAL
Arsenal spilar einn skemmtilegasta fótbolta Evrópu en hann er
því miður ekki nógu árangursríkur. Liðið er uppfullt af ungum
og efnilegum fótboltamönnum sem virðast hafa gaman af því
sem þeir eru að gera. Liðið missti sinn besta mann og fyrirliða
þegar Thierry Henry fór en Arsene Wenger gæti átt einhvern ás
upp í erminni, sanniði til.
SPÁ DV
Arsenal missti leiðtogann Thierry Henry og hefur ekki fyllt hans
skarð. Því má þó ekki gleyma að Robin van Persie átti við slæm
meiðsli að stríða á síðustu leiktíð og ef til vill er hans tími
kominn.
KOMNIR: Eduardo da Silva, Lukasz
Fabianski, Havard Nordtveit.
FARNIR: Thierry Henry, Jeremie Aliadiere,
Fabrice Muamba, Arturo Lupoli, Mart Poom.
HEIMAVÖLLURINN
Emirates Stadium
var tekinn í notkun
fyrir síðasta tímabil
og er rómaður fyrir
fallega hönnum og
frábært útsýni
hvaðan sem fólk
situr. Tekur um 60
þúsund manns í
sæti og lýkt og á
Higbury er
undantekningar-
laust uppselt.
5
Eduardo da Silva er fæddur 25
febrúar 1983 í Rio de Janeiro í
Brasilíu. Hann er engu að síður
Króatískur ríkisborgari og spilar með
landsliði Króatíu. Hann flutti 15 ára til
Króatíu og lék með Dinamo Zagreb.
Er óskrifað blað en Wenger er
þekktur fyrir að ná því besta úr
mannskapnum sem hann hefur
hverju sinni.
FYLGIST
MEÐ STJARNAN
STJÓRINN
ARSENE WENGER:
Franski prófessor-
inn gæti þurft að
taka á öllu sínu til
að halda Arsenal
í toppbaráttunni.
Hefur haft
þolinmæði stjórnar
og stuðningsmanna til
að þróa lið sitt áfram en sú
þolinmæði gæti verið á þrotum.
Arsenal vill að minsta kosti kröfu um
einn titil í vetur.
ASTON VILLA
Aston Villa hefur látið lítið fyrir sér fara á leikmannamarkaðinum í sumar.
Töluvert að uppöldum Villa-leikmönnum hafa verið að koma upp í
aðalliðið á síðustu árum með ágætum árangri. Ef leikmenn eins og
Martin Laursen og Wilfred Bouma sleppa við meiðsli í vetur ætti Aston
Villa að ná meiri stöðugleika í sinn leik.
HEIMAVÖLLURINN
Aston Villa leikur
heimaleiki sína á
hinum víðfræga
Villa Park í
Birmingham.
Völlurinn var
byggður árið 1897
og tekur 42,573
áhorfendur. Þar fer
venjulega fram
annar undan-
úrslitaleikurinn í
ensku bikar-
keppninni ár hvert.
FYLGIST
MEÐ
STJÓRINN
MARTIN O’NEILL:
O’Neill náði góðum
árangri með
Leicester. Hann
færði sig um set
árið 2000 og tók
við skoska liðinu
Celtic. O’Neill ákvað
að hætta þjálfun
liðsins árið 2005 til að
sinna veikri eiginkonu sinni. Ári
síðar snéri hann aftur í boltann og
tók við Aston Villa. O’Neill er mjög
ástríðufullur og klókur stjóri.
Nigel Reo-Coker. Talið er að Aston
Villa hafi gert góð kaup í Nigel Reo-
Coker sem kom til liðsins frá West
Ham, þar sem hann hafði meðal
annars gegnt stöðu fyrirliða. Hann er
23 ára og hefur verið orðaður við
bæði Arsenal og Manchester United í
gegnum tíðina. Gengi Aston Villa
veltur að miklu leiti á því hvort Reo-
Coker nær sér á strik.
OLIVIER KAPO
Keyptur frá Juventus fyrir þetta
tímabil fyrir 385 milljónir
króna. Kapo var í gekk í raðir
Juventus árið 2004 og náði
sér aldrei á strik. Hann var
lánaður til Monaco ári síðar
og svo til Levante í fyrra þar
sem hann þótti spila mjög
vel. Fljótur og teknískur
leikmaður.
SPÁ DV
Blackburn er með gott ellefu manna byrjunarlið en skortir
breidd í leikmannahóp sinn. Þetta kom í ljós á síðustu leiktíð en
þrátt fyrir það hefur Blackburn látið lítið fyrir sér fara á 9
BIRMINGHAM
Birmingham er nýliði í ensku úrvalsdeildinni í vetur og ljóst er
að erfitt tímabil bíður liðsins. Liðið endaði í öðru sæti í næst
efstu deild Englands á síðustu leiktíð. Birmingham hefur keypt
marga leikmenn fyrir þetta tímabil, marga hverja frá erlendum
liðum og því er enn óljóst hvernig þeir plumma sig á Englandi.
SPÁ DV
Erfitt fyrir nýliða að festa sig í sessi í deild þeirra bestu.
Birmingham er ekki líklegt til afreka á þessari leiktíð að mati DV
Sport og blaðið spáir þeim falli. Enska úrvalsdeildin er firnasterk
og Birmingham er því miður skrefi á eftir flestum öðrum liðum.
HEIMAVÖLLURINN
St. Andrews
völlurinn í
Birmingham var
byggður árið 1905
og tekur 30,009
áhorfendur, alla í
sæti.
19
Cameron Jerome er tvítugur piltur
sem sló í gegn hjá Cardiff City. Þar
skoraði hann 20 mörk tímabilið
2005-2006 áður en Birmingham festi
kaup á kauða í fyrra fyrir 450 milljónir
króna. Efnilegur strákur sem gaman
verður að fylgjast með í vetur.
FYLGIST
MEÐ STJARNAN
STJÓRINN
STEVE BRUCE:
Bruce lék með
Manchester
United á árum
áður við góðan
orðstír. Bruce tók
við Birmingham
árið 2001 og hefur
tvisvar farið með liðið
upp í úrvalsdeildina á þeim sex
árum sem hann hefur verið við
stjórnvölinn og einu sinni fallið.
Ólíklegt er að stjórn liðsins sætti sig
við annað fall með Bruce í brúnni.
BLACKBURN
Blackburn mætir með lítið sem ekkert breytt lið til leiks á þessari leiktíð.
Blackburn endaði í tíunda sæti á síðustu leiktíð eftir að hafa gert sig
líklegt til að ná Evrópusæti. Blackburn þykir ekki spila skemmtilegasta
bolta í heimi og eru leikmenn liðsins harðir í horn að taka.
KOMNIR: Nigel Reo-Coker, Marlon
Harewood, Eric Lichaj.
JOHN TERRY
Einn áreiðanlegasti miðvörðurinn
í boltanum í dag. Býr yfir
miklum leikskilningi og gefur
sig allan fram í leikinn.
Stjórnar vörn Chelsea eins
og hershöfðingi og er auk
þess fyrirliði enska
landsliðsins. Það kom í ljós á
síðustu leiktíð að þegar Terry
er meiddur er stórt skarð í vörn
Chelsea.
STEVEN HOWARD
Howard hefur verið lengi að og
ávallt spilað í neðri deildum á
Englandi. Hann var keyptur
til Derby í fyrra sumar og
skoraði sextán mörk á
síðustu leiktíð, þar af tvö
mörk í undanúrslitaleik
umspilsins gegn Southamp-
ton. Howard er mikill
Newcastle aðdáandi og fagnar
venjulega líkt og Alan Shearer
STJARNAN
SPÁ DV
DV Sport telur að neðasta sætið sé frátekið og í eigu Derby
County. Góður líkur eru á nýju meti, hvað slakann árangur
varðar. 20
CHELSEA
Stund sannleikans. Ljóst er að Roman Abramovich sættir sig ekki
við neitt annað en sigur í ensku úrvalsdeildinni á komandi leiktíð.
Orðrómur var uppi um að Jose Mourinho yrði rekinn og nú kemur í
ljós hvort stjórnin gerði rétt með að halda honum í starfi.
SPÁ DV
Hinir djúpu vasar Abramovich virðast vera farnir að grynnka.
Aðeins einn dýr leikmaður kom til félagsins í vetur, þrátt fyrir að
hafa misst af meistaratitlinum á síðustu leiktíð. Ef að leikmenn
sem náðu sér ekki á strik á síðustu leiktíð finna sitt gamla form í
vetur, verður liðið illviðráðanlegt.
KOMNIR: Florent Malouda, Tal Ben-Haim,
Claudio Pizarro, Steven Sidwell.
HEIMAVÖLLURINN
Chelsea leikur
heimaleiki sína á
Stamford Bridge
sem staðsettur er í
Fulham-hverfinu í
London. Völlurinn
tekur 42,055
áhorfendur og var
byggður árið 1876.
2
Andriy Shevchenko var með
ólíkindum slakur á síðustu leiktíð og
er langt frá því að borga upp það fé
sem Chelsea borgaði AC Milan fyrir
hann. Það verður fróðlegt að sjá
hvort hann nær að snúa við blaðinu
á sínu öðru tímabili. Ef hann nær sér
á strik verður Shevchenko
illviðráðanlegur.
FYLGIST
MEÐ STJARNAN
STJÓRINN
JOSE MOURINHO:
Enginn efast um
hæfileika
Mourinho sem
knattspyrnu-
stjóra. Hann hefur
unnið allt sem
hægt er að vinna
með félagsliði og hefur
einstaka hæfileika á að beina
athyglinni frá sínum leikmönnum og
létta þar með ákveðinni pressu af
þeim. Mikil pressa er á Mourinho á
þessari leiktíð því Abramovich vill titla.
FARNIR: Richard Jackson, Steven Cann, Paul
Boertien, Lee Camp, Lewin Nyatanga, Ryan
Smith, Morten Bisgaard, Lee Grant, Paul
Peschisolido, Seth Johnson.
DERBY
Derby á gríðarlega erfitt tímabil fyrir höndum og flestir spá liðinu
rakleitt niður í næst efstu deild á nýjan leik. Derby kom öllum á óvart
með því að vinna sér sæti í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð.
Breytingarnar á liðinu eru miklar.
HEIMAVÖLLURINN
Pride Park var
byggður 1996 og
tekur 33,597
áhorfendur. Fyrr í
sumar voru kynntar
áætlanir um að
stækka völlinn fyrir
tímabilið 2008-
2009. Eftir það mun
Pride Park taka 44
þúsund áhorfendur.
FYLGIST
MEÐ
STJÓRINN
BILLY DAVIES:
Skotinn Billy Davies
tók við Derby
County fyrir ári
síðan og
árangurinn hefur
ekki látið á sér
standa. Eftir að hafa
komið Derby upp í
úr- valsdeildina voru sögusagnir
um að Davies vildi yfirgefa félagið.
Hann sló hins vegar á þær
sögusagnir með því að framlengja
samning sinn við Derby um eitt ár.
Robert Earnshaw er fæddur 6. apríl
1981 í Mufulira í Zambíu. Hann er
eini leikmaðurinn sem skorað hefur
þrennu í úrvalsdeildinni, 1. deildinni,
2. deildinni, 3. deildinni, ensku
bikarkeppninni, enska
deildarbikarnum og í landsleik.
MIKEL ARTETA
Átti frábært tímabil síðasta vetur.
Þá lék hann yfirleitt í stöðu
kantmanns og leysti þá
stöðu einstaklega vel af
hólmi. Lesendur skysports.
com kusu Arteta miðju-
mann ársins, meðal annars
fram yfir Cristiano Ronaldo.
SPÁ DV
Lawrie Sanchez er í óðaönn að byggja upp sitt eigið Fulham lið.
Þrátt fyrir ótrúlegan árangur í undankeppni EM, þá eru þeir
norður-írsku leikmenn sem Sanchez hefur verið að fá til sín ekki
til þess fallnir að lyfta félaginu upp deildina. Fulham verður í
vandræðum í vetur og sleppa naumlega við fall.
17
EVERTON
Everton hefur náð að festa sig í sessi sem eitt af topp tíu liðum á
Englandi undanfarin ár eftir frekar dapurt gengi á tíunda áratug
síðustu aldar. Everton endaði í sjötta sæti á síðustu leiktíð, ekki
síst fyrir öflugan varnarleik.
SPÁ DV
Everton virðist alltaf koma á óvart. Með færan þjálfara og lið
sem gefst aldrei upp. Moyes er naskur á að finna leikmenn sem
henta liðinu vel og nú er að sjá hvort kaup hans í sumar reynist
heillavænleg. Evrópusæti hjá Everton.
KOMNIR: Leighton Baines, Steven Pienaar,
Phil Jagielka.
HEIMAVÖLLURINN
Goodison Park er
einn sá
sögufrægasti í
enska boltanum.
Byggingum lauk
árið 1892 og í dag
tekur hann 40,569
áhorfendur, alla í
sæti. Félagið er með
áætlanir um að
byggja nýjan völl
og stuðningsmenn
félagsins fá að kjósa
um staðsetningu
hans.
7
Victor Anichebe. 19 ára nígerískur
sóknarmaður sem kom upp úr
unglingaliði Everton. Hann er fljótur
og kraftmikill leikmaður sem fæddist
í Lagos, höfuðborg Nígeríu, 23. apríl
1988. Sparkspekingar á Englandi spá
Anichebe bjartri framtíð.
FYLGIST
MEÐ STJARNAN
STJÓRINN
DAVID MOYES:
Íslandsvinurinn David
Moyes hefur staðið
sig vel sem
knattspyrnustjóri
Everton og komið
stöðugleika á
gengi liðsins. Moyes
er ekki vanur að leita
út fyrir Bretlandseyjar
eftir nýjum leikmönnum og þykir
klókur í kaupum sínum. Moyes er talinn
vera einn besti ungi knattspyrnustjór-
inn í bransanum, en hann er 44 ára.
FULHAM
Miklar hræringar hafa verið í herbúðum Fulham í sumar. Lawrie Sanchez
tók við liðinu undir lok síðustu leiktíðar og ljóst er að hann ætlar sér að
byggja liðið nánast upp frá grunni. Liðið hefur misst nokkra
máttarstólpa úr liðinu frá síðustu leiktíð.
FYLGIST
KOMNIR: Andy Griffin, Lewis Price, Claude
Davis, Andy Todd, Tyrone Mears, Robert
Earnshaw.
FARNIR: James Beattie, Gary Naysmith,
Richard Wright, Alessandro Pistone.
FARNIR: Ben Sahar, Michael Mancienne,
Jimmy Smith, Khalid Boulahrouz, Yves
Makaba-Makalamby, Nuno Morias.
KOMNIR: Liam Ridgewell, Franck Queu-
drue, Rafael Schmitz, Daniel De Ridder,
Richard Kingson, Olivier Kapo, Garry
O’Connor, Stuart Parnaby, Fabrice Muamba.
FARNIR: Neil Kilkenny, DJ Campbell,
Stephen Clemence, Bruno N’Gotty, Julian
Gray.
FARNIR: Liam Ridgewell, Jlloyd Samuel, Lee
Hendrie, Steven Davis, Chris Sutton, Aaron
Hughes, Gavin McCann, Robert Olejnik.
FösTudaginn 10. ÁgúsT.