Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Qupperneq 14
þriðjudagur 14. ágúst 200714 Mannanöfn DV
Ef þú hétir ekki þínu nafni, hvað
vildir þú heita?
„Mér hefur alltaf þótt karlmanns-
nafnið Klettur mjög fallegt. Það er
eitthvað svo traustvekjandi við nafn-
ið en ég efast um að einhver beri
þetta nafn á landinu. Þetta orð hef-
ur stundum komið upp í huga mér
þegar ég velti fyrir mér mannanöfn-
um. Framsóknarmenn tóku nafn-
ið og „sjanghæjuðu“ sem ímynd
Framsóknarflokksins á þann hátt að
flokkurinn væri kletturinn í hafinu.
Annars er ég auðvitað svo traustur
að ég myndi bera nafnið vel. Nei,
nei, að öllu gamni slepptu þykir mér
Klettur mjög fallegt nafn þótt enginn
sona minna heiti nafninu. Ég útiloka
nafnið þó ekki ef ég myndi eignast
annan son. Það er oft stormasamt
við kletta svo að það myndi passa
vel við okkur feðga. Klettar eru oftast
þeir sem standa af sér stórviðrin. Ég
er dúndurhrifinn af þessu orði og lýsi
eftir einhverjum til að taka af skarið
og skíra drenginn sinn Klett.“
Hvernig fannst þér nafnið þitt í
æsku?
„Ég var alltaf kallaður Siggi og
það var vinsælt að bæta ýmsum
uppnefnum aftan við nafnið mitt. Ég
var oft kallaður Siggi sæti eða Siggi
súri. Mér líkaði það nú ekkert allt of
vel þótt ég hafi nú ekki þurft að leita
mér hjálpar vegna þessa. Þegar ég
var sex eða sjö ára þótti mér ómögu-
legt að vera kallaður Siggi sæti. Það
batnaði hins vegar með aldrinum
og þegar ég var á unglingsárunum
fannst mér bara ágætt að vera kall-
aður Siggi sæti. Það gerðist bara svo
sjaldan þannig að ég þurfti ekki að
hafa miklar áhyggjur af því. Í seinni
tíð hef ég verið kallaður Siggi storm-
ur, eins og margir vita. Mér er farið að
þykja nokkuð vænt um viðurnefnið
mitt en ég tek þó eftir að sumir verða
vandræðalegir þegar þeir vita ekki
hvort ég gengst við nafninu. Ég get
þó upplýst að mér finnst það bara
ágætt og kippi mér ekkert upp við að
vera kallaður Siggi stormur, enda lít
ég fyrst og fremst á það sem vinnu-
heiti.“
Hvaða nafn fannst þér flottast í
æsku?
„Ég hafði líklega ekki nógu frjótt
ímyndunarafl til að velta svoleiðis
hlutum fyrir mér. Ég var ekki sú týpa
sem horfði sérstaklega mikið upp til
annarra heldur fór frekar eigin leið-
ir. Ég hafði því engar sérstakar fyrir-
myndir og var bara nokkuð ánægður
með nafnið mitt þótt síðara nafnið
mitt, Þórður, væri yfirleitt ekki notað
nema þegar ég var skammaður.“
Er eitthvert nafn sem þér finnst
ekki fallegt?
„Almennt séð finnst mér ættar-
nöfn ljót. Ekki nema þau hafi beina
skírskotun til merkra forfeðra sem ég
þekki eða eitthvað slíkt. Mér finnst
hálfgert snobb í kringum mörg þess-
ara ættarnafna. Sú var tíðin að eng-
inn var maður með mönnum nema
bera ættarnafn en ég hef aldrei ver-
ið mikið fyrir þau. Annars er ég ekk-
ert sérstaklega hrifinn af þessum er-
lendu nöfnum sem sum hafa komist
í tísku hér á landi. Ég er svo jarð-
bundinn, enda bæði lærður í jarð-
og veðurfræði, að mér finnst sérís-
lensku nöfnin alltaf virðulegust og
flottust. Ég ber virðingu fyrir öllum
nöfnum en mér finnst að nafnið eigi
að endurspegla þjóðernið, án þess
að ég sé haldinn einhverjum þjóðar-
rembingi. Mér finnst flest nöfn falleg
en líkar best við þau gömlu góðu ís-
lensku.“
Sigurður Þórður Ragnarsson
jarð- og veðurfræðingur
Myndi vilja
heita Klettur
„Mér er farið að þykja
nokkuð vænt um viður-
nefnið mitt en tek þó eftir
að sumir verða vand-
ræðalegir þegar þeir vita
ekki hvort ég gengst við
nafninu.“
Ef þú hétir ekki þínu nafni, hvað
vildirðu heita?
„Ég myndi ekki vilja heita neitt
annað. Ég er rosalega stolt af nafn-
inu mínu. En mér finnst samt mörg
önnur nöfn falleg, til dæmis nöfn-
in á börnunum mínum sem heita
Helena Ósk, Arnþór Ingi, Halldór og
Þórdís. Eins finnst mér nafnið Birg-
itta rosalega flott.“
Hvernig fannst þér nafnið þitt í
æsku?
„Ég man að ég var óánægð með
það sem unglingur, ekki síst vegna
þess hvað það er langt. Mér var þó
ekki strítt út af nafninu.“
Hefðir þú viljað heita eitthvað
annað í æsku?
„Á tímabili tók ég upp milli-
nafnið mitt, Guðrún. Annars hef ég
alla tíð verið kölluð Ína.“
Er eitthvert nafn sem þér
finnst ekki fallegt?
„Mér dettur ekkert í hug í fljótu
bragði. Mér finnst líka eiginlega
ljótt að segja að einhver heiti ljótu
nafni.“
Þorsteinsína Guðrún Gestsdóttir
húsmóðir og fiskvinnslukona
Óþægilegt nafn á
unglingsárunum
Steinn Ármann Magnússon leikari
Stríðnin herti mig
Ef þú hétir ekki þínu nafni, hvað vildir þú
heita?
„Ég er nú eiginlega orðinn vanur nafninu mínu.
Ég var lengi ósáttur við Ármanns-nafnið en svo tók
ég það líka í sátt. Ég gæti alveg hugsað mér að heita
Drengur. Ég sá það nafn þegar ég var að velja nöfn á
syni mína en annars er ég bara ánægður með nafn-
ið mitt í dag.“
Hvernig fannst þér nafnið þitt í æsku?
„Mér var strítt töluvert á nafninu mínu. Það
var alltaf þetta Steini grjót-grín; Steini seini, steini
kleina og fleira í þeim dúr. Ég er viss um að það hafi
bara hert mig. Fyrir fólk með ríkt hugmyndaflug
má finna ýmislegt sniðugt sem rímar við nafnið
mitt eða tengir það við eitthvað annað.“
Hefðir þú viljað heita eitthvað annað í
æsku?
„Nei, svo sem ekki. Ég hafði aldrei smekk fyr-
ir nöfnunum sem allir hétu, eins og Óli, Gunni,
Mummi og þessum sem allir hinir hétu.“
Er eitthvert nafn sem þér finnst ljótt?
„Hildur. Nei, ég veit það ekki. Ég myndi alla-
vega alls ekki vilja heita Ljótur. Það býður upp á
alveg óendanlegt einelti. Svo hef ég líka séð furðu-
leg nöfn eins og Karfi, en það nafn bar maður á
Snæfellsnesi sem uppi var á 18. öld.“