Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Síða 18
Markvörður:
Stefán Logi Magnússon - KR
Þrátt fyrir að hafa fengið þrjú mörk
á sig kom Stefán Logi í veg fyrir að
mörk Valsmanna yrðu fleiri. Hann
var besti maður KR í leiknum, stóð
vaktina vel á milli stanganna og greip
vel inn í þegar á reyndi.
varnarMenn:
Kristján Valdimarsson - Fylki
Kristján náði að halda aftur af Sinisa
Kekic sem hefur verið heitur að und-
anförnu. Hann var upphafsmaður-
inn að mörgum sóknum Fylkis, spil-
aði knettinum vel frá sér. Kristján var
leiðtoginn í vörn Fylkis sem gaf á sér
fá færi gegn Víkingum.
Arnór Sveinn Aðalsteinsson -
Breiðabliki
Var hluti af vörn Breiðabliks sem hélt
sóknarmönnum Keflavíkur niðri.
Arnór vann varnarvinnu sína vel, auk
þess að vera duglegur að sækja eins
og venjulega. Arnór hefur stimplað
sig rækilega inn í deildina í sumar og
sýndi það og sannaði gegn Keflavík að
mikið býr í stráknum.
Atli Sveinn Þórarinsson - Val
Atli Sveinn spilar yfirleitt vel. Þar varð
engin breyting á gegn KR. KR-ingar
reyndu margar háar sendingar inn
á vítateig Vals og þar var Atli Sveinn
sem kóngur í ríki sínu og vann ófá
skallaeinvígin.
Gunnar Einarsson - Val
Gunnar átti sinn besta leik í sumar
þegar Valur heimsótti KR. Gunnar
lék við hlið Atla Sveins þar sem Barry
Smith glímir við meiðsli. Gunnar hef-
ur leikið í bakverðinum í sumar en
það sást greinilega gegn KR að Gunn-
ar á heima í miðverðinum. Barry og
Atli hafa myndað gott miðvarðar-
par í sumar en Gunnar leysti Barry af
hólmi með miklum sóma.
MiðjuMenn:
Arnar Grétarsson - Breiðabliki
Arnar átti enn einn skínandi leik-
inn þegar Breiðablik lagði Keflavík
að velli. Völlurinn var erfiður yfir-
ferðar vegna bleytu en það aftraði
Arnari ekki frá að spila góða knatt-
spyrnu. Hann mataði samherja sína
á góðum sendingum og stýrði leik
Breiðabliks eins og honum er ein-
um lagið.
Baldur Aðalsteinsson - Val
Besti leikmaður 12. umferðar. Baldur
átti sinn langbesta leik í sumar gegn
KR. Hann var mikið með boltann og
var óragur að leika á andstæðing sinn
og oft með góðum árangri. Auk þess
skoraði hann tvö mörk, hans fyrstu
mörk í sumar.
Bjarni Guðjónsson - ÍA
Var fremstur í flokki Skagamanna
sem unnu upp 2-0 forystu Framara
og unnu 2-4. Skagamenn voru slak-
ir fyrsta klukkutímann í leiknum.
Það var svo Bjarni sem braut ísinn
og leiddi sína menn til sigurs. Algjör
lykilmaður í liði ÍA. Ef hann á góðan
leik spila Skagamenn vel og öfugt.
SóknarMenn:
Prince Mathilda - Breiðabliki
Teknískur sóknarmaður sem hrein-
lega elskar að vera með boltann.
Prince stríddi varnarmönnum Kefla-
víkur með hraða sínum og leikni
og skoraði annað mark Blika áður
en hann reif sig úr að ofan og söng
Purple Rain í rigningunni í Keflavík.
Kristinn Steindórsson - Breiða-
bliki
Kristinn og Prince ná vel saman
í sókn Breiðabliks. Kristinn hefur
haldið Magnúsi Páli Gunnarssyni úr
liðinu og ekki að ástæðulausu. Þrátt
fyrir ungan aldur sýndi Kristinn
það svo um munaði í leiknum gegn
Keflavík að hann á heima í byrjun-
arliðiðBlika. Lunkinn markaskor-
ari sem hefur einnig gott auga fyrir
spili.
Haukur Ingi Guðnason - Fylki
Spilaði vel í liði Fylkis og var mað-
urinn á bak við flestar sóknarlot-
ur Fylkis sem einhver hætta stafaði
af. Stöðugleika hefur vantað í leik
Hauks Inga í sumar en þegar hann
á góðan leik eiga varnarmenn and-
stæðinganna ekki von á góðu.
lið 12. umferðar
þriðjudagur 14. ágúst 200718 Sport DV
Sir Alex Ferguson, stjóri Manch-
ester United, ætlar ekki að kaupa
framherja þrátt fyrir að skortur sé á
þeim eftir að Wayne Rooney meidd-
ist. Rooney brákaði bein í vinstri rist-
inni gegn Reading og verður frá í allt
að sex vikur. Luis Saha og Ole Gunn-
ar Solskjær eru að snúa aftur eftir
meiðsli og þá er Carlos Tevez í tak-
mörkuðu formi eftir Copa America.
„Tevez er orðinn okkar leikmaður
og lítur bara nokkuð vel út á æfing-
um. Þá eru Ole Gunnar og Saha byrj-
aðir að æfa þannig að þegar allir eru
heilir er ég með fjóra framherjaog ég
ætla ekki að bæta við þá tölu,“ sagði
Ferguson sposkur og bætti við. „Það
myndaðist strax bólga í kringum
meiðslin og það var engin ástæða
til að halda áfram með hann inni á
því það er langt og strangt tímabil
framundan.“ Nemanja Vidic, varn-
armaðurinn sterki, sagði að meiðsli
Rooneys væru mikið áfall fyrir liðið.
„Hann hefur sýnt það á undirbún-
ingstímabilinu hversu mikilvægur
hann er fyrir okkur. Hann var bú-
inn að vera úti um allan völl og það
var mikill missir þegar hann fór útaf
gegn Reading.
Við erum hins vegar með stóran
og sterkan leikmannahóp sem á að
geta staðið sig á löngu tímabili. Við
erum með nýja leikmenn sem geta
skorað mörk og einnig voru hér fyrir
leikmenn sem geta skorað þannig að
kannski er þetta ekki jafnmikið áfall
og fólk segir.“
Spurður um úrslitin á sunnudag
þegar Man. Utd gerði jafntefli gegn
Reading sagði varnartröllið að sá
leikur sé gleymdur og tröllum gefinn.
Hann væri þegar farinn að einbeita
sér að leiknum gegn Portsmouth
sem er í næstu viku. „Við viljum ekki
dvelja of lengi við leikinn á sunnu-
dag. Við töpuðum tveimur stig-
um þar en tímabilið er langt og það
er erfiður leikur á miðvikudag. Við
þurfum að nýta færin okkar í næsta
leik því það verður erfiður leikur á
útvelli en við förum í hann, eins og
alltaf, til að vinna.“
benni@dv.is
Manchester United ætlar ekki að fá annan sóknarmann til liðsins:
Kaupir eKKi
Skömmu fyrir Wayne rooney brákaði bein eftir að
hafa þrumað undir takkana hjá Michael duberry.
Breiðablik 4, Valur 3, Fykir 2, ÍA 1 og KR 1
Haukur ingi Guðnason
prince Mathilda
Kristinn Steindórsson
atli Sveinn Þórarinsson Kristján ValdimarssonGunnar einarsson
Stefán Logi Magnússon
arnór Sveinn aðalsteinsson
Baldur aðalsteinsson
arnar Grétarsson
Bjarni Guðjónsson
landsbankad. kvenna
ÍR - Keflavík 0-3
KR - Fylkir 10-0
Stjarnan - Breiðablik 1-2
Staðan
Lið L u j t M st
1 Kr 11 10 1 0 49:12 31
2 Valur 10 9 1 0 45:5 28
3 Keflavík 11 7 0 4 28:17 21
4 Breiðabl. 11 6 1 4 21:23 19
5 Fjölnir 10 3 3 4 11:14 12
6 stjarnan 11 3 3 5 18:23 12
7 þór/Ka 11 1 1 9 8:34 4
8 Ír 10 1 1 8 12:44 4
9 Fylkir 9 0 3 6 9:29 3
danska úrvalsdeildin
Viborg - Bröndby 1-1
- rúrik gíslason kom inn á sem vara-
maður á 78. mínútu í lið Viborg.
- stefán gíslason lék allan leikinn í liði
Bröndby.
Staðan
Lið L u j t M st
1 randers 5 4 1 0 13:1 13
2 Midtjyl. 5 3 1 1 10:4 10
3 Köbenh. 5 3 1 1 10:5 10
4 OB 5 2 3 0 9:4 9
5 Horsens 5 2 3 0 8:6 9
6 Esbjerg 5 2 1 2 11:10 7
7 Nordsj. 5 1 2 2 4:7 5
8 aaB 5 1 2 2 5:9 5
9 Bröndb. 5 1 2 2 6:9 5
10 Lyngby 5 1 2 2 2:7 5
11 agF 5 0 1 4 3:9 1
12 Viborg 5 0 1 4 2:12 1
sænska úrvalsdeildin
Djurgarden - Hammarby 1-0
- sölvi geir Ottesen kom inn á sem
varamaður á 77. mínútu í lið djur-
garden.
- gunnar þór gunnarsson var skipt
af velli á 77. mínútu í liði Hammarby.
Heiðar geir júlíusson kom ekkert við
sögu.
Halmstadt - Malmö 1-3
Staðan
Lið L u j t M st
1 djurgard. 17 9 4 4 23:14 31
2 Halmst. 17 8 5 4 26:20 29
3 Elfsborg 17 8 5 4 25:18 29
4 gautab. 17 8 4 5 30:19 28
5 Kalmar 17 8 2 7 23:21 26
6 aiK 17 7 4 6 18:18 25
7 Malmö 17 6 6 5 21:16 24
8 Hammar. 17 7 3 7 22:18 24
9 Helsingb. 17 6 5 6 27:23 23
10 gais 17 5 6 6 16:20 21
11 gefle 17 5 5 7 15:19 20
12 Bromm.17 4 4 9 15:32 16
13 Örebro 17 3 6 8 16:27 15
14 trelleb. 17 4 3 10 18:30 15
norska úrvalsdeildin
Stabæk - Start 1-1
- Veigar Páll gunnarsson var ekki í
leikmannahópi stabæk.
- jóhannes Harðarson sat á varaman-
nabekk start allan leikinn.
Staða efstu liða
Lið L u j t M st
1 Brann 17 11 2 4 35:29 35
2 Lillestr. 17 9 5 3 29:13 32
3 stabæk 17 8 6 3 25:22 30
4 Viking 17 8 4 5 30:27 28
5 rosenb. 17 7 4 6 34:26 25
6 tromsö 17 7 3 7 27:27 24
7 Fredriks. 17 5 8 4 25:24 23
8 Lyn 17 6 4 7 27:28 22
Úrslit í gær Landsbankaldeild karla
Átti frábæran leik Baldur
ingimar aðalsteinsson átti
frábæran leik gegn Kr og lék
vörn Vesturbæjarliðsins
grátt, auk þess sem hann
skoraði tvö mörk.
í kvöld
18:35 ToTTenhaM - everTon
Bein útsending frá leik tottenham
Hotspur og Everton í 2. umferð ensku
úrvalsdeildarinnar. þétt er leikið í
upphafi móts og þá ríður á að halda vel
á spöðunum.