Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Blaðsíða 23
Neytendur fá hann sveran í hala- stæðið. Ég var ekki gamall þegar ég áttaði mig á því. Hinn hómó erótíski og aríski He Man datt úr leikfanga- búðum seinni part níunda áratugar- ins. Þegar hann átti sína endurkomu nokkrum árum seinna var búið að breyta honum, hann passaði hvorki í gömlu tækin né Gráskallakastala og samskipti hans við gömlu kynslóð He Man-kalla voru vandræðaleg. Svo foreldrar voru sendir í enn einn leið- angur í leikfangabúðina Liverpool til að byggja He Man-veröldina frá grunni. Ég kímdi að þessu enda var ég Legókall og hélt áfram að bæta við safnið sem eldri systkini mín höfðu byggt upp áratugi á undan. Ég fékk mjög fínt úr seinna sem var í ábyrgð enda bilaði það aldrei. Það gerði hins vegar ólin reglulega og hún var ekki í ábyrgð. Einu sinni reyndi vinur minn að selja mér Rainbow-ryksugu fyr- ir upphæð í ætt við mánaðarlaun kennara. Hann kom heim og bauð upp á sýnikennslu. Hluti hennar var að juða eitthvað með vélinni ofan í baðkarinu. Ég á þessa senu á mynd- bandi en hann hefur farið fram á að ég haldi henni fyrir mig. Meira hahaha Við félagarnir vorum með sítt hár á sínum tíma og þeir keyptu sér svaka fínt sjampó til að hárið yrði ekki feitt og svo þurftu þeir í kjölfarið að kaupa sér hárnæringu til að setja fituna aft- ur í hárið til að það yrði ekki þurrt. Ég hins vegar hætti að sápa á mér hárið. Mæður vina minna spurðu mig sí- fellt í kjölfarið hvað ég setti í hárið til að fá þennan „ótrúlega gljáa“. Vissu- lega tók það meira en mánuð fyrir hárið að ná þessum status. Á meðan var engin blómalykt af því en ég var í sveit á þeim tíma og ekki kvörtuðu svínin. Mín kynslóð byrjaði fyrir al- vöru að úða í sig pitsum. Fólk át pits- urnar en ekki skorpuna. Ekki fyrr en þær voru settar í sérsekk, kryddað- ar, skírðar brauðstangir, sósa fylgdi með og maður borgaði aukalega fyr- ir þær. Fyrsti gsm-síminn minn var hinn sögufrægi Nokia 5110. Hann entist endalaust þar til fyrir stuttu að hann varð undir bíl og dó endanlega ári eftir það. Ég hef átt ótal síma síð- an en þeir eiga það allir sammerkt að bila ef maður talar í þá. Nokia átt- aði sig greinilega á „mistökunum“ að 5110 var of góður og fólk þyrfti þar af leiðandi ekki að kaupa sér nýjan. Svo í dag á ég mun dýrari síma með myndavél sem ég hef notað fjórum sinnum með slökum árangri. Sami sími er að slitna í sundur þrátt fyrir að vera sérstakur iðnaðar- og íþrótta- mannasími. Ekki alveg jafnmikið hahaha Ef maður gekk samfellt í Nike- körfuboltaskónum sínum entust þeir aldrei út árið. Það átti einnig við um önnur föt. Ekki samt um hermanna- föt sem maður gekk iðulega í enda ekki háð sömu markaðslögmálum. En auðvitað er auglýsingamennsk- an sterk í þeim geira líka. Borgarinn hrynur í gæðum á leiðinni frá mat- seðlinum yfir á diskinn þinn og það á líka við um vopnasölugeirann. Vopnasalar hafa logið ríkisstjórnir fullar um gæði söluvörunnar. Sum- ir íslenskir og undarlegir fréttamenn hafa reglulega birt fréttir af ótrúlega fullkomnum vopnum sem Banda- ríkjastjórn var að tryggja sér. Hver man ekki eftir Patriot-flugskeytun- um sem áttu að geta hitt nálarauga í margra kílómetra fjarlægð? Í fram- kvæmd hittu þau saklaust fólk og í Persaflóastríðinu sprengdu þau m.a. upp hótel með vestrænum blaða- mönnum. Ekki alveg nálaraugað sem átt var við. Sama með Stealth- þotuna bandarísku sem vopnasal- ar höfðu logið að heiminum að ekki væri hægt að skjóta niður. Og þeg- ar hún var skotin niður í Júgóslavíu þverneituðu kanarnir því allt þar til flugmennirnir birtust slakir í sjón- varpi sem fangar óvinarins. Það er sama hvaða þjóðir tapa eða vinna í stríði, vopnaframleiðendur græða alltaf. Eins og þegar Bandaríkjastjórn seldi báðum aðilum vopn í Íran/Írak stríðinu. Vopnaframleiðendur græða á stríði svo að sjálfsögðu borga þeir digurt í kosningasjóði stríðsgraðra geðsjúklinga á borð við Dick Cheney og félaga. Ef fólk væri ekki að deyja væri þetta jafnfyndið og uppáhalds- sjónvarpsþátturinn minn. Sjónvarps- markaðurinn Vörutorg á SkjáEinum. Ég meina, hver getur lifað án súkkul- aðigosbrunns, bumbubeltis, candy floss-vélarinnar og þáttastjórnand- asnillingsins sem reynir að selja þér vínylplötuspilara árið 2007 og koma með fótanuddtæki aftur á markað? Þetta er æðislegt en það fyndnasta af öllu er að einhvers staðar þarna úti er einhver hálfviti sem féll fyrir grín- inu. Sem er ótrúlega gott grín, á hans kostnað í öllum merkingum þess orðs. Hádegisverðurinn er oft ókeyp- is en Clean Maxx-gufumoppan kost- ar fjórfalt og það er hahaha. Sleðarnir hættulegir Gay Pride Það var fjölmenni í miðborg Rekjavíkur á laugardag þegar hommar og lesbíur héldu sína árlegu gleðigöngu. Maðurinn lengst til hægri á myndinni mátti vara sig á leðursvipum þátttakenda í skrúðgöngunni. myndin P lús eð a m ínu s Plúsinn í dag fær Maríanna Garðarsdóttir sérfræðingur í myndgreiningu við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri. Maríanna talaði hispurslaust í DV í gær um ástand tækjabúnaðarins á sjúkrahúsinu. Það er öllum til góðs að vekja athygli á slíkum málum. Spurningin „Það er algjörlega fráleitt að velta öllu slíku fyrir sér, blaðamenn sem misskildu dómsmála- ráðherra eru einu mennirnir sem hafa velt þessu upp, það ætti frekar að spyrja þá,“ segir Stefán Eiríksson, lögreglu- stjóri á höfuðborgarsvæðinu, um vanda miðborgarinnar. Á Ekki að banna alla Á aldrinuM 18–23 Ára í MiðborGinni uM hElGar? Sandkassinn Ég er orðinn ruglaður á öllum þessum bönkum. Þeir eru alltaf að skipta um nafn eða samein- ast hver öðrum. Hagræðing segja þeir. Ruglumbull segi ég. Ég man til dæmis ekkert undir hvaða nafni gamli Búnaðarbankinn gengur nú. Er það Glitnir? Eða kannski KB banki sem heitir stundum Kaup- þing? Æ, ég skil þetta ekki. Ég skil bara að Landsbankinn er, verður og hefur alltaf verið Landsbank- inn. Ég fíla það. Landsbankinn er eini bankinn sem ég vil skulda pening. Hvað er annars málið með alla þessa sparisjóði? Vinkona mín á reikning í einum svona sjóði en getur samt ekki farið í annan sjóð og tekið út pening. Samt eru þeir alltaf að sameinast eða að spá í það. Hver er annars munurinn á sjóði og banka? Meira uM bleSSaða bankana. Ég veit ekki alveg hverjum þeirra ég get treyst. Pottþétt ekki öllum. Ég treysti allavega alls ekki KB banka. Klisjulegu gaurarnir sem éta mann hvar sem maður kem- ur eru alveg búnir að gera út um orðspor KB banka. „Má ég spyrja þig einnar spurningar?“ Ávísun á vesen. Þeir hafa stoppað mig í Smáralind, í Kringlunni, á Glerár- torgi á Akureyri og meira að segja á írskum dögum á Akranesi. Þar var ég króaður af í hvítu tjaldi með kandífloss í annarri og Sprite í hinni og spurð- ur spjörunum úr. Áður en dá- leiðslan hófst fyrir alvöru náði ég að segja að ég væri með lífeyrissparnaðarsamn- ing í öðrum banka, henda frá mér kandíflossinu og hlaupa eins og fætur toguðu út úr tjaldinu og upp í bíl, þar sem ég fullvissaði mig um að ég hefði ekki skrifað undir neitt. enSki boltinn byrjaði um helgina. Því fylgdu blendnar tilfinningar. Það er ekki ungum manni bjóð- andi að kaupa áskrift að Sýn 2. Ég hef einfald- lega ekki efni á því. Finnst hálf- kjánaleg tilhugs- un að biðja um launahækkun til að geta horft á enska boltann. Frekar sleppi ég því. Af hverju get- ur enski boltinn ekki verið í boði Kaupþings eða Glitnis eins og allt annað nú til dags? Þá myndi ég kannski fást til að skrifa nafnið mitt á blað hjá þeim. Það væri alla- vega skref í rétta átt. annarS Skil Ég ekki hvernig Brynj- ar Björn og Ívar Ingimars geta spilað heilan leik á Old Trafford án þess að fá á sig eitt einasta mark. Þeir spila oft heilu mánuðina með Reading án þess að andstæðing- arnir fái svo mikið sem færi fyrir framan markið þeirra. Af hverju fá þeir svo alltaf þrjú eða fimm mörk á sig þegar þeir spila með lands- liðinu? Eru hinir í landsliðinu svona lélegir? Grétar Rafn er samt fínn og Hermann. Árni Gautur líka. Það er margt sem ég skil ekki. baldur botnar ekkert í bönkunum Hahaha DV Umræða ÞRiðjudaguR 14. ágúSt 2007 23 Útvatnaður saltfiskur án beina til að sjóða Sérútvatn. saltfiskur án beina til að steikja Saltfisksteikur (Lomos) fyrir veitingahús ErPur Eyvindarson. tónlistarmaður skrifar Vopnasalar hafa logið ríkisstjórnir fullar um gæði söluvörunnar. Sumir íslenskir og undarlegir fréttamenn hafa reglulega birt fréttir af ótrúlega fullkomnum vopnum sem Banda- ríkjastjórn var að tryggja sér. Hver man ekki eftir Patriot-flugskeytunum sem áttu að geta hitt nálarauga í margra kílómetra fjarlægð?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.