Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Qupperneq 30
þriðjudagur 14. ágúst 200730 Síðast en ekki síst DV Sandkorn n Athygli vakti þegar XXX Rott- weilerhundar opnuðu bloggsíðu vegna skuldar Óskars Axels Ósk- arssonar, eiganda útvarpsstöðv- arinnar Flass, við þá. Innheimtu- aðgerðir hundanna hafa ekki borið árangur en fleiri hafa bæst í hóp- inn. Sá nýjasti er Steindi jr., fyrrverandi útvarpsmað- ur Flass. Sá setti mynd af lógói stöðv- arinnar á Myspace-síðu sína með skilaboðunum: „Skuldið mér pening! rotturnar ykkar...“ Þá vek- ur athygli að meðlimir Rottweil- er hafa kvittað undir myndina: „Hringdu í Óskar Axel, maður, aldrei að vita nema hann skveri skuldina við þig með tveimur un iceland skóm á sama fótinn en í sitt hvorri stærð og hver veit nema trýnið negli á þig kippu af Sinalco sem er búið að standa út í glugga í sól.“ Það er naumast. n Liverpool-menn fá ekki nóg af því að kvarta sáran yfir verðlagn- ingu Sýnar 2 á enska boltanum. Liverpool- bloggið er uppfullt af spjallþráð- um þar sem verðið, lýs- ingarnar og allt sem þeim dettur í hug er gagnrýnt. Sé skoðað undir yfirborðið sést að flestir netverjar þar eru forstjórar, eigendur fyrirtækja eða háttsettir innan stórfyrirtækja. Halda mætti að fyrirtækin borguðu Liver- pool-mönnunum ákaflega illa þrátt fyrir góðærið hér á landi. Því vaknar spurningin hvort Liverpool-menn séu lítils metnir hér á landi. Eru Liverpool-menn kannski Pólverjar á Íslandi? n Markaðsmaður Íslands og besti vinur íslenska lambsins, Baldvin Jónsson, hélt upp á sextugsaf- mæli á Hótel Sögu á sunnudag. Margt var um manninn, enda Baldvin eignast marga og góða vini í gegnum tíðina. Veislustjór- arnir Björgvin Halldórsson, Siggi Hall og Þorgeir Ástvalds kynntu ræðumenn á svið. Þeirra á meðal voru Jón Baldvin Hannibalsson, Ómar Ragn- arsson sem söng að sjálf- sögðu frum- samið lag í tilefni dags- ins, Laddi í hlut-verki kjötiðnaðar- mannsins og enginn annar en Guðni Ágústs- son batt enda á ræðuhöldin af sinni alkunnu snilld. Hver er maðurinn? „Gunnar Már Másson, fæddur 15. mars 1971 og uppalinn í Reykjavík. Ég er fjölskyldumaður, fjögurra barna faðir, flugmaður hjá Icelandair og bý í Lúxemborg.“ Hvað drífur þig áfram? „Fjölskyldan mín og málefni blindra er það sem drífur mig áfram.“ Í hvað fer tími þinn? „Tími minn fer í fjöslylduna mína og að skila starfi mínu sem flugmað- ur vel.“ Hver eru áhugamál þín? „Fjölskyldan mín, börnin og Lína Rut, konan mín. Ég hef áhuga á mál- efnum blindra og almennri útiveru.“ Ertu alveg hættur að spila fótbolta? „Já, þeim kafla í lífi mínu er lokið. Ég hef ekkert spilað fótbolta eftir að ég fótbrotnaði í leik með Keflavík fyr- ir tíu árum. Ég var orðinn hægur og seinn og þá er óþarfi að bjóða hætt- unni heim.“ Hverjar eru fyrirmyndir þínar? „Afi minn Gunnar Helgason og pabbi minn Már Gunnarsson.“ Eru þið fjölskyldan ánægð með lífið í Lúxemborg? „Já, okkur líður rosalega vel í hér. Við fjölskyldan náum góðum gæða- tíma saman. En það er pínulítið erfitt að vera hluti af samfélagi þar sem þú skilur ekki málið fjarri fjöl- skyldu og vinum. Okkur líður alltaf best heima á Íslandi og við mund- um flytja aftur heim á morgun ef að- stæður blindra væru betri. Við sjá- um ekki fram á að geta flutt heim í bráð en viljinn er svo sannarlega fyrir hendi. Már talar nú lúxem- borgísku, skilur þýsku og stendur sig almennt mjög vel í náminu. Ég er mjög stoltur af honum.“ Hvað þarf að gera til að mennt- un blindra og sjónskertra verði ásættanleg? „Í fyrsta lagi þarf að vera til þekk- ingarmiðstöð blindra og sjónskertra á Íslandi. Í öðru lagi þurfa að vera menntaðir kennarar í blindraletri og blindrakennslu. Í þriðja lagi þarf að halda umræðunni um málefni blindra og sjónskertra lifandi til að árangur náist.“ Telur þú að opinber umræða þín hafi fengið ríkisstjórnina til að grípa til aðgerða? „Ég tel að umfjöllun DV síðast- liðið ár hafi kveikt ákveðinn neista í þjóðfélaginu og hjá ríkisstjórninni. Ef mitt innlegg hefur eitthvað hjálp- að til í þessari baráttu er það auðvitað gleðiefni.“ Hefur þú trú á bráðabirgða- aðgerðum ríkisstjórnarinnar? „Já, ég hef trú á þeim og ríkis- stjórnin á hrós skilið fyrir viðbrögð sín. Það er þó mikilvægt í þessu öllu saman að sofna ekki á verðinum því þrátt fyrir allt eigum við enn langt eft- ir í land. Ég skora því á þá sem taka við þeim fjörutíu milljónum sem nú á að leggja í málaflokkinn að verja þessum peningum með skipulögð- um og markvissum hætti.“ Hvað er fram undan? „Það er fram undan hjá okkur fjöl- skyldunni að nýtt skólaár er að hefjast hjá honum Má í haust þar sem hann mun stíga enn stærri skref til að auka þekkingu sína á blindraletrinu. Ég flýg mín flug hjá Icelandair og síðan bíð ég spenntur eftir stórri myndlist- arsýningu hjá Línu Rut þann 8. mars í Lúxemborg. Annars ætlum við að nýta þennan vetur til að hafa gaman og skemmtilegt í lífinu.“ Eitthvað að lokum? „Í gær hófst námskeið á vegum Blindrafélagsins í samstarfi við Kenn- araháskóla Íslands. Á þessu nám- skeiði sitja nú kennarar og leiðbein- endur í sumarfríinu sínu til þess að auka menntun sína. Þessir einstakl- ingar eru svo sannarlega menn dags- ins í mínum augum í dag.“ MAÐUR DAGSINS veltingur Sigurjón M. egilsson skrifar. Pú Það er mikið á suma lagt. Ég er einn af þeim, hér heima styð ég KR og í Englandi West Ham. Ekki er hægt að segja að fótboltalífið leiki við mig þessa dagana. KR getur ekkert og það er sama hvað er reynt, allt mis- tekst. Ekki ætlar það að verða skárra hjá West Ham, eftir mörg stór orð og mikl- ar væntingar sýndi liðið í sínum fyrsta leik að það getur ekkert. Það var púað á leikmennina, þjálfarana og Eggert á fyrsta leik. Frammistaðan var með þeim hætti að minnti helst á Ísland í Júróvisjon. Búið var að blása út ágæti alls og væntingarnar voru ótakmark- aðar og vonir allar eftir því. Svo kom í ljós að önnur lið höfðu líka undirbúið sig og það jafnvel meira og betur en vonarprinsar okkar Ís- lendinganna. Enda var bara púað. Í enskum fótbolta tíðkast að segja hug sinn, jafnvel með púi. Á Íslandi er bannað að púa, eða allavega illa séð. Hjá KR gengur hvorki né rek-ur. Einn sigur það sem af er sumri og allt í steik. Það er búið að skipta um þjálfara. Áður en það var gert hafði KR ekki tapað í fimm leikjum, reyndar bara unnið einn af þeim, en ekki tapað hinum. Framfar- ir. Svo var skipt um þjálfara sem gerði breyting- ar. Tók marga af ungu mönnunum út úr liðinu og setti þá elstu inn í staðinn. Síðan hefur allt tapast. Á Íslandi má ekki púa. Hvergi í heiminum er spilaður fótbolti eins og á Englandi. Þar hlaupa leikmenn meira en í öðrum löndum og berjast meira en þekkist annars staðar. Í stúkunum eru stuðningsmenn sem krefjast þess. Þeir láta til sín heyra, hafa ekki skilning á leti eða kjarkleysi. Krefj- ast baráttu og árangurs. Það sást á Upton Park á laugardag. Ég ætla ekki á næsta leik KR. Ég ætla að púa í fjarlægð. Mótmæla í hljóði. Hitt er víst dóna- skapur – á Íslandi. NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ DV Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði Fjölskyldan og máleFni blindra dríFa mig áFram Gunnar Már Másson flugmaður, fyrrverandi fótbolta- kappi og ötull baráttumaður í málefnum blindra og sjónskertra fluttist fyrir rúmu ári til Lúxem- borgar til að Már gunnarsson, blindur sonur hans, fengi viðun- andi menntun. Í DAG Á MORGUN HINN DAGINN Veðrið +6 7 +15 1 +7 2+104 +12 3 +11 2 +8 7 +8 2 +10 3 +8 3 +11 2 +8 7 +8 3 +9 4 +7 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.