Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.2007, Síða 32
„Ég veit eiginlega ekkert hvert ég
á að snúa mér í málinu og er gráti
næst yfir því hversu slæm viðbrögð
ég fékk hjá sendiráðinu. Þar var mér
einfaldlega kastað á dyr og tjáð að
þar fengi ég enga aðstoð. Sendiráð-
ið lokaði bara á mig. Núna er staðan
þannig að ég fæ varla að heimsækja
son minn og fæ enga hjálp,“ segir
Bryndís B.G. Hrafnar, móðir 21 árs
gamals manns sem á við geðfötlun
að stríða.
Bryndís hefur búið síðastliðin
ár í Danmörku ásamt syni sínum
sem hefur í sex ár glímt við geðræn
vandamál. Um síðustu mánaða-
mót hugðist hún fara með hann til
Íslands til að fá hjálp sérfræðinga.
Að hennar sögn kom til vandræða
á Kastrup-flugvelli er sonurinn fékk
ekki að fara í gegnum öryggiseft-
irlitið með tálgað prik. Hann brást
ókvæða við og var í kjölfarið hand-
tekinn af dönsku lögreglunni. Þaðan
var ekið með hann á geðsjúkrahús
þar sem hann hefur verið vistaður
síðan. Bryndís kvartar sáran undan
samskiptum sínum við starfsmenn
sendiráðs Íslands í Kaupmanna-
höfn og segist ráðalaus í stöðunni
þar sem hún megi varla svo mikið
sem heimsækja son sinn á sjúkra-
húsið.
Þær upplýsingar fengust hjá ut-
anríkisþjónustunni að bein inn-
grip í mál séu afar takmörkuð en
á þeim bænum sé fylgst með mál-
inu án þess að aðhafst verði frekar
að svo stöddu sökum þess að mæð-
ginin séu með skráð lögheimili í
Danmörku og falli fyrir vikið undir
dönsk lög. trausti@dv.is
Öllum nýnemum Háskólans í Reykja-
vík er boðið á bjórhátíð í Þrastaskógi
um næstu helgi. Hátíðin er auglýst í
nafni Símans og Kaupþings sem eru
styrktaraðilar nemendafélaga skól-
ans. Hátíðin ber heitið Tuborg-úti-
legan og það er því í raun Ölgerð-
in Egill Skallagrímsson sem styrkir
bjórveitinguna.
Í Þrastaskógi verður slegið upp
risaveislutjaldi þar sem Stúdentaráð
Háskólans í Reykjavík býður til grill-
veislu og öllum verður boðið upp á
Tuborg-bjór. Í auglýsingu hátíðar-
innar eru veislugestir hvattir til að
teyga kaldan bjór í gígalítratali, þar
er sagt að gleðinni verði haldið eins
lengi fram eftir nóttu og þeir hörð-
ustu hafi orku til.
Hans Róbert Hlynsson, formað-
ur Pragma, félags verkfræðinema
við Háskólann í Reykjavík, segir
markmið hátíðarinnar að fagna öll-
um nýnemum skólans. Hann segir
það undir hverjum og einum gesti
komið hvort hann neyti áfengis eður
ei. „Nafn hátíðarinnar er til komið
vegna þess að Tuborg gefur bjórinn
og borgar tjaldið. Það er rétt skilið að
þátttakendum hátíðarinnar er boðið
upp á bjór en fólk kýs það sjálft hvort
það neytir áfengis eða ekki.“
Styrkjum ekki bjórdrykkju
Ásgeir Ingason, sérfræðingur á
markaðssviði Kaupþings, segir skýrt
að bankinn styðji ekki bjórhátíð-
ir sem þessa. Hann er ekki ánægð-
ur með að fyrirtækið sé bendlað við
þetta. „Það er alrangt að við séum
að styrkja bjórhátíðir. Við erum með
samninga við nemendafélögin og
styrkjum þeirra starfsemi almennt.
Hvað varðar þessa útilegu, þá höf-
um við ekkert komið nálægt henni á
nokkurn hátt og fyrst og fremst virð-
ist það vera Tuborg sem er að setja
bjór þarna inn,“ segir Ásgeir. „Að
þarna sé veittur bjór er alls ekki með
okkar samþykki og ekki fyrir okkar
tilstilli. Það er af og frá. Það samræm-
ist einfaldlega ekki okkar stefnu og
við erum ekkert hrifin af því að vera
bendluð við þetta.“
Alveg á grensunni
Rafn M. Jónsson, verkefnisstjóri
áfengis- og vímuvarna Lýðheilsu-
stöðvar, er undrandi yfir því að leggja
þurfi svo mikla áherslu á bjórdrykkj-
una. „Ég myndi halda að þarna sé
hætta á því að einstaklingar undir
lögaldri leynist inni á milli og sam-
kvæmt dagskrá hátíðarinnar eiga all-
ir rétt á bjórnum. Lögum samkvæmt
verða því hugsanlega lögbrot framin
og því um lögreglumál að ræða,“ seg-
ir Rafn. „Hátíðin er drykkjuhvetjandi
og verið að skapa drykkjuumhverfi
fyrir einstaklinga sem flestir eru ný-
skriðnir inn á aldur til að mega neyta
áfengis. Gagnvart sinni stefnu sem
ábyrg fyrirtæki verða þau að huga vel
að því hvað þau eru að styrkja því að
mínu viti er þetta ekki eitthvað sem
virt fyrirtæki eiga að leitast eftir. Þessi
hátíð finnst mér alveg á grensunni og
skilyrði að fólk verði spurt um skilríki
til að koma í veg fyrir lögbrot. Það
verður örugglega ekki frítt gos fyrir
þá sem vilja.“
þriðjudagur 14. ágúst 2007 n Dagblaðið vísir stofnað 1910
FréttASkot
5 1 2 7 0 7 0
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til frétta.
Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast 5.000 krónur.
Að auki eru greiddar 10.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar.
Þannig er hægt að fá 15.000 krónur fyrir besta fréttaskot mánaðarins.
Ó, hve góðglöð er vor æska?
BJÓÐA NEMENDUM Á FYLLERÍ
Styrktaraðilar nemendafélaga HR tengjast Tuborg-bjórhátíð nýnema:
Hún á afmæli Kringlan fagnaði tuttugu ára afmæli í gær. Í tilefni dagsins var haldin vegleg fjölskyldudagskrá í verslunarmiðstöð-
inni. Meðal þess sem boðið var upp á var andlitsmálun fyrir börnin, Barna- og unglingaleikhúsið setti upp leikritið um Öskubusku,
Skoppa og Skrítla tróðu upp og sirkustrúðurinn Wally sýndi kúnstir sínar.
Móðir gráti nær eftir að sonur hennar var handtekinn á Kastrup:
Sendiráðið kastaði mér á dyr
Sameining
í Skagafirði
„Það má segja að hér hafi
yfirtaka verið samþykkt,“ segir
Gísli Árnason, einn stofnfjáreig-
enda í Sparisjóði Skagafjarðar. Í
gær var tillaga um sameiningu
Sparisjóðs Skagafjarðar og Spari-
sjóðs Siglufjarðar samþykkt á
aðalfundi stofnfjáreigenda þess
fyrrnefnda.
Sextíu greiddu atkvæði gegn
sameiningunni en 33 voru fylgj-
andi. Vægi þeirra síðarnefndu
var þó meira vegna meiri eignar
þeirra. „Þarna er það mismundi
styrkleiki stofnfjárhluta sem ræð-
ur niðurstöðunni,“ segir Gísli.
Hann segir að miðað við þessa
niðurstöðu sé greinilegt að meiri-
hluti venjulegra stofnfjáreigenda
í Skagafirði séu andvígir þessum
ráðahag.
Nokkrar deilur hafa verið um
sameininguna og hefur hóp-
ur stofnfjáreigenda í Skagafirði
sakað stjórn sjóðsins um að hafa
ekki haft hagsmuni sjóðsins að
leiðarljósi.
Boðaðir í viðtöl
Drengir sem vistaðir voru á
Breiðuvíkurheimilinu á árunum
1952 til 1975 hafa verið boðaðir til
viðtals í húsakynnum forsætis-
ráðuneytisins. Sérstök nefnd til
þess að rannsaka upptökuheimili
sem störfuðu hér á landi var skip-
uð af ríkisstjórninni í vor. Áætlað
er að viðtölin muni taka um einn
mánuð.
DV greindi fyrr á þessu ári ít-
arlega frá því sem drengirnir á
Breiðuvík máttu þola og í kjölfar-
ið stofnuðu fyrrverandi vistmenn
regnhlífarsamtök fyrir fórnarlömb
illrar meðferðar á uppeldisheim-
ilum.
trAuSti HAFSteinSSon
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Verðbólgan
minnkar enn
Verðbólga minnkar enn og sam-
kvæmt spá greiningardeildar Lands-
bankans er talið að hún verði ekki
lægri að sinni. Verðbólgan hefur
minnkað lítil-
lega en sumar-
útsölur hafa þar
mest áhrif. Verð
á fötum og skóm
lækkaði um 6,8
prósent í mánuðinum. Áhrif af út-
sölum fjara út í september og er talið
að þá muni verðbólgan aftur hækka.
Verðbólgan mælist nú 3,4 prósent en
fór mest í 8,6 prósent fyrir ári. Grein-
ingardeild Kaupþings telur að sú
hætta sé fyrir hendi að gengislækkun
krónunnar að undanförnu geti leitt til
verðbólguþrýstings í hagkerfinu, líkt
og átti sér stað í fyrra.
Háskólinn í reykjavík Nýnemum er boðið að þjóra bjór í gígalítratali, eins og
segir í auglýsingu. Allt er þetta í boði stórfyrirtækja.
Banaslys
Karlmaður lést þegar bifreið
hans fór út af Þorlákshafnarvegi í
Ölfusi til móts við Grímslæk laust
eftir klukkan sex í gærkvöld.
Í tilkynningu frá lögreglunni á
Selfossi kemur fram að ökumað-
ur hafi verið úrskurðaður látinn
á slysstað. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar var kölluð á slysstað.
45 milljóna
króna heræfing
Íslendingar borga 45 milljónir
króna vegna kostnaðar við heræf-
inguna Norðurvíking sem hefst í
dag. Þetta er matarreikningurinn
fyrir þá sem taka þátt í æfingunni.
Um 300 hermenn frá fjórum
ríkjum hefja í dag heræfingar.
Hermennirnir eru frá Bandaríkj-
unum, Danmörku, Lettlandi og
Noregi, auk þeirra taka íslensk-
ir lögreglumenn og starfsmenn
Landhelgisgæslunnar þátt í æf-
ingunni.
Æfingin sem hefst í dag er sú
fyrsta sem haldin er hérlendis
samkvæmt varnarsamkomulagi
Íslands við Bandaríkin sem geng-
ið var frá í fyrra.
Brotlenti svifdreka
og vankaðist
Svifdrekamaður brotlenti dreka
sínum og vankaðist um sexleytið í
gærkvöldi. Þegar lögregla og sjúkra-
flutningamenn komu að manninum
var hann við meðvitund en nokkuð
vankaður.
Varðstjóri hjá lögreglu segir að illa
hafi gengið að komast að mannin-
um, þar sem hann hafi brotlent úti í
móa. Hann var fluttur á slysadeild til
rannsókna.