Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2007, Qupperneq 7
DV Fréttir miðvikudagur 29. ágúst 2007 7
Allar fangageymslur lögreglunnar við Hverfisgötu fylltust í fyrrinótt en þar eru fjór-
tán klefar. Þetta þykir heldur óvenjulegt á mánudagskvöldi og segir Gunnar Hilmars-
son, varðstjóri hjá lögreglunni, að lögreglan hafi haft í nógu að snúast. Margir voru
handteknir fyrir þjófnaði og innbrot og tveir sátu inni vegna ölvunar á almannafæri.
„Það voru nokkuð margir handteknir
í tengslum við þjófnaði og innbrot í
fyrrinótt. Þetta er harla óvenjulegt
á mánudagskvöldi og kemur sem
betur fer sjaldan fyrir,“ segir Gunnar
Hilmarsson, varðstjóri hjá lögregl-
unni í Reykjavík.
Allt fullt
Allar fangageymslur lögreglunn-
ar í Reykjavík voru fullar í fyrrinótt.
Töluvert var um ölvun í miðbænum
og hafði lögreglan í nógu að snúast.
Tveir karlmenn voru handteknir fyr-
ir ölvun á almannafæri en þrír voru
handteknir og gistu fangaklefa vegna
þjófnaðarmála. Fjórir voru hand-
teknir vegna innbrota eða tengdra
mála. Samtals gerir þetta níu manns
en í lögreglustöðinni við Hverfisgötu
eru fjórtán fangaklefar. Auk þess gistu
fimm einstaklingar fangageymslur
sem afplána þar vegna vangoldinna
sekta eða annarra brota. Þeir koma
yfirleitt til afplánunar í nokkra daga
áður en þeim er sleppt. „Það er ekki
venjan að allar geymslur fyllist aðfara-
nótt þriðjudags. Það hefur svo sem
gerst áður að fangageymslur fyllist í
miðri viku. Það er samt algengara að
þær fyllist þegar nær dregur helgi en á
mánudagskvöldum,“ segir Gunnar.
Í þarsíðustu viku voru allar fanga-
geymslur lögreglunnar fullar á mið-
vikudagskvöldi og þótti mönnum
það heldur óvenjulegt. Þá sátu flestir
inni vegna ölvunar á almannafæri og
hafði lögreglan í nógu að snúast með
að stilla til friðar í heimahúsum þar
sem mikið var kvartað undan hávaða
í miðborginni.
Venjulegt sumar
Í gær var fullt tungl og er það göm-
ul speki að hegðun manna breyt-
ist á fullu tungli. Aðspurður hvort
það kunni að hafa einhver áhrif seg-
ir Gunnar að hann vilji ekki útiloka
það. Föstudagsnóttin hafi hins veg-
ar verið mjög róleg þrátt fyrir stöðu
tunglsins og það kunni að geta fellt
þá kenningu. „Það var fullt tungl um
helgina og það getur skýrt ýmislegt.
Föstudagsnóttin var reyndar mjög
róleg en það var öllu meiri erill á
laugardagskvöldið. Menn geta fund-
ið skýringar á öllu mögulegu.“
Gunnar segir að fangageymslur
lögreglunnar séu iðulega fullar um
helgar og það sé nokkuð sjaldgæft
að nokkuð pláss sé eftir að morgni.
Aðspurður hvort sumarið sem er
að líða hafi verið erilsamara heldur
en undanfarin sumur segir Gunn-
ar að svo sé ekki. „Þetta er búið að
vera nokkuð venjulegt sumar og
í raun ekkert frábrugðið því sem
við höfum séð. Það hefur allavega
ekki skapast neitt vandræðaástand
í sumar.“
ALLIR KLEFAR FULLIR
EinAr Þór SiGurðSSon
blaðamaður skrifar einar@dv.is
innbrot tveir menn
handteknir á
mánudeginum og
vistaðir í fanga-
geymslum í tengslum
við innbrot í
bensínstöð á
kjalarnesi.
2
Þjófnaður Par frá
rúmeníu var
handtekið á
mánudeginum vegna
gruns um sölu á
stolnum skartgripum.
Þau höfðu dvalið hér
á landi í skamman
tíma og voru með
ung börn með sér,
strák og stelpu.
2
innbrot Lögreglan
stöðvaði karl og konu í
bíl aðfaranótt
þriðjudagsins. við leit í
bílnum fundust hlutir
sem hægt var að tengja
við innbrot frá því í
byrjun ágúst. Í bílnum
fundust meðal annars
tölvur og önnur tæki.
að sögn lögreglu hafa
þau komið við sögu
lögreglu oft áður.
2
Ölvun á almanna-
færi tveir karlmenn
gistu fangageymslur
vegna ölvunar á
almannafæri. að sögn
lögreglu kunnu þeir
ekki fótum sínum
forráð. Því var ákveðið
að leyfa þeim að sofa
úr sér ölvímuna.
2
Þjófnaður karlmaður
handtekinn vegna
þjófnaðar í 10-11 við
Barónsstíg á mánu-
dagskvöldið. Hann
hrifsaði peninga úr
afgreiðslukassa
verslunarinnar og var
handtekinn skömmu
síðar á Laugaveginum.
1
Afplánun sitja af sér
fallinn dóm eða
vangoldnar sektir.5
NÝR HPI SAVAGE X 4,6
Öflugasta útgáfan til þessa. Væntanlegur
aftur, tekið er við fyrirfram pöntunum.
Nethyl 2. Sími 587-0600. www.tomstundahusid.is
Sama verðið Lögmaður dala-rafns
segir umbjóðanda sinn hafa gengið á
milli olíufélaga en alls staðar fengið
sama tilboðið.
Krefjast frávísunar Olíufélögin krefjast
frávísunar bótakröfu og segja málið
vanreifað.