Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2007, Page 17
DV Sport miðvikudagur 29. ágúst 2007 17
í dag
18:30 Premier League WorLd
Heimur úrvalsdeildarinnar
Nýr þáttur þar sem enska úrvalsdeildin
er skoðuð frá ýmsum óvæntum hliðum.
19:00 CoCa CoLa mörkin 2007-
2008
Farið yfir öll mörkin og helstu atvikin í
leikjum síðustu umferðar í Coca Cola
deildinni.
19:30 engLish Premier League
2007/08
Ensku mörkin 2007/2008
Ný og hraðari útgáfa af þessum vinsæla
þætti þar sem öll mörkin og helstu atvik
umferðarinnar eru sýnd frá öllum
mögulegum sjónarhornum.
20:25 4 4 2
Þáttur sem er ekkert minna en bylting í
umfjöllun um enska boltann á Íslandi.
21:45 Leikur vikunar
23:25 Premier League 2007/2008
sunderland - Liverpool
útsending frá leik sunderland og
Liverpool.
antonio Puerta, leikmaður Sevilla, lést á sjúkrahúsi í gær, 22 ára gamall. Hann fékk
hjartaáfall í leik Sevilla og Getafe um síðustu helgi og aftur í búningsklefanum
skömmu síðar.
26.11.84 – 28.08.07
Spænski knattspyrnumaðurinn
Antonio Puerta lést á sjúkrahúsi
í gær, 22 ára gamall. Puerta var
miðjumaður Sevilla og lék einn
landsleik fyrir Spánverja. Hann
skilur eftir sig eiginkonu sem er
komin sjö mánuði á leið með
þeirra fyrsta barn.
Puerta hneig í völlinn í leik
Sevilla og Getafe í fyrstu umferð
spænsku deildarinnar á laugar-
daginn. Ástæðan var hjartaáfall.
Læknar náðu að lífga hann við, Pu-
erta stóð á fætur og gekk af velli.
Nokkrum mínútum síðar fékk
Puerta annað hjartaáfall inni í bún-
ingsklefa og var honum þá ekið í
flýti á sjúkrahús, þar sem hann var
í gjörgæslu.
Læknar á Virgen del Roc-
io sjúkrahúsinu í Sevilla höfðu
áhyggjur af því hve langan tíma
það tók hann að jafna sig og þau
áhrif sem hjartaáfallið hefði á innri
líffæri. Í ljós kom að hann hafði
hlotið heilaskaða í kjölfar hjarta-
áfallsins.
Fregnir bárust af því á sunnu-
dag og mánudag að ástand Puerta
væri stöðugt en í gærmorgun hrak-
aði honum mikið. Það var svo til-
kynnt um miðjan dag í gær að Pu-
erta væri látinn. Puerta var giftur
og þau hjónin áttu von á barni eftir
tvo mánuði.
Sevilla hefur ákveðið að far-
ið verði með líkkistu leikmanns-
ins á Sanchez Pizjuan, heimavöll
Sevilla, þar sem stuðningsmenn
félagsins geta vottað honum virð-
ingu sína. Hann verður jarðaður á
morgun.
einn landsleikur að baki
Puerta fæddist 26. nóvember
1984. Hann lék 66 leiki með Sevilla
og lék einn landsleik fyrir Spán.
Hann lék einnig fimm landsleiki
með ungmennalandsliði Spán-
verja. Puerta var fæddur og uppal-
inn í Sevilla og hafði verið hjá félag-
inu í fjórtán ár. Hann hóf að leika
með B-liði félagsins árið 2002.
Puerta lék stórt hlutverk í liði
Sevilla sem hefur unnið Evrópu-
keppni félagsliða tvö síðustu tíma-
bil og frammistaða hans vakti
athygli liða á borð við Arsenal,
Manchester United og Real Madr-
id.
Sevilla átti að leika gegn AEK
Aþena í undankeppni Meistara-
deildar Evrópu í gær. Leiknum var
frestað í kjölfar þessa hræðilega at-
burðar og fer fram mánudaginn 3.
september. Leik Sevilla og Osas-
una sem fram átti að fara á mánu-
daginn hefur verið frestað af þeim
sökum.
Sevilla á að spila við AC Milan
í Ofur-bikarnum evrópska á föstu-
daginn. AC Milan vottaði samúð
sína í gær og sagði að félagið væri
tilbúið til að fresta þeim leik, ef far-
ið yrði fram á það.
„AC Milan er harmi slegið yfir
dauða Puerta og vottar Sevilla og
fjölskyldu leikmannsins samúð
sína. Milan mun virða þá ákvörð-
un sem UEFA tekur varðandi leik-
inn,“ segir í yfirlýsingu sem AC Mil-
an sendi frá sér í gær.
stóð á fætur Puerta gat staðið á fætur
og gengið af velli eftir atvikið
óhugnanlega í leik sevilla og getafe.
dagur sveinn dagbjartsson
blaðamaður skrifar: dagur@dv.is
ÍÞRÓTTAMOLAR
gunnar tiL noregs
gunnar Heiðar Þorvaldsson, landsliðs-
maður í knattspyrnu, flaug í gær til Óslóar
í Noregi þar sem hann gekkst undir
læknisskoðun. Þar
mun hann að öllum
líkindum skrifa
undir tíu mánaða
lánssamning, hjá
úrvalsdeildarliði
vålerenga. gunnar
Heiðar hefur verið
leikmaður þýska 1.
deildar liðsins
Hannover síðan í
mars í fyrra, og er samningsbundinn
liðinu til vormánaða 2009. Fleiri lið voru á
höttunum eftir gunnari Heiðari, þar á
meðal agF frá danmörku auk fleiri
norskra liða og liða úr næstefstu deild í
Þýskalandi. árni gautur arason
landsliðsmarkvörður er á mála hjá
vålerenga en liðið er í 9. sæti norsku
deildarinnar. vålerenga hefur skorað fæst
mörk allra liða í deildinni í ár og er ljóst að
gunnari Heiðari er ætlað að bæta úr því.
ronaLdinho tiL CheLsea
daily mail segir frá því að eigandi Chelsea
roman abramovich sé tilbúinn að borga
hvað sem er fyrir ronaldinho hjá Barce-
lona. Blaðið þykir ekki vera með því trú-
verðugasta í heimi
og er þekkt fyrir að
skálda fréttir. Blaðið
hins vegar gróf upp
viðtal við ronaldin-
ho frá 2004 þar sem
hann segir. „Bróðir
minn sem er einnig
umboðsmaður
minn hefur oft og
mörgum sinnum
talað við mig um Chelsea. Ég virði þá mik-
ið og kannski verð ég í London einhvern
daginn,“ á ronaldinho að hafa sagt. Hann
fékk ekki alls fyrir tvöfaldan ríkisborgara
rétt og er því auðveldara fyrir hann að
komast að hjá Chelsea. Það sem ronald-
inho vissi hins vegar ekki var að hann þarf
nú að borga skatta til spánar og er hann
víst ósáttur við það.
kefLvíkingar fáLiðaðir
keflvíkingar eru í slæmum málum fyrir
leik sinn gegn Fram á fimmtudaginn. Þrír
leikmenn liðsins meiddust í leiknum gegn
val á sunnudaginn og í gær voru þeir
Baldur sigurðsson og símún samuelsson
dæmdir í eins leiks bann af aganefnd ksÍ.
Ómar Jóhannsson markvörður meiddist á
hné og leikur að öllum líkindum ekki með
gegn Fram og sömu sögu er að segja af
bakverðinum Bran-
islav milisevic, sem
meiddist á ökkla.
Þá þurfti guð-
mundur steinars-
son að yfirgefa völl-
inn gegn val með
heilahristing en
hann verður líklega
í leikmannahópn-
um gegn Fram. Þá
var liðið sektað um tíu þúsund krónur
vegna brottvísunar Jóns Örvars arasonar
forráðarmanns liðsins. Þá voru þeir guð-
mann Þórisson, Hólmar Örn Eyjólfsson og
Birkir már sævarsson allir dæmdir í eins
leiks bann í gær.
Clive Clarke varnarmaður Leicester hneig niður í deildarbikarleik í gær:
FÓTBOLTAHEIMURINN Í UPPNÁMI
Fótboltaheimurinn var varla
búinn að jafna sig eftir ótímabært
andlát Antonios Puerta leikmanns
Sevilla þegar fréttir bárust frá Eng-
landi um að leik Leicester og Nott-
ingham Forest hefði verið hætt eftir
að einn leikmaður Leicester, Clive
Clarke, hneig niður í búningsher-
bergi liðsins í hálfleik. Leiknum var
frestað, þegar staðan var 1-0 fyrir
Nottingham, enda leikmenn í engu
ástandi til að spila fótbolta.
„Clive var mjög alvarlega veik-
ur,“ sagði Tim Davies stjórnarmað-
ur Leicester. „Hann var fluttur með
sjúkrabíl á sjúkrahús þar sem hann
gat aðeins tjáð sig sem er góðs viti.
Okkar hugsanir og bænir eru hjá
fjölskyldu leikmannsins. Ég verð
að hósa Nottingham Forest því
hér voru málin leyst og það mjög
hratt.“
Clive Clarke er á láni frá Sunder-
land en margir Íslendingar kannast
við hann þegar hann var hjá Stoke
og lék undir stjórn Guðjóns Þórðar-
sonar. Hann kom til Leicester fyrir
10 dögum .
Þegar leikmenn birtust ekki aft-
ur úti á velli fór mannskapurinn á
heimavelli Nottingham að ókyrrast
og þegar stjórarnir komu úr göng-
unum var ljóst að eitthvað hafði
gerst. Colin Calderwood stjóri For-
est tilkynnti svo áhorfendum hvað
hafði gerst. „Því miður, vegna al-
varlegra veikinda eins leikmanna
Leicester, hafa bæði félögin kom-
ist að þeirri niðurstöðu að fresta
leiknum.“ Stjórnar formaður For-
est bætti við að fótboltinn skipti
litlu máli, hann væri í aukahlut-
verki. „Um leið og við fundum út að
leikmaðurinn væri svona alvarlega
veikur fórum við strax til dómarans
og sögðum við hann að við sem fé-
lag værum tilbúnir að gera það sem
Leicester vildi gera. Þeir eru auðvit-
að að ganga í gegnum erfitt tímabil
og það sást að leikurinn gat ekki
haldið áfram.“
benni@dv.is
Clive Clarke kom til
Leicester á láni frá
sunderland.