Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.2007, Blaðsíða 20
miðvikudagur 29. ágúst 200720 Áhugamál DV
Guðfinna Björk Helgadóttir, verslun-arstjóri og annar eigenda Virku, ver miklum tíma í vinnuherberginu sínu.
Sonurinn smíðaði saumaborðið
Guðfinna Björk Helgadóttir, verslunarstjóri og annar
eigenda Virku, hefur verið virk í bútasaumi frá árinu 1978.
„Okkur hjónunum fannst kominn tími til að innleiða eitt-
hvað nýtt til landsins,“ segir Guðfinna en hún lærði búta-
saum í Bandaríkjunum. Bútasaumur hefur frá þeim tíma
verið aðaláhugamál Guðfinnu. „Það er hægt að gera svo
ótal margt. Teppi, dúka, veggteppi, gardínur og diskamott-
ur svo eitthvað sé nefnt. Það er hægt að hafa heimilið svo
huggulegt og allt í stíl.“ Guðfinna sem hefur kennt búta-
saum í ein þrjátíu ár segir að þó svo að konur séu í mikl-
um meirihluta sé alltaf einn og einn karlmaður sem sýni
iðjunni áhuga. „Þeir mættu nú samt vera fleiri,“ segir Guð-
finna. Það kemst nú ekki mikið annað að hjá Guðfinnu en
bútasaumur og fyrirtækjarekstur en hún segist þó hafa
mikinn áhuga á golfi. „Það gefst hreinlega ekki nægur tími.
Þá sjaldan sem ég spila geri ég það erlendis.“ Guðfinna seg-
ist eyða miklum tíma í vinnuherberginu heima hjá sér. Þá
spilar hún notalega tónlist og gleymir stund og stað yfir
handavinnunni. „Saumaborðið mitt er í sérstöku uppá-
haldi hjá mér enda var það hann sonur minn sem smíðaði
það handa mér.“
„Við þjónustum handverksfólk, smíðastofur í skól-
um og vinnustofur um allt land, hvort sem um ræðir
handverk með steina, málma, tré eða silfurleir,“ segir
Þorsteinn Eyfjörð Jónsson, eigandi Handverkshússins
sem er nýflutt í Bolholt 4 í Reykjavík eftir 10 ára veru í
Hafnarfirði. „Við sérhæfum okkur í sköpun með stein-
um, hvort sem það er steinaborun, slípun eða sögun.
Hingað kemur fólk á öllum aldri sem vinnur með hand-
verk í heimahúsum. Við stílum aðallega inn á almenn-
ing og bjóðum upp á heildarlausnir fyrir fólk sem vill
koma sér upp vinnuaðstöðu heima hjá sér,“ segir Þor-
steinn.
Vaxandi áhugi á handverki
Aðspurður segir hann eftirspurnina fara sífellt vax-
andi. „Það virðist vera vaxandi áhugi fyrir handverki.
Konurnar eru í auknum mæli farnar að hanna og búa til
sína eigin skartgripi en karlarnir eru meira í því að vinna
með timbur. Þeir dunda sér oft við að skera út klukkur
eða loftvogir, búa til hnífa, renna eða skera út. Þetta virð-
ist vera orðin mjög vinsæl dægrastytting hjá fólki sem er
að minnka við sig vinnu. Hér er hægt að fá allt efni sem
til þarf í handverksvinnu, auk verkfæra en við erum með
nokkur þúsund vöruliði í búðinni.“
Námskeiðin vinsæl
Handverkshúsið hefur í auknum mæli boðið upp á
námskeið í handverki. „Við erum með námskeið í silf-
urkveikingu, tréútskurði, steinavinnslu og silfurleir, en
silfurleirinn er þróun frá Japan þar sem búið er að koma
silfri í mjúkt form til að einfalda almenningi að skapa
skartgripi heima hjá sér með tiltölulega lítilli aðstöðu.
Þá er á skömmum tíma hægt að skapa fallega hluti með
einföldum hætti. Flestir þeir sem komið hafa á byrjenda-
námskeið kaupa sér verkfæri og efni og halda áfram að
námskeiði loknu,“ útskýrir Þorsteinn. Aðspurður segir
hann að munirnir sem fólk búi til séu oftast gefnir. „Flest-
ir smíða til að gefa vinum og ættingjum. Svo eru aldraðir
duglegir að halda handverkssýningar þar sem fólk mæt-
ir með munina sína, sýnir og jafnvel selur einn og einn
hlut. Þetta er oft á tíðum fyrsta flokks handverk sem fólk
vinnur heima hjá sér.“
Úr fjölmiðlum í handverkið
Þorsteinn tók við fyrirtækinu þegar Gylfi Sigurlínar-
son, stofnandi þess, féll frá fyrir hálfu öðru ári. „Ég tengd-
ist fyrirtækinu þegar það var í rekstri í Hafnarfirði. Ég var
áður forstöðumaður vefútgáfu 365, sem snerist aðallega
um rektur á Vísi.is. Þegar ég ákvað að taka við búðinni
hætti ég í fjölmiðlum og söðlaði um. Mér finnst æðis-
legt að vinna við það sem ég geri í dag. Hérna vinn ég
með mörgu hæfileikaríku og skemmtilegu fólki sem er
þakklátt fyrir þá þjónustu sem það fær,“ segir Þorsteinn
að lokum.
Þorsteinn Eyfjörð Jónsson er eigandi Handverkshússins sem sérhæfir sig í þjónustu við handverksfólk.
Fyrirtækið býður auk þess upp á námskeið í handverki en eftirspurn eftir þeim hefur aukist mikið
undanfarin misseri.
Þorsteinn
Eyfjörð
Jónsson
segir
handverk
njóta vaxandi
vinsælda.
SMÍÐA
SÍNA EIGIN
SKARTGRIPI