Félagsbréf - 01.01.1955, Síða 13
Lagt upp í langferd
Vm leið og fyrstu bækur Almenna, bókafélagsins berast félags-
mönnum í hendur þykir rétt að ítreka það, að félagið hefur sett
sér að markmiði að gefa hverjum íslendingi, er þiggja vill, kost á
að afla sér valinna bóka við sem vægustu verði, og jöfnum hönd-
um að fræða menn ekki aðeins um land og lýð, heldur og um lönd
og lýði veraldar, slcáldskap þann, lifnaðarhætti og heimspeki, sem
einkennir mannkynið á líðandi stund eða hefur enzt því í vega-
nesti. Án réttrar yfirsýnar getur engin þjóð talizt fullgild menn-
ingarþjóð, en á slíka yfirsýn skortir nú einna helzt víða um heim,
enda unnið að því skipulega og af harðfylgi að brengla hana og
takmarka. Af fádæma gorgeir boðar afturhaldið austræna sjálft »
sig sem vaxtarbrodd mannkynsins og er slíkt aðeins hægt, þar sem
lýgin situr á veldisstóli. Þetta veit og sér hver maður, sem vita
vill og sjá, en um hina málóðu dáleiðendur flykkjast eigi að síður
víða um heim ungir hugsjónamenn — enn sem komið er.
Almenna bókafélagið fer hægt af stað og hefur vaðið fyrir neð-
an sig, enda standa félagsmenn einir undir þeim bókakosti, sem
hægt verður að miðla. Tala áskrifenda ræður öllu um, hversu hag-
kvæm kjör hægt verður að bjóða, en unnið mun verða að því af
kostgæfni að auka útgáfustarfsemina hið allra fyrsta, án þess að
íþyngja mönnum um framlög.
Það er tafsamt verk og vandasamt að kjósa þótt ekki sé nema
tvær-þrjár bækur á ári úr öllum þeim kynstrum, sem fyrir liggja
og út er gefið af prentuðu máli erlendis og hælt á hvert reipi,
miðlungsbókum og þaðan af þynnri ekki síður en meistaraverk-
unum, sem alla jafna verða fá. Og ekki er vandinn minni að undir-
búa eða afla íslenzkra ritverka, en einmitt á heimasviðinu langa.ði
forráðamenn félagsins til að gera líðandi stund og liðnum öldum
og einstaklingum sæmileg skil. Útlcoman, hver sem hún kann að
verða, mun jafnan orka tvímælis í þjóðfélagi, þar sem hverjum
einum, svo er Drottni fyrir að þakka, enn er leyfilegt og hættu-
laust að láta í Ijós álit sitt á mönnum og málefnum. Almenna bóka-