Félagsbréf - 01.01.1955, Blaðsíða 31
FÉLAGSBRÉF
21
blökkupresti, og þessi kjarni er mannást, kærleikur til náungans
þrátt fyrir andstreymi og þjáningar.
Alan Paton gaf út aðra skáldsögu sína árið 1953, og nefnist hún
á frummálinu Too late the phalarope. Ennfremur hefur Paton
stofnað frjálslyndan stjórnmálaflokk, sem berst fyrir borgaraleg-
um réttindum til handa fólki af öllum kynflokkum í Suður-Afríku.
ÖRLAGANÓTT YFIR EYSTRASALTSLÖNDUM
Höfundur þessarar bókar, Ants Oras, var prófessor í enskri
tungu í borginni Dorpat í Eistlandi frá 1934 fram að þeim tíma
í styrjaldarlok, er hann neyddist til að flýja föðurland sitt til að
komast undan Rússum, sem þá hertóku Eistland öðru sinni. Sem
stendur er hann prófessor í enskri bókmenntasögu í Gainesville
í Florida.
1 bók sinni lýsir prófessor Oras lið fyrir lið þróun mála í Eist-
landi frá þeim tíma, er Molotov og Ribbentrop gerðu hið víð-
fræga samkomulag sín í milli um örlög Eystrasaltsríkjanna, og
allt fram að atburðum síðustu ára. Hann bregður upp glöggri
mynd af því, hvernig Rússar binda, hægt en þó fast, endi á sjálf-
•stæði þjóðarinnar, ýmist með því að pota eistlenzkum kommún-
istum í áhrifastöður innanlands eða með ánauð og þrengingum á
þjóðina af sinni hálfu. Minnisstæð er lýsingin á hersetuskiptum
Rússa og Þjóðverja og athyglisverður samanburðurinn, sem gerð-
ur er á ofbeldisaðferðum þessara tveggja hervelda. Prófessor Oras
gerir einnig grein fyrir atburðum styrjaldarinnar á Eystrasalts-
vígstöðvunum, og nær lýsing hans hámarki í hinum magnþrungnu
átökum í orustunni um Dorpat. Síðara hernám Rússa leiddi til al-
gjörs ráðstjórnarskipulags í Eystrasaltslöndunum, þótt and-
spyrnuhreyfingin heyi þar enn baráttu sína, sem þó virðist von-
Jítil, eins og málum er nú komið.
Ýkjulaust má segja, að þessi bók prófessors Oras sé einhver sú
athyglisverðasta, sem rituð hefur verið um stefnur og starfs-
aðferðir einræðisríkjanna, jafnt inn á við sem út á við. Einstætt
gildi hefur bókin vegna vísindalegrar dómgreindar höfundar,