Félagsbréf - 01.01.1955, Blaðsíða 37

Félagsbréf - 01.01.1955, Blaðsíða 37
PÉLAGSBRÉF 27 Þekkt þýzkt útgáfufyrirtæki, sem gefið hefur út myndabækur frá mörgum löndum, hafði hug á að ráðast í útgáfu myndabókar- innar ÍSLAND. Kostnaður við prentun slíkrar bókar er geysi- mikill, og gat fyrirtækið ekki hafizt handa, fyrr en tryggð væri sala allstórs upplags hér á landi, þar sem erlendi markaðurinn er ótryggur. Almenna bókafélaginu er það mikið gleðiefni að hafa getað stuðlað að þessari útgáfu með því að festa kaup á því magni, sem útgefandinn þurfti að selja hér. Myndabókina ÍSLAND má óefað telja þá fegurstu sinnar teg- undar, sem hér hefur verið á boðstólum. Bæði eru myndirnar sér- lega góðar, en einkum ber þó prentun þeirra af. Hanns Reich Ver- lag í Munchen gefur bókina út, en hún er prentuð í Sviss. Gunnar Gunnarsson, skáld, ritar ávarp, en dr. Sigurður Þórarinsson, jarð- fræðingur, formálsorð. Þá hefur hann og gert myndaskýringar og unnið á annan hátt að útgáfunni. Myndabókin verður seld í bókabúðum víða um heim. Hér verð- ur hún seld á kr. 130,00. Hins vegar býður Almenna bókafélagið öllum félögum sínum eitt eintak hennar á kr. 75,00. Eru það sér- stök vildarkjör, enda er það skylda Bókafélagsins að gæta hags- muna þátttakendanna á sérhvern hátt. Fullvíst má telja, að myndabókinni verður hér vel tekið og hún muni eiga drjúgan þátt í að kynna Island og íslenzkt þjóðlíf meðal nálægra og fjarlægra þjóða.

x

Félagsbréf

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.