Félagsbréf - 01.01.1955, Side 15
FÉLAGSBRÉP
5
kynni yfir að ríða áður ævinni lýkur. Ánauðugur hugsuður var
þess umkominn að setja saman heimspekireglur liandbókarinnar
sér til afþreyingar og hugarhægðar. Mætti að vísu ýmislegt við
þær athuga. Athugaverðast er þó, að einmitt á þessum hér vestra
blessuðum degi, skuli menn svo milljónum skiptir þurfa á því að
halda, að leita sér slíkrar eða líkrar andlegrar huggunar í þræla-
búðum, sem aðeins örfáir losna lifandi úr. Þessu er unað af um-
heiminum, illum kosti, og hver veit hvað lengi það mun standa.
Það þykir engan mann skemma, að mæla þessu bót eða draga ör-
ugga vissu í skúmskot efans.
Tilraun sú, er félagið gerði: að gefa áskrifendum tækifæri til
að eignast með sérstökum vildarkjörum myndabókina ÍSLAND,
bók þann veg úr garði gera, að ekki hefur sézt önnur slík hérlend-
is, sömu tegundar, hefur tekizt svo vel að líkur eru á að hægt verði
að tvöfalda upplagið um líkt leyti og bókin berst félagsmönnum
þeim, sem hana hafa pantað, í hendur — og samtímis í bókabúðir
á nær tvöföldu verði. Með þá reynslu fengna, virðist sjálfgefið að
halda lengra í sömu átt, og er það hyggja mín og von okkar allra,
að enginn telji sig svikinn eða þó ekki sé nema vonsvikinn af skipt-
um sínum við Almenna bókafélagið. Ráðamenn þess munu láta sér
annt um, að svo megi verða einnig framvegis.
Væri þá markinu náð hvað þá hlið snertir. Menningaráhrifin
munu segja til sín áður varir og vonandi verða slík, að æ fleiri og
sárari kvein berist og harmagrátur úr réttri átt, þangað til flótti
brestur í liðinu og óhljóðið rénar af sjálfu sér vegna fækkandi
raddbanda.