Félagsbréf - 01.01.1955, Side 40
30
FÉLAGSBRÉP
fljótt, er upplögin stækka. Þar sem
Almenna bókafélagið hyggst engan
fjárhagslegan hagnað hafa af starf-
semi sinni, heldur verja öllu fé sínu
í þágu félaganna, geta þeir, sem þeg-
ar hafa gerzt félagsmenn, tryggt
aukna útgáfustarfsemi fyrir óbreytt
félagsgjald, ef þeir hvetja vini sína
og kunningja til þátttöku í þessu
merka félagi.
Hin mikla þátttaka í Bókafélaginu
hefur þegar gert kleift að auka út-
gáfuna frá því, sem upphaflega var
fyrirhugað. Þannig var ekki gert ráð
fyrir, að félaginu tækist þegar á
fyrsta ári að senda frá sér tímarit.
Þetta „Félagsbréf", sem nú er sent
félagsmönnum, ber þess gleggstan
vott, að stjórn Almenna bókafélags-
ins og bókmenntaráð ætla sér að auka
útgáfustarfsemina samhliða fjölgun
félagsmanna.
Enn er ekki ljóst, hver félagatalan
kann að verða, og því ótimabært að
heita nokkurri aukningu á útgáfunni,
enda verður að teljast heppilegra að
lofa ekki meiru en því, sem örugglega
verður staðið við, en láta heldur
aukninguna sjást í verki, þegar að-
stæður leyfa, eins og gert er með
þessu hefti.
Bækur þær, sem nú koma út, telj-
ast fyrri hluti félagsbóka ársins 1956.
Síðari hluti þeirra kemur út snemma
á næsta ári. Eru það íslandssaga dr.
Jóns Jóhannessonar, sem verður mik-
ið og gott verk, og endurminningar
Ásgríms Jónssonar, listmálara, skrá-
settar af Tómasi Guðmundssyni,
skáldi. Verður sú útgáfa hin vandað-
asta og bókin skreytt myndum af
málverkum listamannsins.
Þannig fá félagsmenn Almenna
bókafélagsins á fyrsta starfsári fé-
lagsins fimm úrvalsbækur, ásamt
tímariti, fyrir aðeins 150 krónur.
Hljóta þau kjör að teljast geysigóð
á þessum tímum hins háa verðlags.
En þó standa vonir til, að vaxandi
félagatala muni gera kleift að auka
útgáfuna enn á komandi árum.
E. K. J.